Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Blaðsíða 40
tilbúnir til að hverfa frá hjúkrunarstarfínu
og finna sér annan starfsvettvang. Er það
mikið áhyggjuefni og umhugsunarvert
fyrir ráðamenn heilbrigðismála
á íslandi. Þrátt fyrir það er hugur í
ungum hjúkrunarfræðingum og taldi
hópurinn að hjúkrunarfræðingar horfðu
í sívaxandi mæli til meistaranáms sem
staðalviðmiðs í menntun en jafnframt
væri skýr krafa um klínískar námsleiðir
í meistaranámi auk þess sem verulega
þótti vanta upp á að hjúkrunarfræðingar
með sérmenntun hefðu tækifæri til að
miðla sérfræðiþekkingu sinni til annarra
í þeim hraða og við það álag sem
er til staðar á flestum vinnustöðum í
dag. Fundargestum varð tíðrætt um
fjöldatakmarkanir í hjúkrunarfræðideildir
og gildi þeirra í dag. Var það samróma
álit að sú aðgerð, að fjölga nemendum
sem komast inn árlega, hefði ekki borið
þann árangur sem vonast var til og fjöldi
nemenda, sem flytjast á milli ára, sé
óbreyttur miðað við fyrra kerfi. Þá var og
rætt að æskilegt væri að auka tengsl FÍH
við nemendur í hjúkrunarfræðideildum HÍ
og HA. Sú umræða kom upp að fólki finnst
Landspítali ákjósanlegur vinnustaður fyrst
eftir útskrift vegna þeirrar víðtæku reynslu
sem þar gefst tækifæri til að öðlast. Að
sama skapi fannst fólki oft rödd þess
vera veik inni á Landspítala og það
hverfa í fjöldann sökum stærðarinnar og
skoðanir þess ekki fá hljómgrunn meðal
aðalstjórnenda hans. Auk þess fannst
fólki starfsmannastefna spítalans óljós og
erfitt að vinna sig upp þar auk gífurlegs
álags á starfsfólkið. Flestir voru jákvæðir
gagnvart því að starfa í einkageiranum
og jafnvel að fá einkaaðila til að sjá um
kennslu hjúkrunarnema. Einn hópurinn
ræddi öryggi í starfi og öryggi sjúklinga
og lýsti miklum áhyggjum af auknum
hraða og álagi á hjúkrunarfræðinga
sökum manneklu. Hópurinn ræddi þá
hættu sem skapaðist af því að taka
þátt í kerfi þar sem hjúkrunarfræðingur
neyðist til að taka ábyrgð á miklu fleiri
sjúklingum en æskilegt er og oft langt
umfram öryggismörk. Taldi hópurinn
að það yrði að endingu hvorki okkur
né sjúklingum til góða þar sem það
veldur auknu álagi á hjúkrunarfræðinga
og sjúklingunum þar með aukinni hættu
að dveija í slíku umhverfi. Að auki töldu
fundargestir alvarlegt mál að aðeins einn
hjúkrunarfræðingur sæi um allt að 80
Frá stofnfundi ungliðadeildar
einstaklinga á öldrunarstofnunum. Þá
hafði hópurinn áhyggjur af mistökum
við lyfjagjafir sökum skorts á starfsfólki.
Einnig taldi hópurinn það vera slæm
skilaboð frá Landspítala hversu lítið virðist
vera auglýst eftir hjúkrunarfræðingum
þrátt fyrir skort og velti því fyrir sér hvort
túlka mætti það sem óbein skilaboð um
að hlaupa hraðar eða skerða þjónustu
við sjúklinga. Þá þótti hópnum undarlegt
að þrátt fyrir mikinn skort á starfsfólki
og ógrynni aukavakta á nánast öllum
deildum er það ekki túlkað sem aukið
álag og því fær enginn þá 30 þúsund
króna álagsgreiðslu sem heimild er fyrir í
kjarasamningum okkar.
Hópurinn taldi það vera eitt af hlutverkum
FÍH að gera hjúkrunarfræðingastéttina
sýnilegri almenningi. Einnig fannst hóp-
num að styrkja mætti tengsl FÍH við gras-
rótina. Hins vegar var hópurinn ánægður
með vef FÍH, þeir sem nýttu sér rafræn
„rapport" voru ánægðir, og var hópurinn
sammála um mikilvægi þess að vefurinn
sé sterkur. Þá taldi hópurinn mikilvægt
að hjúkrunarfræðingar undirgangist
ímyndarbreytingu í samfélaginu með því
að skipta út ímynd móðurlegrar umhyggju,
sbr. hugur-hjarta-hönd, og leggja áherslu
áfagleika, menntun, metnað og sjálfstæði
hjúkrunarfræðinga. Annar áherslupunktur
er að mati hópsins mikilvægur, að
hjúkrunarfræðingar skilgreini sig sem
heilbrigðisstétt en ekki umönnunarstétt,
bæði meðal hjúkrunarfræðinga sjálfra
sem og út á við. Þegar bera á saman
hjúkrunarfræðinga við aðrar stéttir leggur
hópurinn áherslu á að samanburðurinn sé
gerður við aðrar heilbrigðisstéttir og hætt
verði samanburði við umönnunarstéttir
og stéttir með minni menntun. í tengslum
við breytta ímynd vill hópurinn einnig að
umræðu um hjúkrunarfræðinga í kvenkyni
og kvengerving starfsheitis í umræðu
verði hætt.
Fundargestir binda miklar vonir við
ungliðadeildina og telja grasrótarvettvang
sem þennan nauðsynlegan í baráttunni
fyrir bættum kjörum stéttarinnar.
Telur hópurinn að deildin geti stuðlað
að jákvæðum, markvissum og upp-
byggilegum ávinningi fyrir hjúkrunar-
fræðinga í heild og að deildin sé kjörinn
vettvangur fyrir unga hjúkrunarfræðinga
til að hittast og skiptast á skoðunum og
efla samstöðu stéttarinnar.
Mikill hugur er í hjúkrunarfræðingum
og samstaðan mikil. Óformleg könnun
innan hópsins sýndi að fólk er tilbúið til
róttækra aðgerða þegar samningar losna
í vor til að fá leiðréttingu á sínum kjörum
og tengingu milli lengdar náms, ábyrgðar
og launa.
Ungliðadeildin mun hittast annan
þriðjudag í hverjum mánuði og er næsti
fundur 12. febrúar kl. 20 í húsnæði FÍH
að Suðurlandsbraut 22.
38
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 1. tbl. 84. árg. 2008