Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Side 43
FRÉTTAPUNKTUR
lungnasjúklínga. Fagdeildin tók þátt í undirbúningi diplómanáms
í hjúkrun langveikra með áherslu á hjúkrun lungnasjúklinga.
Gott samstarf er á milli hjúkrunarfræðinga sem annast um
lungnasjúklinga á hinum ýmsu stofnunum. Hjúkrunarfræðingar í
fagdeildinni eru duglegir að sækja ráðstefnur þar sem þekking
er aukin og tengsl við erlenda lungahjúkrunarfræðinga eru efld.
Frá upphafi hefur mikil áhersla verið lögð á forvarnir lungna-
sjúkdóma og þá fyrst og fremst reykingavarnir. Fagdeildin hefur
tekið þátt í að fá Jennifer Percival frá Royal College of Nursing
hingað til lands til námskeiðahalds í reykleysismeðferð fyrir
heilbrigðisstarfsfólk. Fagdeildin hafði frumkvæði að þýðíngu
bæklingsins „Tært loft, reykleysismeðferð og tóbaksvarnir, hand-
bók fyrir heilbrigðisstarfsfólk". Hjúkrunarfræðingar fagdeildarinnar
hafa einnig haldið reykleysisnámskeið fyrir einstaklinga og hópa.
Mikilvægt var talið að hefja umræður og auka skilning úti
í þjóðfélagínu á lungnasjúkdómum. Fór fagdeildin í þeim
tilgangi í verslunarmiðstöðvar með fræðslu og ýmsar mælingar
fyrir almenning, svo sem súrefnismettun, kolmónoxíð og
lofthraðamælingu (peak-flow). Fagdeildin stóð fyrir fræðsludegi
árið 2004 á Grand hóteli fyrir lungnasjúklinga og aðstandendur
þeirra en aðgangur var öllum opinn. Fagdeildin hefur einnig tekið
þátt í undirbúningi að GOLD-deginum en það er alþjóðadagur
langvinnrar lungnateppu. Árið 2003 var haldin hér á landi
norræn lungnaráðstefna. Átti fagdeildin þátt í undirbúningi
hennar ásamt Félagi íslenskra lungnalækna. Ráðstefnuna sóttu
um 400 heilbrigðisstarfsmenn sem komu víða að.
Fagdeildarfélagar starfa á mörgum sviðum lungnahjúkrunar. Þar má
nefna bráðaþjónustu, göngudeild og endurhæfingu ásamt hjúkrun
langveikra, bæði inni á stofnunum og í heimahúsum. Hjúkrun
lungnasjúklinga er mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf, viljum við
gjarnan sjá fleiri hjúkrunarfræðinga sérhæfa sig á þessu sviði.
Fagdeildin hefur verið lánsöm að hafa alltaf sterka og atorkumikla
stjórn. Einhverjar breytingar hafa orðið í stjórninni frá stofnun, þó
ekki miklar miðað við hversu lengi hún hefur starfað þannig að
greinilegt er að áhugi á málefnum lungnasjúklinga er mikill bæði
innan stjórnar sem utan.
Þegar horft er til framtíðar er mikilvægt að efla rannsóknir
á sviði lungnahjúkrunar og væntum við mikils af þeim
hjúkrunarfræðingum fagdeildarinnar sem hafa lokið eða eru um
það bil að Ijúka meistaranámi í hjúkrun.
O
s
£
$
a
Hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands
27. október sl. brautskráðust frá hjúkrunarfræði-
deild Háskóla íslands 7 hjúkrunarfræðingar með BS-
gráðu, 5 með meistaragráðu og 3 með diplóma.
BS-gráða í hjúkrunarfræði
Áslaug ína Kristinsdóttir - Notkun náttúruefna meðal
kvenna með brjóstakrabbamein. Fræðileg úttekt.
Bergþóra Eyjólfsdóttir - Rýnt í störf hjúkrunarfræðinga
Hrafnhildur Lóa Guðmundsdóttir - í lausu lofti.
Fræðsluþarfir kvenna á 1. hluta meðgöngu.
Ólöf Sigríður Indriðadóttir - Næringarástand mænu-
skaðaðra skjólstæðinga LSH.
Rakel Ásgeirsdóttir - Bráðakeisari, upplifun foreldra.
Fræðileg úttekt.
Sigríður A. Jóhannsdóttir - Spritt og ilmolíur sem
viðbótarmeðferð við ógleði. Fræðileg umfjöllun.
Þorbjörg Ása Kristinsdóttir - Notkun náttúruefna meðal
kvenna með brjóstakrabbamein. Fræðileg úttekt.
Meistaragráða i hjúkrunarfræði
Dagmar Rósa Guðjónsdóttir - Gildi ólíkra tengsla í
rómantískum samböndum.
María Einisdóttir - Efling (e. empowerment) og
starfsánægja hjá starfsmönnum geðdeildar LSH.
Ólöf Birna Kristjánsdóttir - Könnun á þynglyndi og
sjálfsáliti kvenna í námi við Háskóla íslands.
Rósa María Guðmundsdóttir - Vonleysi og sjálfsvígshætta
meðal sjúklinga með langvinnt þunglyndi. Áhrifaþættir og
árangur hugrænnar atferlismeðferðar á vonleysi.
Sylvía Ingibergsdóttir - Rannsókn á árangri hugrænnar
atferlismeðferðar eftir fagaðilum.
Diplóma á sérsviðum hjúkrunar
Lilja Steingrímsdóttir - Hjúkrunarstjórnun.
Ragnheiður Kristín Björnsdóttir - Heilsugæsluhjúkrun
Alma Emilía Björnsdóttír - Krabbameinshjúkrun.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
41