Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Page 49
Unnur Þormóðsdóttir, unnurth@mi.is
Niðurstöður viðhorfskönnunar kjaranefndar
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR LEGGJA AÐALÁHERSLU
Á HÆKKUN GRUNNLAUNA
m . » Góð þátttaka hjúkrunarfræðinga í viðhorfskönnun
kjaranefndar FÍH gefur til kynna að baráttuhugur sé
líM. ^ JWli meðal félagsmanna og verulegra kjarabóta sé þörf.
Samanlagt svöruðu 600 félagsmenn könnuninni og
\ eru það um 24% virkra félagsmanna okkar.
Unnur Þormóðsdóttir er
formaður kjaranefndar FÍH
Samkvæmt niöurstöðum viðhorfs-
könnunar kjaranefndar FÍH telur mikill
meirihluti hjúkrunarfræðinga, eða 74%, að
aðaláhersla í komandi kjarasamningum
eigi að vera á hækkun grunnlauna. Er
það skoðun kjaranefndar að fara eigi
fram á leiðréttingu á grunnlaunum
hjúkrunarfræðinga sem klárlega hafa
dregist aftur úr öðrum háskólamenntuðum
stéttum á samningstímanum. Um
31% fannst mikilvægast að kjaranefnd
legði áherslu á minnkun vinnuskyldu,
25% fannst mikilvægast að kjaranefnd
legði áherslu á hækkun vaktaálags,
23% fannst mikilvægast að kjaranefnd
legði áherslu á aldursákvæði, það er
hækkuð laun með hærri aldri, 22% fannst
mikilvægast að kjaranefnd legði áherslu
á rétt til endurmenntunar og 17% fannst
mikilvægast að kjaranefnd legði áherslu
á umbunarkerfi fyrir þá sem eru í mikilli
vinnu.
Áhugavert var að sjá hversu lík svör
almennra hjúkrunarfræðinga og hjúkr-
unarstjórnenda voru þegar þau voru
borin saman.
Meðalstarfsreynsla almennra hjúkrunar-
fræðinga, sem tóku þátt í könnuninni,
voru 13,7 ár en 17,5 ár meðal
stjórnenda. Gaman var að sjá hversu
duglegir hjúkrunarfræðingar eru að sækja
sér viðbótarmenntun og höfðu 44%
almennra hjúkrunarfræðinga og 66%
hjúkrunarstjórnenda viðbótarnám.
68% hjúkrunarfræðinga eru á móti að
fara aftur í samflot með BHM eins og gert
var í síðustu kjarasamningum.
Þegar spurt var um viðunandi grunn-
laun fyrir hjúkrunarfræðinga og
hjúkrunarstjórnendur voru svör hópanna
tveggja mjög áþekk, báðir vildu sjá miklar
kjarabætur. Mikill vilji er til að leiðrétta
kjör reyndari hjúkrunarfræðinga.
Hjúkrunarfræðingar vilja sjá hækkun á
vaktaálagi en þó aðallega á næturvöktum um
helgar. Einnig vildu 83% hækkun á álagi fyrir
bakvaktir. Spurt var um aukaumbun og vildu
22%fáfræðslustyrk, 21 % líkamsræktarstyrk,
18% styrk til skókaupa, 13% hækkun á
framlagi vinnuveitenda til fræðslumála sem
myndi leiða af sér hærri styrk úr vísindasjóði,
9% bifreiðahlunnindi, 8% dagvistunarúrræði
á vegum vinnuveitenda, 6% fatastyrk og 3%
nefndu annað.
Um 70% hjúkrunarfræðinga sögðust nýta
sér styrktarsjóð BHM.
Varðandi endurmenntun telja 91%
hjúkrunarfræðinga að hver og einn eigi
að eiga ákveðinn fjölda daga á ári til
endurmenntunar. 74% aðspurðra telja
að hver hjúkrunarfræðingur eigi að fá
vissa upphæð árlega til endurmenntunar.
Upphæðir voru nefndar og voru 86%
hjúkrunarfræðinga á því að hver og einn
ætti að eiga rétt á um 100.000 kr. árlega
til endurmenntunar.
Meirihluti hjúkrunarfræðinga telur að
ákvarða eigi laun í miðlægum samningi,
þ.e. 60% almennra hjúkrunarfræðinga og
56% hjúkrunarstjórnenda. Með því væru
tryggð örugg fjárframlög til stofnana
svo hægt væri að uppfylla öll ákvæði
kjarasamningsins. Ef til stofnanasamninga
kemur viija 95% hjúkrunarfræðinga fá að
kjósa um samninginn.
Hjúkrunarfræðingar ræddu töluvert um
minnkaða vinnuskyldu og að 80% starf
ætti að vera metið sem 100% starf.
Einnig var talað um að umbuna þeim sem
væru í mikilli vinnu.
Athygli vekur að 89 hjúkrunarfræðingar
eða tæp 15% aðspurðra sögðust segja
upp ef kjör þeirra yrðu ekki bætt. Þetta
er gríðarlegt áhyggjuefni, sérstaklega í
Ijósi mikillar manneklu og ætti eitt og sér
að vera sterk ábending til ráðamanna
um hversu alvarlegur vandi er til staðar í
heilbrigðisþjónustunni hér á landi.
Er það von okkar í kjaranefnd að í
komandi samningum náum við að
leiðrétta laun hjúkrunarfræðinga sem
hvergi nærri endurspegla þá menntun og
ábyrgð sem hjúkrunarfræðingar bera frá
degi til dags.
Mun ýtarlegri kynning á niðurstöðum
viðhorfskönnunar kjaranefndar fer fram á
kjarafundum með hjúkrunarfræðingum á
tímabilinu 29. janúar til 20. febrúar.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
47