Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Qupperneq 52

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Qupperneq 52
1. Að velja samræðufélaga (val á úrtaki) 2. Fyrst er að vera kyrr (áður en byrjað er á samræðum) 3. Þátttaka í samræðum (gagnasöfnun) 4. Skerpt vitund varðandi orð, gagnagreining hefst 5. Upphaf greiningar á þemum (að setja orð á hugmyndir) 6. Að átta sig á heildarmynd reynslu hvers einstaklings 7. Staðfesting á heildarmynd hvers einstaklings með honum sjálfum 8. Að átta sig á heildarmyndinni á fyrirbærinu sjálfu (megin- niðurstöður rannsóknarinnar) 9. Að bera saman niðurstöðurnar við rannsóknargögnin 10. Að velja rannsókninni heiti sem lýsir níðurstöðu hennar í örstuttu máli (felur í sér túlkun á niðurstöðum rann- sóknarinnar) 11. Að sannreyna niðurstöðurnar með einhverjum meðrann- sakendum 12. Að skrifa upp niðurstöður rannsóknarinnar. Tafla 1. Tólf meginþrep í rannsóknarferli Vancouver-skólans í fyrirbærafræði (Sigríður Halldórsdóttir, 2003, bls. 251). Persónuvernd var send tilkynning (S253) um fyrirhugaða rannsókn og sótt um leyfi til Vísindasiðanefndar. Þegar það lá fyrir (VSNÓ2005050011/03-7) var auglýst eftir þátttakendum á Húsavík, Akureyri og í Reykjavík. Óskað var eftir fólki með iktsýki og reynslu af áföllum, notað tiigangsúrtak með það í huga að skapa heildarmynd af fyrirbærafræðilegu þáttunum sem fyrirhugað var að rannsaka (Kemper o.fl., 2003; Polit o.fl., 2001). Val á þátttakendum er fyrsta þrepið í rannsóknarferli Vancouver-skólans. Átta manns gáfu kost á sér, sex konur og tveir karlar sem fengu nöfnin: Anna, Ásta, Sunna, Unnur, Guðrún, Sara, Þórður og Gunnar. Meðalaldur þeirra var 49,6 ár og staðalfrávik 10,84. Einn var kominn á eftirlaun, fjórir voru öryrkjar og þn'r sinntu 50-100% starfi. Menntunarstig var gagnfræðapróf, landspróf, stúdentspróf, starfsgreinanám, háskólanám og framhaldsnám í listgreinum. Samræður fóru fram frá 1. september til 24. nóvember árið 2005. Það voru liðin meira en fimm ár frá sjúkdómsgreiningu hjá öllum nema einum sem hafði greinst einu og hálfu ári áður. Á heildina litið urðu samskiptin við þátttakendur 18 talsins auk styttri símtala. Mynd 1. Sjö vitrænir meginþættir í rannsóknarferli Vancouver-skólans í fyrirbærafræði (Sigríöur Halldórsdóttir, 2003, bls. 250). Áður en til samræðna kom var gerð ýtarleg ritleit og skoðuð sú þekking sem var til staðar á fyrirbærum (phenomenon) rannsóknarinnar. Þjálfun í virkri hlustun, sjálfsskoðun og íhyglin, semfelstíbeitinguhinnasjövitrænuþáttarannsóknaraðferðarinnar (sjá mynd 1), juku meðvitundina um mikilvægi þess að halda til hlés eigin þekkingu, lausnum og viðhorfum í samræðunum (þrep 2 í rannsóknarferli Vancouver - skólans). Samræður hófust með því að fara saman í gegnum upplýsingatexta sem samþykktur hafði verið af Vísindasiðanefnd og skrifuðu þátttakendur að því ioknu undir upplýst samþykki. Þátttakendur fengu síðan upplýsingablaðið til varðveislu. í Ijósi velgjörðarreglunnar voru fengnir fjórir fagaðilar sem voru tilbúnir að vera trúnaðarmenn ef samræður yllu sálrænum eftirköstum. Þátttaka í samræðum er þriðja þrepið í rannsóknarferli Vancouver-skólans. Fyrstu samræður stóðu í 1-2 klukkustundir en seinni samræður og samskipti voru styttri. Lífshlaup samræðufélaganna kom ósjálfrátt fram þegar þeir fóru að velta fyrir sér rannsóknarspurningunni. í lífshlaupinu komu fram tilfinningatengdir atburðir og félagsleg málefni. Á meðan á samræðu stóð var lýsing samræðufélagans tekin saman í huganum og íhugað: „Hverju er hún/hann að lýsa?" Þegar færi gafst til var eigin túlkun varpað til baka. Með þessu endurvarpi og túlkun hófst í raun gagnagreining sem leiddi tii skilnings á því sem birtist, en það er einmitt kjarni fyrirbærafræðinnar. Samræðurnar voru síðan ritaðar orðrétt á tölvutækt form. Gagnagreining er fjórða og fimmta þrepið í rannsóknarferlinu. Hlustað var nokkrum sinnum á hvert viðtal til að átta sig betur á þýðingu t.d. blæbrigðamunar í rödd og til að skilja betur merkingu orðanna. Textinn, samtals 129 bls., var prentaður út og hægri spássía höfð átta cm breið. Textinn var lesinn nokkrum sinnum yfir til að átta sig á heildarmyndinni sem viðmælendur höfðu af reynslu sinni (þrep sex), bæði því sem var sameiginlegt og frábrugðið (Sigríður Halldórsdóttir, 2000). Byrjað var á að greina textann með því að merkja með áherslulit það sem tilheyrði svari við rannsóknarspurningunni. Við næsta yfirlestur var ráðið enn frekar í merkingu reynslunnar og fundin lýsandi heiti yfir hana sem síðan voru skráð á spássíu við hlið textans. í sjötta þrepinu reyndi á beitingu óhlutbundinna hugsanaferia þegar leitast var við að sjá hugmyndir myndrænt fyrir sér. Sett var upp hugtakalíkan fyrir hvern þátttakanda en það skapaði ákveðna yfirsýn þannig að unnt var að átta sig á meginhugtökum sem lýstu best reynslu hvers og eins. Þetta þrep er einkennandi fyrir Vancouver-skólann í fyrirbærafræði og einn af meginkostum aðferðarinnar. Gagnagreiningin var síðan borin undir hvern og einn samræðuféiaga til að draga úr líkum á að fyrirframgefnar hugmyndir rannsakenda hefðu stuðlað að ákveðinni niðurstöðu í rannsókninni (þrep sjö). Eftir yfirlestur gafst þátttakendum færi á að staðfesta að skilningur væri réttur, að leiðrétta misskilning eða rangtúlkun og að koma með viðbætur eftir að hafa hugleitt merkingu orða sinna. Gagnaöflun var ekki hætt fyrr en unnt var að draga upp heildstæða mynd af því sem til rannsóknar var. Þessi vinna er talin styrkja trúverðugleika eigindlegra rannsókna (Siguriína Davíðsdóttir, 2003). Þá var komið að því að átta sig á heildarmynd fyrirbæra út frá rannsóknarspurningunni (þrep átta). Þemun, sem fram komu í hugtakalíkönum, voru flokkuð saman og dregin upp heildarmynd með því að leita að rauða þræðinum í reynslu samræðufélaganna. Niðurstöður voru síðan bornar saman við rannsóknargögn til að sjá hvort þær samræmdust þeim (þrep níu). Þá var rannsókninni valið heiti sem lýsir niðurstöðu hennar í örstuttu máii (þrep tíu): Iktsýki, streita og bjargráð eftir 50 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.