Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Qupperneq 8

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Qupperneq 8
Sigurður Bogi Sævarsson, sigbogi@simnet.is ÞJÁNINGIN NÝTT í GÓÐUM TILGANGI „Hlutverk brautryðjandans er jafnan erfitt. Eigi að síður finnst mér starf mitt í þágu mænuskaðaðra hafa skilað ýmsu góðu,“ segir Auður Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar íslands. Á dögunum var efnt til landssöfnunar á Stöð 2 til styrktar stofnuninni undir yfirskriftinni Mænan er ráðgáta - hjálpumst að við að leysa hana. Auður Guðjónsdóttir hefur lengi starfað á skurðstofum Landspítala-háskólasjúkrahúss. „Ég sé þetta stundum fyrir mér myndrænt. Þegar mikið mæðir á í baráttunni geng ég af einum blóðvelli yfir á annan. Ég fer ofan í skotgrafirnar og skýt í allar áttir, mænuskaða til hagsbóta." í landssöfnuninni var Auður í forystu eins og í fjölmörgum fleiri hagsmunamálum mænuskaðaðra á undanförnum árum. Að hennar frumkvæði var fyrir nokkrum árum hér á landi haldið alþjóðlegt þing brautryðjenda í meðferð og lækningu á mænuskaða sem var undir merkjum íslenska heilbrigðisráðuneytisins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO. Fleiri verkefni í þágu mænuskaðaðra mætti nefna. Auður segir starf sitt í forystu Mænuskaðastofnunar íslands að mestu leyti unnið við eldhúsborðið á heimili hennar vestur á Seltjarnarnesi. í mörg horn sé að líta. Án aðstoðar starfsfélaga á Landspítalanum segist hún ekki hefðu komið jafnmiklu í verk eins og þó hefur tekist. í friðarhöfn „Ég hef fengið mikið svigrúm í starfi og nýt velvilja bæði meðal stjórnenda og starfsfélaga minna á deildinni. Ég sé þetta stundum fyrir mér myndrænt. Þegar mikið mæðir á í baráttunni geng ég af einum blóðvelli yfir á annan. Ég fer ofan í skotgrafirnar og skýt í allar áttir, mænuskaða til hagsbóta. Það tekur oft mikið á. Þegar þeim kafla er lokið geng ég aftur inn á skurðstofurnar. Þá er ég komin í friðarhöfn til vina minna þar sem ég hef skjól," segir Auður. Eins og fólki mun kunnugt slasaðist Hrafnhildur Thoroddsen, dóttir Auðar, alvarlega í bílslysi fyrir nítján árum og hlaut fjöláverka og mænuskaða. Síðan þá hefur Auður lagt líf sitt og sál í baráttuna fyrir að lækning við mænuskaða finnist. Hlutlaus forysta nauðsynleg „Þegar ég leitaði hjálpar fyrir dóttur mína komst ég að því að víða í veröldinni er til þekking sem ekki nýtist þeim sem verða fyrir mænuskaða. Samkeppni um fjármuni, skeytingarleysi, hroki læknavísindanna, tungumálaerfiðleikar og samkeppni lækna og vísindamanna um vísindastyrki og -heiður á einnig sinn þátt í hve erfiðlega hefur gengið að ná 6 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.