Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 12
Brynja Ingadóttir, brynjain@landspitali.is
BÓKAKYNNING
NÆRING SKURÐSJÚKLINGA
Næring sjúklinga á
sjúkrahúsum er mikilvægt
viðfangsefni því margir
sjúklingar eru vannærðir
og vitundarvakningar er
þörf. Út er komin bók sem
fjallar mjög ítarlega um
næringu skurðsjúklinga
og er hún kærkomin
viðbót við kennsluefni um
næringu.
Næring og næringarvandamál sjúklinga
eru dagleg viðfangsefni innan sjúkrahúsa,
og þrátt fyrir velmegun og framfarir, jafnt í
þekkingu sem og meðferðarmöguleikum,
hafa nýlega verið kynntar niðurstöður
rannsókna í Evrópu sem benda til þess
að 40% sjúklinga á sjúkrahúsum þjáist
af vannæringu. Hjúkrunarfræðingar eru
í lykilaðstöðu til að greina sjúklinga sem
hætt er við að nærist ekki nægilega vel
eða eru vannærðir að einhverju leyti
við innlögn. Þeir þurfa því að búa yfir
ákveðinni þekkingu í næringarfræði en
einnig að kunna að greina, meta og
meðhöndla sjúkiinga sem eru í hættu og
kalla til samstarfs næringarráðgjafa og
lækna þegar þarf. Margt bendir til þess
að á þessu sviði hjúkrunar (og annarra
hlutaðeigandi heilbrigðisgreina) megi
gera mun betur og þarf þá að koma til
ákveðin vitundarvakning, áhugi, samstarf
fagstétta og stuðningur stjórnenda.
Þessi bandaríska bók er skrifuð að
fjölfaglegu teymi sérfræðinga á sviði
næringarfræði og læknavísinda og vakti
athygli mína þegar ég leitaði að góðu
sérefni um næringu skurðsjúklinga.
Hún skiptist í 14 kafla sem ritaðir eru
Mary Marian
Scoti A. Shikora
Mary K. Kussell
Clinical
Nutrition
for Surgical Patients
Clinical Nutrition for Surgicai Patients.
Ritstjórar: Mary Marian, MS, RD, University
of Arizona College of Medicine, Tucson,
Arízona, ScottA. Shikora, MD, FACS, Tufts
University School of Medicine, Boston,
Massachusetts, og Mary K. Russell, MS,
RD, LDN, CNSD, University of Chicago
Hospitals, Chicago, iitinois. Útgefandi:
Jones and Bartlett Pubiishers, Sudbury,
2008. ISBN-13: 9780763738815. Bókin
er 362 blaðsiður auk 7 blaðsiðna inngangs
og kynningar á höfundum.
af 23 höfundum og flaggar ítarlegum
efnisorðalista og heimildum í lok hvers
kafla.
í fyrsta kafla er fjallað um mat á
næringarástandi og næringarþörf og farið
mjög vandlega í aðferðir og mælitæki
sem hægt er að nota til þessa. í öðrum
kafla er fjallað um áhrif skurðaðgerða
á meltingarveg og í þeim þriðja um
næringarstuðning við mismunandi
sjúkdómsástand. Þar er fjallað, á
greinargóðan hátt, um næringargjöf í
æð og í görn, bæði með slöngumötun
og um munn, og rætt um hvenær
skuli taka upp slíka meðferð. Kostir og
gallar hennar eru reifaðir og gefin eru
ráð við fylgikvillum. í næstu 10 köflum
er fjallað ítarlega um næringu helstu
sjúklingahópa og bæði tekið á þörfum
einstakra sjúklingahópa, svo sem
hjarta- og lungnasjúklinga og sjúklinga
með ýmsa meltingarfærasjúkdóma,
en einnig hvernig skurðaðgerðir við
þessum sjúkdómum hafa þar áhrif.
Fjallað er sérstaklega um sjúklinga sem
gangast undir brjóstholsskurðaðgerðir,
heila- og taugaskurðaðgerðir og
aðgerðir á meltingarvegi, þar með talið
aðgerðir við offitu. Sérkaflar fjalla um
krabbameinssjúklinga, líffæraþega
og sjúklinga sem hafa lent í slysum.
Lokakafli bókarinnar, tæpar 30 blaðsíður,
fjallar síðan um sáragróningu og tengsl
næringar við hana. í kaflanum er farið
í stig gróningar, áhrifaþætti hennar,
einstök næringarefni og fleira. Hér eins
og í bókinni allri er stuðst við fjölmargar
rannsóknir og niðurstöður þeirrar ræddar
enda ber þær ekki alltaf að sama brunni.
Hverjum kafla fylgir ítarleg heimildaskrá
og fullyrt er að öll meðferðarúrræði sem
mælt er með séu studd gagnreyndri
þekkingu og nothæf í klínísku starfi.
Þessi bók er hafsjór af upplýsingum um
grunnatriði næringarfræði og meðferðar
sem beita má hjá sjúklingum sem hætt
er við að nærist ekki nægilega vel vegna
sjúkdómsins. Hún er vel læsileg þótt farið
sé í ítrustu smáatriði. Hún leggur mjög
vandaðan grunn fyrir hjúkrunarfræðinga
sem vilja efla hjúkrunarmeðferð sjúklinga
sem eiga í erfiðleikum með að nærast
vegnaþeirrarröskunarsemskurðaðgerðir,
sjúkdómar eða slys hafa valdið á getu
þeirra og áhuga á að nærast nægilega vel.
10
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 5. tbl. 84. árg. 2008