Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 14
Signður Sigurðardóttir, sigridur@grund.is
NORRÆN ÖLDRUNARRÁÐSTEFNA í ÓSLÓ
Rúmlega 500 þátttakendur mættu
á 19. norrænu öldrunarráðstefnuna
í Ósló dagana 25.-28. maí 2008.
Yfirskrift ráðstefnunnar var „Öldrun,
virðing og fjölbreytileiki". Stjórn
fagdeildar öldrunarhjúkrunar-
fræðinga notaði tækifærið og
fundaði með stjórnum fagdeilda á
Norðurlöndunum. Árið 2010 verður
svo ráðstefnan haldin í Reykjavík.
Fulltrúar öldrunarhjúkrunarfræðinga á Norður-
löndum. Frá vinstri: Karen Bjoro frá Noregi, Helle
Wijk frá Svíþjóð, Dora Fog frá Danmörku, Sigríður
Sigurðardóttir frá fslandi, Ingibjörg Þórisdóttir frá
íslandi og Elizabeth Rosted frá Danmörku.
Ráðstefna þessi er þverfagleg og heitir á
ensku „Nordic Congress of Gerontology”.
Flestir þátttakendanna voru frá Svíþjóð,
Danmörku, íslandi, Finnlandi, Noregi,
Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Einnig
voru nokkrir þátttakendur frá Bretlandi,
Austurríki, ftalíu, Bandaríkjunum og
Suður-Kóreu. Yfirskrift ráðstefnunnar
að þessu sinni var „Öldrun, virðing og
fjölbreytileiki". Megininntak ráðstefnunnar
var að aldraðir eru ekki einsleitur hópur og
innan þess hóps er eins mikill fjölbreytiieiki
og meðal yngra fólks. Til dæmis fjölgar
öldruðum innflytjendum stöðugt á öllum
Norðurlöndunum. Að sjálfsögðu eiga
þeir sama rétt til að eldast og njóta
virðingar eins og aðrir Norðurlandabúar
en þarfir þeirra geta þó verið aðrar
og taka þarf tillit til þess. Ráðstefna
þessi gefur gott yfirlit yfir rannsóknir í
öldrun og þróunina innan öldrunarfræða
og öldrunarþjónustu. Fyrirlestrarnir voru
ýmist á sviði hjúkrunarfræði, læknisfræði,
sjúkraþjálfunar eða félagsþjónustunnar.
Hægt var að velja úr rúmlega fimmtíu
fyrirlestrum og voru fyrirlesarar frá öllum
greinum innan heilbrigðisþjónustu við
aldraða.
Stjórn íslenskra öldrunarhjúkrunarfræð-
inga hefur undanfarið unnið að því
að koma á tengslum milli norrænna
öldrunarhjúkrunarfræðinga með dyggum
stuðningi frá dönsku fagdeildinni. Því
var ákveðið að boða stjórnarmenn frá
Svíþjóð, Danmörku og Noregi til stutts
fundar á meðan ráðstefnan stæði.
Ingibjörg Þórisdóttir, formaður fagdeildar
öidrunarhjúkrunarfræðinga, og Sigríður
Sigurðardóttir, gjaldkeri deildarinnar,
voru fulltrúar fyrir íslands hönd. Frá deild
sænskra öldrunarhjúkrunarfræðinga kom
Helle Wijk varaformaður. Frá Danmörku
komu Dora Fog formaður og Elizabeth
Rosted, ritstjóri dönsku deildarinnar.
Karen Bjoro mætti fyrir hönd Noregs.
Reynt var að hafa uppi á fagdeildum
öldrunarhjúkrunarfræðinga í Finnlandi og
Færeyjum en tókst ekki fyrir þennan
fund. Mikill einhugur var þó um að reyna
að hafa upp á þeim fyrir ráðstefnuna í
Reykjavík 2010.
Norrænu löndin eiga margt sameiginlegt,
til dæmis það að íbúar þeirra ná háum
aldri og öldruðum einstaklingum fjölgar
stöðugt. Heilbrigðisþjónustan innan
Norðulandanna glímir við mörg álík
viðfangsefni. í mörgum tilfellum eru
lausnirnar líkar en í öðrum tilfellum ólíkar.
Það eitt hlýtur að vera góð ástæða til
þess að öldrunarhjúkrunarfræðingar frá
Norðurlöndunum hittist og styrki tengslin.
Við getum líka lært mikið hver af annarri.
Á þessum fyrsta fundi fagdeildanna
ræddum við um að skiptast á þekkingu
og skipuleggja samvinnu á mismunandi
sviðum. Á nokkrum sviðum er málið
tiltölulega einfalt, eins og það að setja
upp tengla á heimasíðum fagdeildanna
sem vísa á heimasíður hinna norrænu
deildanna. Það að skiptast á
greinaskrifum í fagtímaritunum er líka
möguleiki. Annað mikilvægt viðfangsefni
er þróun hjúkrunarmenntunar og
hvernig Norðurlöndin bæta hæfni
hjúkrunarfræðinga í tengslum við fjölgun
aldraðra.
Niðurstaða fundar okkar var að stjórnir
fagdeildanna voru mjög áhugasamar
um að halda áfram að hittast og efla
samvinnuna enn frekar. Einhugur var um
að hittast aftur í tengslum við ráðstefnuna
í Reykjavík 2010 og hlökkum við mikið
til. Einnig stendur til að skipuleggja
móttöku fyrir hjúkrunarfræðinga innan
öldrunarþjónustunnar sem sækja
ráðstefnuna. Vonumst til að sjá sem
flesta á ráðstefnunni í Reykjavík vorið
2010.
Sigríður Sigurðardóttir er fræðsiustjórí og
deildarstjóri á Grund, dvalar- og hjúkrunar-
heimili, ásamt þvi að vera gjaldkeri fagdeildar
öldrunarhjúkrunarfræðinga.
12
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008