Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Page 20
Katrín Blöndal, katrinbl@landspitali.is
VESTURLANDSFÖR RITNEFNDAR
Morgunmatur á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Frá vinstri: Ragnheiður Alfreðsdóttir, Katrín Blöndal, Jórunn María Ólafsdóttir, hjúkrunarforstjóri
dvalarheimilisins, og Oddný Gunnarsdóttir.
1. október síðastliðinn fór ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga í ferð um
Vesturland. Staldrað var við í Borgarnesi, Búðardal og Stykkishólmi.
Tilgangur ferðarinnar var að kynnast félagsmönnum úti á landi, heyra
skoðanir þeirra á blaðinu og afla efnis í það.
Fyrsti viðkomustaður ritnefndarinnar var
Borgarnes. Það var vetur í lofti þegar
við komum að byggingunni sem hýsir
heilsugæslustöðina og dvalarheimilið.
Þar tók á móti okkur Jórunn María
Ólafsdóttir hjúkrunarforstjóri. Fékk
ritnefndin hinar bestu móttökur og var
drifin inn í morgunkaffi að gildum og
góðum sveitasið. Jórunn María tók við
sem hjúkrunarforstjóri á dvalarheimilinu
í mars síðastliðnum. Útskýrði hún
starfsemina og sýndi okkur híbýlin. Það
vakti meðal annars athygii okkar hversu
hár starfsaldur starfsmannanna er hér
og það hlýtur að segja til um hversu vel
þeim líkar að starfa við stofnunina. Um
leið hlýtur það að auka á öryggi íbúanna
að hafa sama fólkið sem það þekkir frá
einum tíma til annars.
Á meðan Christer ritstjóri ræddi við
Jórunni Maríu um málefni svæðisdeilda
og tímaritið brá hluti ritnefndarinnar sér í
skoðunarferð yfir á heilsugæsluna. Þartók
Anna B. Garðarsdóttir hjúkrunarfræðingur
á móti okkur. Líkt og svo margir aðrir
hjúkrunarfræðingar, sem við hittum
á för okkar, gerði hún ekki mikið úr
starfi sínu sem hjúkrunarfræðingur á
heilsugæslustöð á landsbyggðinni. En
Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Fyrir aftan
húsið er heilsugæslustöðin.
18
Tímarit hjúkrunartræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008