Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Qupperneq 32
einstaklinga sem ekki bæri keim af neinni
stofnun. íbúamir leigðu vistarverur sínar af
Guðn'ði enda stunduðu flestir þeirra vinnu.
Húsið við Reynimel var fyrsta eiginlega
sambýlið sem tekið var í notkun og varð
síðan fyrirmynd þeirra heimila sem fylgdu
í kjölfarið. Nú fóru margir að velta fyrir sér
þeim möguleika að lítil sambýlí um allan
bæ gætu að einhverju leyti komið í staðinn
fyrir lokaðar geðdeildir. Stofnanahugsunar-
hátturinn var loks á undanhaldi. Guðnður
gaf spítalanum húsið árið 1973“ (bls. 118).
Þórunn Pálsdóttir 1969-2000
„Þórunn Pálsdóttir (f. 1937) tók við
starfi forstöðukonu Kleppsspítala af
Maríu Finnsdóttur. Hún hafði áður aflað
sér menntunar í geðhjúkrun í Ósló og
stundað framhaldsnám í stjórnun við
Royal College of Nursing í London. Auk
þess lauk hún námi við Kennaraháskólann
1978. Þórunn vann mjög ötullega að
eflingu geðhjúkrunar í landinu. Henni
tókst eftir mikla vinnu og baráttu, ásamt
fimm öðrum geðhjúkrunarfræðingum
sem starfandi voru f landinu og í
samvinnu við menntamálaráðuneytið, að
koma á fót framhaldsnámi í geðhjúkrun
við Nýja hjúkrunarskólann. ísland var
annað í röðinni meðal Norðurlandaþjóða
til að koma slíkri menntun á fót. Mikill
áhugi var strax fyrir þessu viðbótarnámi
og árið 1975 hófu 22 hjúkrunarfræðingar
nám í geðhjúkrun. Smám saman fjölgaði
menntuðum geðhjúkrunarfræðingum
á öllum deildum spítalans sem skipti
miklu máli fyrir alla þróun meðferðar á
deildum" (bls. 125).
Þórunn Pálsdóttir vann ötullega að því
að minnka stofnanabrag geðdeildanna
eins og forveri hennar í starfi hafði lagt
áherslu á. Á áttunda áratugnum, á helsta
uppgangstíma Kleppsspítala, var mikii
þróun og gerjun í gangi í geðhjúkrun.
Mikið af ungu og vel menntuðu fólki réðst
til starfa á geðdeildirnar, sálfræðingar,
geðhjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar
og iðjuþjálfar auk nýrra geðlækna sem
menntaðir voru bæði í Ameríku og á
Norðurlöndunum. Þórunn stuðlaði að
því að á mörgum geðdeildum hætti
starfsfólkið að bera sérstakan einkennis-
klæðnað svo að andrúmsloft deildanna
væri sem eðlilegast. Stofnanabragurinn
varð mun minni á þessu tímabili enda
mikið gert til að losna við hann. Þórunn
Pálsdóttir var sæmd riddarakrossi fálka-
orðunnar fyrir störf sín í þágu geðsjúkra
1. janúar árið 1999.
Þróun geðhjúkrunar - horft til
framtíðar
Geðhjúkrun var kennd nokkrum sinnum
í Nýja hjúkrunarskólanum á sjöunda
og áttunda áratugnum, þannig fjölgaði
hjúkrunarfræðingum með sérnám í
geðhjúkrun. Árið 1973 var námsbraut
í hjúkrunarfræði við HÍ stofnuð en allt
grunnnám í hjúkrun á íslandi fór á
háskólastig frá árinu 1986 og lauk með
BS-gráðu í hjúkrun. Þessar breytingar
höfðu gífurleg áhrif á þróun geðhjúkrunar.
Fyrstu íslensku meistaramenntuðu
geðhjúkrunarfræðingarnir útskrifuðust
frá Bandaríkjunum á níunda og tíunda
áratugnum. Til að geta kallað sig
sérfræðing í geðhjúkrun í dag þarf að
hafa meistaramenntun í geðhjúkrun. Tveir
íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa lokið
doktorsnámi íi geðhjúkrun og nokkrir eru í
doktorsnámi og útskrifast á næstu árum.
Þekking í geðhjúkrun eykst hratt og
rannsóknir í geðhjúkrun hafa sýnt að
árangur sértækrar hjúkrunarmeðferðar
er ótvíræður. Hjúkrunarmeðferð fyrir
fjölskyldur langveikra skilar árangri í betri
líðan sjúklinga og aðstandenda. Samstarf
hjúkrunar á geðsviði LSH við fræðasvið
geðhjúkrunar og fjölskylduhjúkrunar innan
hjúkrunarfræðideildar Háskóla íslands hefur
þegar skilað rannsóknarniðurstöðum sem
hægt er að hagnýta til að bæta þjónustuna
við geðsjúka og fjölskyldur þeirra á íslandi.
Kleppur er enn hluti af geðsviði Land-
spítala. Endurhæfing sjúklinga og fjöl-
skyldna á Kleppi byggist í fyrsta lagi á
samvinnu við notendur þjónustunnar, í
öðru lagi á notkun klínískrar gagnreyndrar
þekkingar við þjálfun fagfólks sem stundar
hjúkrun og lækningar geðsjúkra og í þriðja
lagi á auknum rannsóknum með það að
leiðarljósi að aukin þekking bæti þjónustuna
við notendur og fjölskyldur þeirra.
Á næstu árum munu geðhjúkrunar-
fræðingar á Landspítala-háskólasjúkra-
húsi halda áfram að þróa öfluga geð-
hjúkrun á sjúkradeildum, göngudeildum
og úti í samfélaginu með vettvangs-
hjúkrun.
Eydis K. Sveinbjamardóttirergeðhjúkrunarfræðingur,
MSN, og sviðsstjóri á geðsviði Landspítala, dr. Páll
Biering er dósent við hjúkrunarfræðideild Háskóla
islands og dr. Óttar Guðmundsson er geðlæknlr á
geðsviði Landspitala.
Heimildir:
Kristín Björnsdóttir (2005). Likami og sál.
Hugmyndir, þekking og aðferðir i hjúkrun.
Reykjavík: Hiö íslenska bókmenntafélag.
María Finnsdóttir (maí 2007). Samtöl höfunda
þessarar greinar viö hana.
Nielsen, P. (höfundur). Þýdd af Jóni Hjaltalfn
landlækni. (1881). Hjúkrunarfræði eða leiðbein-
ing við hjúkrun sjúklinga. Reykjavík. Prentuð
hjá Einari Þórðarsyni.
Óttar Guðmundsson (2007). Kleppuri 100 ár.
Reykjavík: JPV útgáfa.
FRÉTTAPUNKTUR
Afburðanemi verðlaunaður
Vilborg Guðlaugsdóttir heitir ungur hjúkrunarfræðingur sem brautskráðist í vor með
afburðaeinkunnir. Þessar einkunnir hennar voru þannig að stjórn minningarsjóðs Kristínar
Thoroddsen ákvað að veita henni sérstaka viðurkenningu sjóðsins en slíkt gerist ekki á
hverju ári. Síðast voru þessi verðlaun veitt 2004. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn
í lok hjúkrunarþings. Gaman er að geta þess að móðir Vilborgar, Valgerður Gísladóttir
hjúkrunarfræðingur, er handhafi verðlaunar Kristínar Thoroddsen en þau fékk hún fyrir
afburðanámsárangur þegar hún útskrifaðist úr Hjúkrunarskóla íslands árið 1981.
30
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008