Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Page 34
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
„ÉG ER MJÖG ÁKVEÐIN MANNESKJA
OG GEFST ALDREI UPP“
- viðtal við Grazynu Maríu Okuniewska
„Ég á auðvelt með að aðlagast aðstæðum og er ekkert að velta mér upp úr því hvort mér finnst gaman eða ekki. Þetta er bara vinna og
mér finnst alltaf gaman að vinna og kynnast nýju fólki," segir Grazyna María Okuniewska frá Póllandi.
Erlendum hjúkrunarfræðingum hefur fjölgað talsvert á Islandi undanfarin ár.
Tímarit hjúkrunarfræðinga náði tali af einum þeirra og mun halda áfram að kynna
innflytjendur í hjúkrunarstétt á næsta ári. Grazyna María Okuniewska hefur skotið
sterkum rótum í íslensku samfélagi og ætlar að vera hér áfram.
Grazyna útskrifaðist úr hjúkrun 1985
í Póllandi. Á þeim tíma var námið á
menntaskólastigi. Námið var 5 ár, með
stúdentspróf eftir 4 ár og hjúkrunarpróf
eftir fimmta árið. Eftir útskrift vann
hún í 6 ár á almennri skurðdeild á
háskólasjúkrahúsinu í Gdansk. „Reyndar
ákvað ég að prófa að fara á barnadeild
en var þar þara í nokkra mánuði. Mér
fannst svo erfitt að heyra börn gráta
og sjá þeim liða illa að ég fór aftur
á skurðlækningadeild,“ segir Grazyna.
Áður en hún fór til íslands vann hún svo
í nokkur ár á minna sjúkrahúsi sem var
með um 800 rúm.
Afhverju fórstu til íslands? „Þetta var bara
ævintýramanneskja. í apríl 1991 var ég
að bíða eftir að fá landvistarleyfi í Kanada
en þetta dróst á langinn. Kunningi pabba
míns býr á íslandi. Hann ráðlagði mér að
prófa að skreppa til íslands og vinna í fiski
í svona sex mánuði á meðan Kanadaleyfið
var í vinnslu. Ég hafði aldrei unnið í fiski
og mér fannst það ekki mjög spennandi
en ákvað samt að slá til.“ Grazyna átti
eftir að ílendast á íslandi. Hún vann við
að pakka fisk, fyrst í Hnífsdal og svo
í Bolungarvík. Henni fannst það mjög
góð reynsla. „Þegar ég er að hjúkra fólki
32
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008