Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 36
„Ég legg mikla áherslu
á það að innflytjendur
læri íslensku."
pólskir hjúkrunarfræðingar þar en á
Landspítala eru að auki fjórir sem hafa
verið lengur á íslandi. Einnig eru nokkrir
sem starfa sem sjúkraliðar þar sem þeir
hafa ekki fengið íslenskt hjúkrunarleyfi.
Hlutverk Grazynu sem ráðgjafa er að
hjálpa til við aðlögun með því að veita
stuðning þegar viðkomandi líður ekki vel
í vinnu eða er óöryggur. Þá hefur hann
einhvern að tala við um reynslu sína á
sínu tungumáli. Þannig má fyrirbyggja að
vandamálin verða stærri.
Grazyna segir að pólskir hjúkrunar-
fræðingar séu almennt ánægðir í
vinnu. Viðhorf til erlendra starfsmanna
hafi breyst mikið undanfarin 15 ár og
umræðan orðin miklu opnari. Pólskum
hjúkrunarfræðingum sé yfirleitt vel tekið.
Hjúkrunarfræðingarnir gera, að sögn
Grazynu, sjálfir miklar kröfur til íslensku-
þekkingar. Hins vegar vilja íslendingar
stundum tala við þá á ensku og fyrir
bragðið verða tækifærin til þess að tala
íslensku færri. íslenskir hjúkrunarfræð-
ingar mættu hugsa meira um að tala
íslensku við erlenda hjúkrunarfræðinga
þó að það reyni á. „Það er betra fyrir
hinn erlenda hjúkrunarfræðing að byrja
setningu á íslensku en fara svo yfir á
ensku ef þarf,“ segir Grazyna. „Annars
fær maður ekki næga þjálfun í að tjá sig
á íslensku. Ég legg mikla áherslu á það
að innflytjendur læri íslensku. Það skiptir
máli f starfinu en líka til þess að geta
tekið þátt í samfélaginu, sækja fundi,
fara í leikhús og svo framvegis. Þá verður
maður einn af hópnum."
Nýlega var Grazyna á fundi sem pólski
ræðismaðurinn boðaði til þar sem
efnahagsþrengingarnir voru ræddar. Hún
segir að margir Pólverjar séu að hugsa
sér til hreyfingar. Sjálf ætlar hún að búa
hér áfram. „Margir innflytjendur lenda
í því eftir nokkur ár að eiga hvergi
heima í huganum en ég er ekki þannig
manngerð. Ég á heima bæði á íslandi og
í Póllandi og er bæði íslenskur og pólskur
ríkisborgari. Ég hef til dæmis haldið
tengslum við vinkonur mínar úr skólanum
í Póllandi. Margar þeirra hafa eins og ég
flust til útlanda og í dag á ég vinkonur út
um allt, í Berlín, London og New York.
En ég hef einnig kynnst fjölmörgu fólki
hér á íslandi. Mér leiðist ekki, sama hvar
ég er.“
HUGSAÐU VEL UM HUÐINA
Húðin okkar er viðkvæm og veðráttan á Islandi getur verið húðinm erfið.
Decubal viðheldur heilbrigði og ferskleika húðarinnar - allt árið um kring
Kynntu þér eiginleika Decubal og kveddu þurra húð.
ÞU FÆRÐ DECUBAL
í NÆSTA APÚTEKI
KVEÐJUM ÞURRA HUÐ
34
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008