Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Síða 41
Mat á árangri
Hægt er aö meta gagnsemi loftúða með því að láta sjúkling
blása í lofthraðamæli eða gera blásturspróf fyrir og eftir notkun
berkjuvíkkandi lyfs. Einnig kemur andþyngslastuðull að góðum
notum. Til eru mismunandi andþyngslastuðlar en ekki verður
hér tekin afstaða um val á einum ákveðnum.
Sóttvarnir
Eftirfarandi er haft eftir leiðbeiningum frá sýkingavörnum
Landspítala. Á flestum deildum Landspítala eru í notkun einnota
(má nota í sólarhring) loftúðatæki ætluð sama sjúklingi. Við
notkun geta loftúðatækin mengast af örverum úr umhverfinu og
orðið uppspretta sýkinga. Við meðhöndlun geta örverur borist í
loftúðatækið af höndum starfsfólks og sjúklingnum sjálfum. Því
er mikilvægt að skipta um eða þrífa loftúðatækin daglega og
jafnframt að þvo sér um hendur eða spritta hendurnar áður en
tækin eru handleikin. Ekki er óhætt að skola eða þvo loftúðatæki
með kranavatni vegna hættu á bakteríumengun, t.d. af völdum
pseudomonas, stenotropomonas eða legionella. Einungis skal
nota sæfða vökva (lyf) í úðann og viðhafa smitgátarvinnubrögð.
Sprittið hendur fyrir og eftir handfjötlun loftúðatækis og notið
eingöngu sæfða vökva (lyf) í úðann.
Meðferð á loftúðatæki ætluðu einum sjúklingi:
• Nota má loftúðatækið í einn sólarhring (merkja
með dagsetningu)
• Eftir hverja gjöf skal hella lyfjaafgangi úr
hylkinu, ekki skola.
• Látið hylkið þorna.
• Geymist þurrt í hreinum plastpoka milli
lyfjagjafa.
Meðferð á loftúðatæki ætluðu mörgum sjúklingum:
• Eftir hverja gjöf skal hella lyfjaafgangi úr
hylkinu, ekki skola.
• Daglega skal taka loftúðatækið í sundur og
þvo í þvottavél við 80-90°C.
• Sé loftúðatækið notað fyrir marga sjúklinga
skal þvo það í þvottavél við 80-90°C milli
sjúklinga.
• Alla hluta loftúðatækisins skal þurrka vandlega
eftir sótthreinsun.
• Geymist þurrt í hreinum plastpoka milli
lyfjagjafa.
Flokkunarkerfi hjúkrunar
Rétt er að nota eftirfarandi heiti við skráningu.
Hjúkrunargreining: Trufluð loftskipti - Ófullnægjandi öndun
Hjúkrunarmeðferð: Lyfjagjöf til innöndunar (NIC 2311)
Samantekt
Loftúði er rakaúði til að gefa lyf um öndunarveg, t.d.
berkjuvíkkandi lyf við bráða versnun teppusjúkdóms í lungum.
Skammtar eru samkvæmt fyrirmælum læknis og í flestum
tilvikum er lyfið notað í fáa daga. Kennsla á notkun loftúða er
undirstaða meðferðar. Mikilvægt er að gæta fyllsta hreinlætis
við meðhöndlun loftúðaáhalda til að draga úr hættu á
sóttmengun.
Heimildir:
Bourke, S.J. (2003). Lecture notes on Respiratory Medicine (6. útg.).
Massaohusetts: Blackwell Publishing.
Farmacevtiska specialteter i Sverige (2008). Fass 2008. Svíþjóð: Lakemedels
industriföreningens Service AB.
Gæðahandbók Landspítala. Gæðaskjal sýkingavarna. Loftúðatæki
(Friðarpípur) 11.03. Útgáfudagur 26.2.2008. Unnið af Ásdísi Elfarsdóttur.
Ábyrgðarmaður Sign'ður Antonsdóttir.
Lyfjastofnun (2008). Sérlyfjaskrá. Sótt 19. nóv. 2008 á http://lyfjastofnun.
is/Lyfjaupplysingar.
Ólafur Baldursson, Inga S. Ólafsdóttir og Gunnar Guðmundsson (2006).
Sjúkdómar í öndunarfærum. í Ari J. Jóhannesson og Runólfur Pálsson
(ritstj.), Handbók í lyflæknisfræði (3. útg.). Reykjavík: Háskólaútgáfan.
Landspítali.
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 5. tbl. 84. árg. 2008