Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Qupperneq 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Qupperneq 42
SKIPULAG VINNUTIMA OG HVILDARTIMAAKVÆÐI Cecilie Björgvinsdóttir. Þar sem stærsti hluti hjúkrunarfræðinga vinnur vaktavinnu er mikilvægt fyrir stéttina að þekkja hvíldartímaákvæðin sem bundin eru í kjarasamninga annars vegar og í tilskipun Evrópuþingsins um skipulag vinnutíma hins vegar. Þaö er afar mikilvægt fyrir hjúkrunar- fræðinga, sem sinna ábyrgðarmiklu starfi, að taka þá hvíld sem þeim ber á milli vakta, nema yfirmenn óski þess sérstaklega að þeir komi til vinnu fyrr og ávinni sér þar með frítökurétt (8 eða 11 klst. samfellda hvíld og/eða hvíldardagshvíld, sbr. hér á eftir). Stofnanir með fjölda vaktavinnumanna, þar sem næsti yfirmaður er ekki alltaf til staðar til þess að meta nauðsyn þess að starfsmaður mæti til vinnu áður en að tilskilinni hvíld er náð, þurfa að setja sér skýrar reglur varðandi hvíldartímaákvæði svo öllum sé Ijóst til hvers er ætlast. ísland er aðili að tilskipun Evrópuþingsins og Evrópuráðsins frá 4. nóvember 2003 um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma. Hvað varðar gildissvið ákvæða um skipulag vinnutíma og hvíldartímaákvæði vísa ég í samkomulag ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, samninganefndar ríkisins, Reykjavíkurborgar og launanefndar sveitarfélaga frá 23. janúar 1997 sem fjallar um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma og telst hluti kjarasamninga. Eftirfarandi skilgreiningar er að finna í tilskipun Evrópuþingsins frá 2003. „Vinnutími": Sá tími sem starfsmaður er við störf eða er vinnuveitanda innan handar og innir af hendi störf sín eða skyldur í samræmi við innlend lög og/eða venju (2003/88/EB). „Hvíldartími": Sá tími sem telst ekki til vinnutíma (2003/88/EB). „Allir starfsmenn skulu fáviðunandi hvíldartíma. Hugtakið „hvíld“ skal tjá í tímaeiningum, þ.e. dögum, klukkustundum og/eða hlutum þeirra.“ (Úr tilskipun Evrópuþingsins.) Vinnutíma ber að haga þannig að á hverju 24 klst. tímabili fái starfsmaður a.m.k. 11 klst. samfellda hvíld, hvíldin skal ná til tímabilsins 23-6 verði því við komið. Frá þessari reglu er frávik því heimilt er að stytta samfellda lágmarkshvíld starfsmanna í allt að 8 klst. þegar um skipulagðar vaktaskiptingar er að ræða, þ.e. starfsmaður fer af einni reglubundinni vakt á aðra. Þetta þýðir á mannamáli að 8 tíma hvíldartímaákvæðið gildir þegar starfs- maður fer, samkvæmt fyrirframskipulagðri vaktskrá, af kvöldvakt á morgunvakt eða af morgunvakt á næturvakt og svo framvegis. Fráviksheimildin um að stytta lágmarkshvíld úr 11 í 8 klst. á ekki við þegar starfsmaður lýkur yfirvinnu og fer yfir á reglubundna vakt. a. Dæmi: Morgunvakt frá 8-16 og nætur- vakt frá 23-8 á sama degi, starfsmaðurinn á að fara heim í síðasta lagi kl. 15 svo að 8 klst. hvíldin náist, ella mæta ekki fyrr en kl. 24, annars skapast frítökuréttur. b. Dæmi: Kvöldvakt frá 15:30-23:30, morgunvakt morguninn á eftir frá kl. 8- 16, komist starfsmaðurinn heim kl. 23:30 næst 81/2 klst. hvíld. Ljúki vaktinni hins vegar ekki fyrr en kl. 24 þá lýkur henni á yfirvinnu og starfsmanninum ber þá 11 klst. hvfld og á samkvæmt ákvæðum samningsins ekki að mæta til vinnu fyrr en kl. 11 næsta dag ella skapast frítökuréttur. c. Dæmi: Aukakvöldvakt frá 15:30- 23:30 og morgunvakt daginn eftir frá kl. 8-16 - starfsmanninum ber að fá 11 klst. hvíld á milli slíkra vakta og á því ekki að mæta aftur til vinnu fyrr en kl. 10:30 svo að hvíldin náist, annars skapast frítökuréttur. Óheimilt er að skipuleggja vinnu þannig að vinnutími á 24 klst. fari umfram 13 klst. d. Dæmi: 12 tíma morgun-, kvöld- og/ eða næturvaktir eru heimilar. e. Dæmi: Ekki er heimilt að skipuleggja 8 klst. morgun- og næturvakt á sama sólarhring nema því aðeins að báðar vaktirnar séu innan ramma 13 klst. Því er heimilt að skipuleggja t.d. 5 klst. morgunvakt og 8 klst. næturvakt en ekki 8 klst. morgunvakt og 9,5 klst. næturvakt. Ef hvíld er rofin einu sinni eða oftar með útköllum á 24 klst. tímabili skal miða við lengsta hlé innan vinnulotu með frítökurétti. Hvíldin miðast við 11 klst. 40 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.