Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Síða 43

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Síða 43
f. Dæmi : Morgunvakt frá 8-16, bakvakt frá 16-8. Morgunvakt morguninn eftir frá kl. 8-16. Útköll á bakvakt kl. 18-20 og aftur frá kl. 22-1. Lengsta hlé á vinnu er því frá 1-8 = 7 tímar, starfsmaðurinn hefði átt að fá 11 klst. hvíld sem skerðist um 4 klst. og því myndast 6 tíma frítökuréttur (4 x 1,5). Við sérstakar aðstæður er heimilt að stytta samfellda lágmarkshvíld í allt að 8 klst. og lengja vinnulotur í allt að 16 klst. þegar um er að ræða ófyrirsjáanleg atvik og bjarga þarf verðmætum, þegar almannheill krefst þess og/eða halda þarf uppi nauðsynlegri heilbrigðis- eða öryggisþjónustu. Sé þessari heimild beitt skal starfsmaðurinn fá 11 klst. hvíld á óskertum launum strax að lokinni vinnulotu. Á hverju 7 daga tímabili skal starfsmaður fá a.m.k. einn vikulegan hvíldardag sem tengist beint daglegum hvíldartíma. Starfsmaður á því að fá 35 klst. samfellda hvíld einu sinni í viku. Stofnun má með sérstöku samkomulagi fresta vikulegum hvíldardegi þar sem sérstakar ástæður gera slík frávik nauðsynleg þannig að í stað vikulegs hvíldardags komi tveir samfelldir hvíldardagar á hverjum tveimur vikum, þ.e. a.m.k. 59 klst. samfelld hvíld aðra hverja viku. „Take a break or you will break!“ (Vígorð kanadíska hjúkrunarfélagsins.) Frítökuréttur skapast fái starfsmaður ekki 11 klst. hvíld strax að lokinni a16 klst. vinnulotu á einum sólarhring. Frítökuréttur skal veittur í heilum og hálfum dögum í samráði við starfsmann svo fljótt sem auðið er. • Fyrir hverja klukkustund, sem hvíldin skerðist, myndast 1,5 klst. í frítökurétt • Uppsafnaður frítökuréttur skal koma fram á launaseðli • Greiða má 1/3 frítökuréttarins á tímakaupi dagvinnu hverju sinni • Við starfslok skal gera upp allan frítökurétt á sama hátt og orlof. Æðstu stjórnendur og aðrir þeir sem ráða vinnutíma sínum sjálfir geta eðli málsins samkvæmt ekki áunnið sér frítökurétt. Óskir þú eftir frekari upplýsingum getur þú sent fyrirspurn á cissy@hjukrun.is. ER LIFIÐ ERFITT? HJÁLPARSÍMI RAUÐA KROSSINS ER OPINN 17*17 ^ Rauöi kross fslands j sfminn' Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008 41

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.