Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Page 44
María Guðmundsdóttir, mariag@itn.is
KAUPMANNAHAFNARFERÐ ÖLDUNGADEILDAR
Hópurinn fyrir framan Karen Blixen-safnið í Rungstedlund.
Öldungadeild skipuleggur á hverju ári utanlandsferð fyrir félagsmenn. í ár var
farið til Kaupmannahafnar þar sem meðal annars var skoðað Sygeplejehistorisk
museum og Karen Blixen-safnið.
Upp úr hádegi þann 21. ágúst hittust 23
hjúkrunarfræðingar, félagar í öldungadeild
FÍH, við Tanngarð í Reykjavík og tóku
saman rútu til Keflavíkurflugvallar áleiðis
til Kaupmannahafnar. Tilefni þessarar
ferðar var að skoða Sygeplejehistorisk
museum í Kolding en safnið er í eigu
danska hjúkrunarfélagsins. Eftir þægilegt
flug var lent á Kastrupflugvelli um
kvöldverðarleytið. Þar beið okkar rúta
sem ók okkur á Hotel Kong Frederik við
Vestervoldgade og gat það ekki verið
betri staðsetning.Eftir að hafa þvegið
af sér ferðarykið hittumst við allar í
smáhressingarstopp, en sérríið höfðum
við forsjálar stjórnarkonur öldungadeildar
keypt á íslandi og borið með okkur til
Danaveldis, eins og það sé nú þurrt
land. Eftir að hafa skálað og boðið
okkur velkomnar til Köben snæddum við
kvöldverð á hótelinu og fórum eftir það
beint í háttinn.
Eftir morgunverð næsta dag var ekið af
stað klukkan 9 áleiðis til Kolding. Með
í för var Hanne Bækgard Andersen,
fyrrverandi formaður öldungadeildar
42
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008