Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Side 47
Heilsugæsluhjúkrunarfræðingur ársins
Á aðalfundi fagdeildar heilsugæslu-
hjúkrunarfræðinga hlaut Margrét
Héðinsdóttir útnefningu sem heilsu-
gæsluhjúkrunarfræðingur ársins 2008.
Margrét starfar í skólaheilsugæslu og
hefur gert lengi, eða um 11 ár innan
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á
þessum árum hefur hún unnið að
verkefnum innan skólaheilsugæslunnar
sem hafa haft víðtæk áhrif á líðan
barna og störf skólahjúkrunarfræðinga.
Hugmyndafræði hennar byggist
á að hver einstaklingur sé einstakur
og hlúa þurfi að og styrkja hvern og
einn samkvæmt því. Hún hefur verið staðfastur og ötull
talsmaður skólabarna sem allir voru að gefast upp á vegna
hegðunarörðugleika og oftar en ekki náði hún að snúa
fagfólki á sitt barn. í starfi sínu hefur hún breytt viðhorfum
og þátttöku skólahjúkrunarfræðinga frá því að huga aðallega
Margrét Héðinsdóttir, til hægri, tekur við útnefnin-
gunni úr hendi Sigrúnar Barkardóttur, fráfarandi for
manni fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga.
FRETTAPUNKTUR
að bólusetningum, vaxtarkúrvum og
sárum í að sinna vellíðan barna, ekki
síst andlegri, ásamt heilbrigðisfræðslu.
Hún þróaði heilbrigðisfræðsluna 6-H
heilsunnar og prófuðu hjúkrunarfræð-
ingar í Árbænum hugmyndina mörgum
árum áður en hún var tekin upp í
samvinnu við Lýðheilsustöð. Margrét
vann ásamt Guðrúnu Ólafsdóttur ötult
starf að þróun rafrænnar skráningar
innan skólaheilsugæslu, ísskrárinnar.
Markmiðið með ísskránni var að létta
skólahjúkrunarfræðingum störf sín en
jafnframt gera þau sýnilegri. Það tókst
mjög vel því einfalt og auðvelt er að skrá í ísskrána sem og
að fá út úr henni upplýsingar.
Margrét er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar
Tímarit hjúkrunarfræðinga henni hjartanlega til hamingju.
Hiúkrunarfræðideild
Umsóknarfresturfyrir meistara- og doktorsnám er 15. mars
www.hjukrun.hus
HEILBRIGÐISVISINDASVIÐ
Ta>
| ^p! HÁSKÓLI ÍSLANDS
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008
45