FLE blaðið - 01.01.2015, Blaðsíða 26
sjóð. í þrotabúum þar sem yfirfæranlegt skattalegt tap væri til
staðar þá væri hugsanlegt að nýta það á móti umræddri tekju-
færslu. í mörgum stórum þrotabúum er þó reyndin oft sú að
lýstar kröfur nema talsvert hærri fjárhæð heldur en yfirfæranlegt
skattalegt tap og í þeim tilvikum gæti komið til tekjufærslu sem
gengur á eignir þrotabúsins.
Stórt álitamál er hvort að þessi túlkun standist. Erfitt væri að
ímynda sér hvernig þessi skattlagning ætti að koma til fram-
kvæmda eða greiðslu í raun. Ef skiptastjóri hefur þegar greitt
út kröfur í þrotabúi, ætti skiptastjóri að bera ábyrgð á því að
endurheimta fjármuni frá kröfuhöfum sem þegar hafa fengið
greiðslur upp í sínar kröfur og afhenda skattyfirvöldum af því að
skattkrafan átti forgang?
Álitamálið er þó raunverulegt og má geta þess að skattyfirvöld
í Þýskalandi hafa gefið út sambærilegt álit þess efnis að við
slit eða gjaldþrotaskipti lögaðila þá mynda ógreiddar skuldir eftir
úthlutun allra eigna skattskyldar tekjur en endanleg niðurstaðan
þar í landi er enn óljós þar sem þýskir dómstólar hafa ekki stað-
fest þessa túlkun. Ljóst er að ef að vilji löggjafans hér á landi
er sá að eftirgefnar skuldir í tengslum við uppgjör þrotabúa eigi
ekki að koma til skattlagningar, þá er nauðsynlegt að kveða á
um það með skýrum hætti í tekjuskattslögunum.
Skattframtalsskil þrotabúa
Forsenda þess að þrotabú geti nýtt sér yfirfæranlegt skattalegt
tap, sem gæti verið mikilvægt ef skattlagning á eftirgjöf skulda
þeirra kemur til framkvæmda, er að það hafi verið gerð grein
fyrir rekstrartapinu með fullnægjandi hætti og eftirstöðvum
þess á því tekjuári þegar tapið myndaðist, sbr. 8. tl. 1. mgr. 31.
gr. tekjuskattslaga nr. 90/2003. Mikilvægt er því að ávallt hafi
verið talið fram fyrir þrotamanninn fyrir bæði tímabil fyrir og eftir
gjaldþrotaskiptin.
Framtalsskylda hvílir á á þrotabúum og skulu skiptastjórar
telja fram fyrir þrotabú, sbr. 2. mgr. 90. gr. tekjuskattslaga
nr. 90/2003, frá dagsetningu úrskurðar um gjaldþrotaskipti og
fram að skiptalokum. Þá segir ennfremur í 1. mgr. 78. gr. gjald-
þrotalaga nr. 21/1991 að skiptastjóri skuli sjá um reikningshald
fyrir þrotabúið og gefa skýrslur til yfirvalda um fjármuni þess og
rekstur eftir því sem þörf krefur. Ef einkahlutafélag er til dæmis
úrskurðað gjaldþrota 1. apríl 2014 þá erfyrsta uppgjörstímabilið
fyrir þrotabúið frá þeirri dagsetningu og til 31. desember 2014.
Ef að gjaldþrotaskiptum lýkur 26. júní 2015 þá markar sú dag-
setning lokareikning félagsins.
Skiptastjórar taka nánast aldrei við þrotabúum við áramót og
því þarf að líta til þess hvernig fara ber með framtalsskilin
fyrir tímabilið fyrri hluta ársins eða fram að gjaldþrotaskiptum
þegar um lögaðila er að ræða. Álitamál hefur verið uppi hvort
að félagsstjórn lögaðila beri að telja fram fyrir tímabil fram að
gjaldþrotaskiptum eða hvort að skiptastjórum beri að uppfylla
þá skyldu. Tekjuskattslögin eru skýr varðandi framtalsskylduna,
þ.e. samkvæmt 3. mgr. 90. gr. laga nr. 90/2003 ber stjórn fram-
talsskylduna fyrir lögaðilann, þ.e. fram að gjaldþrotaskiptum, og
samkvæmt 2. mgr. 90. gr. sömu laga þá ber skiptastjóri fram-
talsskyldu fyrir þrotabúið, þ.e. frá úrskurðardegi og fram að
skiptalokum.
Þrátt fyrir skýra lagaskyldu þá hefur ríkisskattstjóri talið að
skiptastjóra beri að sjá til þess að telja fram fyrir allt árið, þ.m.t.
tímabilið fram að gjaldþrotaskiptum. Þetta álit ríkisskattstjóra er
byggt á úrskurði yfirskattanefndar frá árinu 1995 nr. 1014/1995,
en um er að ræða úrskurð sem ekki hefur verið birtur opinber-
lega. í umræddum úrskurði var um að ræða lögaðila sem tekinn
var til gjaldþrotaskipta 22. júní 1992. Ekki var talið fram innan
tilskilins framtalsfrests árið 1993 og sætti þrotabúið álagningu.
Skiptastjóri kærði álagninguna og lagði fram skattframtal ásamt
ársreikningi vegna rekstrar þrotabúsins frá úrskurðardegi
um gjaldþrotaskipti, 22. júní 1993, til 31. desember 1992.
Skattstjóri hafnaði að fella niður álagninguna á grundvelli þess
að ekki hafi verið gerð grein fyrir starfsemi þrotamanns frá 1.
janúar 1992 til 21. júní 1992. Niðurstaða YSKN var sú að það
hefði verið skylda skiptastjóra að telja fram fyrir félagið allt frá
ársbyrjun ársins 1992, þvi það væri á ábyrgð skiptastjóra að sjá
til þess að þessum skyldum væri fullnægt, bæði vegna félags-
ins og þrotabús þess. Vísað var til þess að af þágildandi ákvæði
tekjuskattslaganna, sem er sambærilegt ákvæði 2. mgr. 90. gr.
laga nr. 90/2003, „leiðir ekki beint" að skiptastjórum sé skyld
að sjá um að skattskilum sé sinnt vegna tímabils fyrir gjald-
þrotaskipti. Á grundvelli almennra ákvæða gjaldþrotaskiptalag-
anna nr. 21/1991 um skyldur skiptastjóra og þess að félags-
stjórn væri ekki bær né henni kleift að annast framtalsskilin eftir
að félagið var tekið til gjaldþrotaskipta, var talið að skiptastjóra
bæri að semja skattskil félagsins fyrir allt árið.
Ríkisskattstjóri tekur undir þetta álit í niðurstöðu úrskurðar
YSKN nr. 1014/1995 og telur að skiptastjórum beri að telja fram
fyrir fyrri tímabil þrotamanns þegar um lögaðila er að ræða.
Vafi leikur á því hvort að þessi túlkun geti staðist á grundvelli
þess að tekjuskattslögin eru skýr hvað varðar framtalsskylduna,
þ.e. hún hvilir á stjórn félagsins fyrir tímabilið fram að gjald-
þrotaskiptum. Ekki er um skýran lagagrundvöll að ræða til að
leggja þessa skyldu á skiptastjóra. Eins hefur þeirri spurningu
ekki verið svarað hvernig fara ber með þrotabú lögaðila þar sem
bókahald er í mikilli óreiðu, jafnvel ekki til staðar, og framtals-
skilum hefur ekki verið sinnt í fleiri ár fram að gjaldþrotaskipum?
Að lokum má geta þess að framkvæmdin við skattskil þrotabúa
hefur ekki verið markviss, lítið eftirlit virðist vera með fram-
talsskilum þrotabúa og lengi vel hefur verið látið átölulaust hjá
ríkisskattstjóra þótt framtölum hafi ekki verið skilað. Ljóst er að
ef fyrra álitamálið varðandi skattskylda eftirgjöf hjá þrotabúum
kemur til framkvæmda, þá þurfa framtalsskil að vera i lagi varð-
andi þau félög sem hafa til staðar yfirfæranlegt skattalegt tap.
Þá þurfa skiptastjórar að bretta upp ermarnar og skila einnig
fyrir fyrri tímabil til að heimilt sé að nýta tapið.
Guðbjörg Þorsteinsdóttir
24 • FLE blaðið janúar 2015