FLE blaðið - 01.01.2015, Blaðsíða 11
alþjóðlegum stöðlunum. Ákveðið var að hraða vinnu við staðal-
inn þannig að fyrstu heildstæðu drög hans yrðu tilbúin fyrir jól
2014, þar sem fyrir liggur að ekki verður hægt að vinna mikið
við staðalinn fyrstu mánuðina 2015 vegna anna þeirra sem eru
í vinnuhópunum. Haldnir voru tveir símafundir í nóvember og
desember þar sem farið var yfir fyrirliggjandi drög, en þeir
reyndust ekki eins skilvirkir og fundir þar sem allir hittast.
Ákveðið var að næsti fundur yrði 6. janúar 2015 í Osló.
Fyrstu heildstæðu drög staðalsins voru kynnt fyrir öllum vinnu-
hópum þann 12. desember. Staðallinn skiptist (sex kafla:
1. Markmið óháðrar endurskoðunar
(e. overall obejectives of the Independent Auditor)
2. Samþykki verkefna
(e. acceptance or continuance of an audit engagement)
3. Skipulagning
(e. planning)
4. Áhættumat
(e. risk assessment)
5. Viðbrögð endurskoðanda við metinni áhættu
(e. the auditor's response to assessed risk)
6. Niðurstöður og áritun
(e. concluding and reporting)
Staðallinn sjálfur, eins og hann liggur fyrir í núverandi drögum,
er alls 18 blaðsíður að lengd, en við staðalinn munu bætast
grundvallarreglur (e. framework), skilgreiningar (e. glossary of
terms) og leiðbeiningar (e. guidance). Hugtökum sem fram
koma í ISA stöðlunum hefur ekki verið breytt og er það mat
hópsins að staðallinn sé auðveldur aflestrar. Næstu skref eru
að leggja fram drög til kynningar á framkvæmdastjórafundi
NRF þann 20. janúar n.k., en fram að þeim tíma mun staðallinn
ekki fara í dreifingu. Það er von vinnuhópsins að sumarið 2015
nýtist til raunverulegra prófana á staðlinum, prófana á raunveru-
legum verkefnum. Ef það gengur eftir má ætla að endanlegur
staðall verði tilbúinn í júní 2016. Þegar, og ef, sá staðall verður
samþykktur verður næsta skref að leita samþykkis notkunar
hans og gildistöku hér á landi, þannig að hægt verði að nota
hann við endurskoðun lítilla fyrirtækja, sem jafnvel eru nú
þegar undir stærðarmörkum laga varðandi endurskoðunar-
skyldu.
Jón Rafn Ragnarsson
Vinnuhópur um norrænan staðal. Frá vinstri: Hrafnhildur, Davíð, Jón Rafn og Ljósbrá.
FLE blaðiðjanúar2015 • 9