FLE blaðið - 01.01.2015, Blaðsíða 15

FLE blaðið - 01.01.2015, Blaðsíða 15
Mikill skóli að vinna erlendis Viðtal við Erling Tómasson ístenskir endurskoðendur starfa víða í fjölbreyttum störfum í hinum ýmsu löndum. Ritnefnd FLE ræddi við endurskoðandann Erling Tómasson á dögunum. Erling býr og starfar í Svíþjóð, en áður en hann fluttist búferlum þangað, var hann einn af eigendum Deioitte. Hve lengi hefur þú starfað í faginu og hvar hefur þú starfað? Ég hóf störf hjá Deloitte árið 2000 samhliða háskólanámi og starfaði þar fram á vor 2012. Hvað varstu að vinna við hjá Deloitte og hvað stóð uppúr? Ég byrjaði í þessu hefðbundna uppgjör, skattframtöl og einfaldari endurskoðunarvinna. Eftir löggildinguna einbeitti ég mér að IFRS stöðlunum og síðustu árin var það fjármálaráðgjöfin, mest i áreiðanleikakönnunum. Það sem stendur uppúr er að hafa fengið tækifæri til að prófa mismunandi störf á mismun- andi sviðum. í raun var allt mjög skemmtilegt, hafði í raun ekki tíma til að staðna eða verða leiður á neinu. Hvenær hlaustu löggildingu í endurskoðun? Ég man eins og gerst hafi í gær þegar ég opnaði bréfið frá Árna Tómassyni síðla árs 2004, það var góður dagur. Nú ert þú búsettur í Svíþjóð, hvað kom til að þú fluttir þangað? Konan er læknir og við fluttum því hingað til Uppsala sumarið 2012 til þess að hún gæti klárað sérnámið sitt í kven-og fæðingar- lækningum. Hvað hefur þú tekið þér fyrir hendur í Svíþjóð? í byrjun var aðalmálið að koma sér fyrir. Það reyndist ansi erfitt að finna húsnæði hér í Uppsölum, en við höfum núna á tveimur og hálfu ári búið á fjórum mismunandi stöðum. Annars voru fyrstu mánuðirnir fæðingarorlof heima með börnin tvö. Að því loknu stundaði ég sænsku nám í um það bil 6 mánuði. Ég byrjaði svo að vinna í ágúst 2013, ári eftir að við komum hingað. Hvernig gekk íslenskum endurskoðanda að fá vinnu í Svíþjóð? Þetta varansi strembið, ég dældi úttugum umsókna á Uppsalasvæðinu um störf sem tengdust reikningshaldi og fjármálum. Ég var búinn að sækja um háskólanám þegar hreyfing komst á hlutina, en Deloitte í Stokkhólmi bauð mér starf við ráðgjafaþjónustu. Til stóð að ég myndi byrja þar í ágústmánuði 2013 þegar mér bauðst óvænt fjármálastjórastarf hér í Uppsölum. Að sleppa við að þvælast með lest á hverjum degi til Stokkhólms og einnig möguleikinn á að komast "hinu megin við borðið" gerðu það að verkum að valið var einfalt og skildu Deloitte menn stöðu mína vel. Hvað heitir fyrirtækið og hvað fæst það við? Fyrirtækið heitir C-RAD AB, við erum tæplega 30 manns í vinnu með starfsemi í Sviþjóð, USA, Þýskalandi, Frakklandi og Kína. Meginstarfsemin felst í framleiðslu og þróun á hugbúnaði og tækjabúnaði sem notaður er við krabbameinsgeislameðferð. Við- skiptahugmyndin gengur út á að að auka nákvæmni og skilvirkni geislameðferðar til að bæta batamöguleika krabbameinssjúk- linga. FLE blaðið janúar 2015 • 13

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.