Ráðunautafundur - 15.02.1998, Blaðsíða 212
204
Helstu breytingarnar eru :
• Viðmiðunarflokkarnir eru 0-2 og R-3 með um 60% af allri lambakjötsfram-
leiðsiunni.
• Mjög vel gerðir skrokkar með litla fitu eru í efsta flokki með verðhlutfallið 105.
• Vel gerðir skrokkar með litla fitu eru í næstefsta flokki með verðhlutfallið 103.
• A móti kemur verðfelling á sæmilega holdfylltum og frekar feitum skokkum.
• Verðhlutfall á feitum skrokkum hækkar almennt.
• Verðhlutfall fyrir illa gerða skrokka lækkar.
Heildarniðurstaðan er um 1,5% hækkun á verði til bænda.
6. tafla. Tillaga að nýjum verðlagsgrundvelli fyrir kindakjöt.
Verðflokkar Gæðaflokkar kr/kg Verðhlutfall Magn, kg % Alls, kr
1 E-l, E-2, U-l.U-2 255,15 105,7 12 0,16 3.062
2 E-3, U-3, R-2 250,29 103,7 665 8,7 166.443
3 E-3+,U-3+,R-l,R-3, 0-2 243 100,7 3535 46,36 859.005
4 R3+, 03 233,38 96,7 2030 26,62 473.761
5 E-4, U-4, 0-1, 0-3+, VO-3 223,56 92,6 230 3,02 51.419
6 R-4, 0-4, P-2 199,26 82,6 306 4,01 60.974
7 EURO-5, Pl,3,3+,4,5,VO-4, VP-1, VHO-3 184,68 76,5 167 2,19 30.846
8 VHO-4,VHP-l, FO-3, FO-4, FP-1 111,78 46,3 422 5,53 47.171
9 FO-4, FP-1 85,05 35,2 236 3,10 20.072
10 HO-3, HO-4, HP-1 26,73 11,1 22 0,29 588
Alls 224,70 7625 100 1.713.335
Ahrifá verð til bœnda
í 8. og 9. töflu eru sýnd áhrif breytingarinnar á
verð til bænda.
Heildarmunur er svipaður og hækkun á
grundvelli. í einu sláturhúsi er munurinn 2,5%
og í öðru er í raun um lækkun að ræða miðað
við hin húsin. Mesta hækkun hjá innleggjenda
er 4,4% og mesta lækkun 1,2%. Munur á verðmæti einstakra skrokka er hins vegar meiri, eða
allt að 36% til hækkunar og 23% til lækkunar. Þessi munur jafnast út þegar dæmið er gert upp
í heild sinni.
í haust var slátrað lömbum frá þremur sauðfjárbúum vegna Evrópuverkefnis um lamba-
kjöt. Niðurstöður kjötmats og verðlagningar eru í 9. töflu.
Nokkur munur er á milli búa en árangurinn úr nýja kjötmatinu er oft lítið betri og
stundum lakari er í núverandi kerfi. Skýringin er sú að kjötið frá þessum bæjum kom almennt
mjög vel út úr núverandi kjötmati.
7. tafla. Verðhlutföll í nýjum verðlagsgrunni.
I 2 3 3+ 4 5
EogU 105 105 103 100 92 75
R 100 103 100 96 82 75
O 92 100 96 92 82 75
P 75 82 75 75 75 75