Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 6
6 Fréttir Páskablað 22.–29. mars 2016 FermingargjöFin í ár! fæst í öllum verslunum n1 Þráðlausu Touch heyrnartólin eru seld á N1 um allt land. Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki. Einnig er hægt að svara í símann með þeim. AðAlfundur BÍ 2016 Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf • Skýrslur frá starfsnefndum • Kosningar* • Lagabreytingar • Önnur mál *Framboð til formanns BÍ þarf að berast skrifstofu BÍ ekki síðar en tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund. BÍ félagar eru hvattir til að mæta Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands árið 2016 verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl n.k. að Síðumúla 23 3. Hæð, 108 Reykjavík þar sem félagið er til húsa og hefst fundurinn stundvíslega kl. 20.00 fimmtudaginn 28. apríl kl. 20.00 í Síðumúla 23 Sofa vært í pappakössum n Erna talar af reynslu og mælir með finnska barnaboxinu n Þingmenn vilja innleiða slíka vöggugjöf hér Þ etta kom að frábær- um notum. Það er allt í þessu sem maður þarf frá fæðingu til níu mánaða. Fötin spanna allar stærð- ir þar á milli. Og það er bókstaflega hugsað fyrir öllu,“ segir Erna Hrund Hermannsdóttir, lífsstílsbloggari á Reykjavík Fashion Journal, sem hef- ur góða reynslu af finnsku barna- boxunum sem hópur þingmanna vill nú að skoðað verði að innleiða sem vöggugjöf til nýbakaðra for- eldra hér á landi. Um er að ræða veg- lega pappakassa sem innihalda ótal nauðsynjavörur fyrir ungbörn jafnt sem foreldra auk þess sem kassarn- ir sjálfir koma með dýnu og hafa ver- ið notaðir sem ungbarnarúm í Finn- landi um áratugaskeið. Vilja íslensk barnabox Á föstudag lögðu sjö þingmenn úr þrem- ur flokkum fram þingsályktunar tillögu um að fela heilbrigð- isráðherra að skipa starfshóp til að kanna þörfina á og grund- völlinn fyrir opin- berum stuðningi við verðandi for- eldra í formi vöggu- gjafar sem inni- haldi nauðsynjavöru fyrir ungbörn. Gjöf- in yrði í anda þess sem gert hefur ver- ið í Finnlandi síðan á fjórða áratug síðustu aldar. Í dag geta foreldrar í Finnlandi valið um að fá peninga- styrk eða barnsburðarpakka sem er hrein viðbót við hefðbundna fæðingarstyrki og fæðingarorlof. Flestir velja víst barnaboxið sem inniheldur flest það sem ungbörn þurfa fyrstu mánuðina, svo sem föt, bleiur, sæng, dýnu, sængurver, sam- fellur, svefnpoka, útigalla, húfur, vettlinga, sokkabuxur og ótalmargt fleira í fjölmörgum mismunandi stærðum. Þar er meira að segja að finna dömubindi, geirvörtukrem og brjóstapúða fyrir nýbakaðar mæð- ur sem og smokka fyrir foreldrana. Síðast en ekki síst þá hefur pappa- kassinn sjálfur nánast frá upphafi verið nýttur sem ungbarnarúm, en kassinn og fötin í honum eru gjarn- an hönnuð af finnskum hönnuðum og er endurskoðuð árlega. Fullyrt er að þetta framtak Finna hafi átt stór- an þátt í að draga úr vöggudauða þar í landi á síðustu öld, og er tíðni ung- barnadauða í Finnlandi nú með því lægsta sem gerist í heiminum. Áætlaður kostnaður 130 milljónir „Vöggugjöf af þessum toga er tákn- ræn með þeim hætti að hún býður hvern nýjan þjóðfélagsþegn velkom- inn,“ segja flutningsmenn tillögunnar í greinargerð hennar. Þar seg- ir að opin bert útboð fari fram til að ákveða hvaða vörur fari í pakkann hverju sinni en sam- kvæmt opinberum tölum frá Finnlandi nam kostnaður rík- isins vegna barnapakkans 653.049 evrum í september 2015 fyrir 3.499 barnsburðar- pakka. Eða um 187 evrur á hvern pakka sem jafngildir um 26 þúsund krónum. Er gróflega áætlað, miðað við meðaltal fæddra barna á Íslandi frá 2006–2010 sem var 4.748 börn, að kostnaður íslenska ríkisins af þessu gæti numið um 120–130 milljónum króna á ári. „Með þessu móti mætti í senn tryggja nýfæddum börnum nauðsynlegan útbúnað og spara nýbökuðum foreldrum bæði fyrir- höfn og peninga sem kæmi sér sér- staklega vel fyrir þá foreldra sem hafa lítið á milli handanna. Með þessari framkvæmd er einnig auðveldara en ella að hafa eftirlit með því að vörur sem ungbörn nota uppfylli örygg- iskröfur og séu ekki heilsuspillandi. Barnsburðarpakkinn í Finnlandi er með þeim hætti að allir eiga rétt á honum, óháð fjárhagsstöðu. Pakk- inn tryggir þannig ákveðinn jöfn- uð fyrir öll börn og foreldra. Inni- hald íslenska pakkans gæti verið innlend framleiðsla og með því væri stutt við innlendan markað,“ seg- ir í greinargerðinni. Flutningsmenn vilja að gerð verði fýsileika-, þarfa- og kostnaðargreining við að bjóða nýfædda þjóðfélagsþegna velkomna með svipuðum hætti hér. Tumi fékk barnabox Erna Hrund og eiginmaður hennar, blaðamaðurinn Aðalsteinn Kjartans son, fengu finnskt barnabox að gjöf þegar þau eignuðust annan son sinn, Tuma, í fyrra. Að sögn Ernu nýtur hún enn góðs af því sem finna mátti í kassanum. Erna komst í samband við fyrirtæki í Finnlandi, Finnish Baby Box, sem stofnað var af þremur finnskum feðrum sem þótti svo gaman að fá sína kassa frá finnska ríkinu á sínum tíma að þeir ákváðu að fara í útrás með barna- boxin og kynna fyrir umheiminum. Í gegnum vinsæla bloggsíðu sína og samstarf við Moomin-vefverslunina fór svo að Ernu og Aðalsteini áskotn- aðist sérstakur Múmínálfakassi fyrir Tuma. „Ég kynnti hann á blogginu mínu og fékk alveg svakalega góðar við- tökur. Ef við hefðum vitað að það væri svona mikið í þessum kassa hefðum við ekki þurft að kaupa neitt. Það er ótrúlegt hvað þeir koma miklu í þessa kassa. Öllu er raðað eftir kúnstarinnar reglum. Tumi svaf síðan í kassanum sjálfum fyrstu fjóra eða fimm mánuðina. Hann lúrði í þessu drengurinn og hafði það voða kósí. Núna sefur Tumi í vagninum í kerrupokanum sem fylgdi kass- anum og í útigallanum sem fylgdi. Þarna var að finna fínustu ullarvörur frá Finnlandi og það er skemmtilegt hvernig þeir nota þetta til að vekja athygli á finnskum fötum, barna- vörum og framleiðslu.“ Erna Hrund er ekki í nokkrum vafa um að þetta yrði kærkomin og bráðsniðug lausn fyrir Íslendinga. „Hér á Íslandi gæti ríkið farið í samstarf við íslensk vörumerki sem gætu nýtt þetta til að kynna sínar vör- ur. Ég held að það væri ótrúlega flott fyrir íslenska ríkið að gera þetta. Ég mæli alveg hiklaust með þessu.“ n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Mælir með kassanum Erna Hrund fékk barnabox frá finnskum framleiðanda fyrir son sinn Tuma sem fæddist í fyrra. Hún mælir hiklaust með því að Íslendingar taki upp þennan finnska sið. „Ég mæli alveg hik- laust með þessu Svaf vært Tumi Aðal- steinsson lét fara vel um sig í finnska pappakassanum sem foreldrar hans fengu þegar hann var nýfæddur. Föt og fleira sem fylgdi með er enn í notkun. MyndIR ERna HRund
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.