Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 26
Páskablað 22.–29. mars 201626 Fréttir
Gerum við Apple vörur
iP
one í úrvali
Sérhæfum okkur í Apple
Allskyns
aukahlutir s: 534 1400
Sjóðurinn rukkaði
skuldlausan mann
Reyndi að innheimta jöfnunargjald þrátt fyrir að viðskiptavinur hefði greitt upp íbúðalán sitt
É
g var ósáttur við viðmótið
sem ég fékk og þá staðreynd
að ég fékk engar útskýringar
á því hvernig þessi innheimta
var tilkomin,“ segir William
Sigurjón Tracey, sem háði stutta
en snarpa baráttu við Íbúðalána
sjóð út af svokölluðu jöfnunargjaldi
sem stofnunin reyndi að innheimta
af honum, þrátt fyrir að hann væri
búinn að greiða upp íbúðalán sitt
og væri skuldlaus við stofnunina.
Innheimta þrátt fyrir skuldleysi
Forsaga málsins er sú að William
greiddi nýlega lokagreiðsluna af
láni hjá Íbúðalánasjóði. Í fram
haldinu fékk hann sent frumrit
skuldabréfsins auk staðfestingar
þess efnis að hann væri skuldlaus
og veðláninu hefði verið aflýst af
fasteign hans. Það kom honum
því verulega á óvart þegar hon
um barst greiðsluseðill frá Íbúða
lánasjóði upp á tæpar 40 þúsund
krónur og var ástæða innheimt
unnar tilgreind sem áðurnefnt
jöfnunargjald. „Mér þótti þetta
frekar einkennilegt og setti mig því í
samband við Íbúðalánasjóð til þess
að fá einhver svör við því hvernig á
þessu stæði,“ segir William.
Benti bara á töluna á
tölvuskjánum
Eitthvað stóð á því að hann fengi
útskýringu á sínum málum og því
fór hann niður á skrifstofu sjóðs
ins. „Þar benti starfsmaðurinn í
raun bara á töluna á tölvuskjá og
vildi meina að það væri staðfesting
á skuldinni,“ segir William. Eins
og áður segir var hann engu nær
um hver ástæða innheimtunnar
var auk þess sem starfsfólk Íbúða
lánasjóðs var fáskiptið í hans garð.
„Ég benti þeim á að ég væri búinn
að fá staðfestingu á skuldleysi og
því væri þessi innheimta einkenni
leg í meira lagi. Upphæðin sem slík
skiptir mig ekki miklu máli en rétt
skal vera rétt. Ég fékk hins vegar
engar upplýsingar hvernig stóð á
þessu og starfsfólkið sem ég ræddi
við virtist ekki vita það heldur,“
segir William. Hann kvaddi starfs
mennina því með þeim orðum að
það kæmi ekki til greina að hann
greiddi þetta gjald.
Afsökunarbeiðni í kjölfar
fyrirspurnar DV
Í kjölfar þess að DV fékk upplýs
ingar um málið var send fyrir
spurn til Íbúðalánasjóðs þar sem
skýringa var leitað. Það var gert á
þriðjudegi í síðustu viku. DV hefur
ekki enn fengið svar við fyrirspurn
sinni en daginn eftir hafði yfir
maður hjá Íbúðalánasjóði sam
band við William og tilkynnti hon
um að málið hefði verið látið niður
falla. „Þá var komið allt annað
hljóð í strokkinn. Hún tjáði mér
að mistök hefðu átt sér stað og
baðst afsökunar á óþægindunum.
Það hefði átt að innheimta þessa
meintu skuld jafnt og þétt sam
hliða hverjum gjalddaga en það
hefði misfarist. Það er ekki hægt að
staðfesta skuldleysi og halda síðan
áfram innheimtu,“ segir William
og kveðst nokkuð sáttur við mála
lok. „Það er mikilvægt að hafa uppi
gagnrýna hugsun í samskiptum við
stofnanir. Þær eru ekki óskeikular,“
segir William. n
Íbúðalánasjóður Reyndi að innheimta jöfnunargjald af viðskiptavini þrátt fyrir að lánið
væri uppgreitt og búið væri að aflýsa því af eign viðkomandi. MynD SIgtryggur ArI
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Ég fékk hins
vegar engar upp-
lýsingar hvernig stóð á
þessu og starfsfólkið sem
ég ræddi við virtist ekki
vita það heldur.
allar gerðir
skreytinga
Kransar, krossar,
hjörtu og kistu-
skreytingar
Smáralind - S: 578 5075 - www.bjarkarblom.iS
Persónuleg og
fagleg þjónust
a