Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Side 29
Páskablað 22.–29. mars 2016 Fréttir Erlent 29
E
N
N
E
M
M
/
N
M
7
4
2
1
2
89.990 kr. Samsung Level U heyrnartól að verðmæti 14.490 kr. fylgja öllum gerðum S6.
32GB 16MP 5,1”
4G
Samsung Galaxy S6
Liggur svo vel í lófa að fermingarbarnið þreytist ekki á að taka
selfí með veislugestum.
119.990 kr.
32GB 12MP 5,1”
4G
Samsung Galaxy S7
Fermingarbarnið getur hringt í alla ættina til að þakka fyrir sig
án þess að hlaða símann.
Ofursnjallar
fermingargjafir
Hág ða
KauPauki
„Sá eftir þessu frá fyrsta degi“
n Bandaríkjamaður gekk til liðs við ISIS n Flúði eftir fyrsta mánuðinn
É
g tók slæma ákvörðun,“ segir
26 ára Bandaríkjamaður sem
handtekinn var af Kúrdum
í Írak í liðinni viku. Maður-
inn ferðaðist fyrir nokkru frá
Bandaríkjunum til Tyrklands með
það fyrir augum að ganga til liðs við
ISIS og það gerði hann samkvæmt
sjónvarpsviðtali sem birt var í Írak
síðastliðinn fimmtudag. Reuters
greinir frá þessu.
Kúrdískir yfirmenn hersins
greindu frá því á mánudag í síðustu
viku að bandarískur ríkisborgari,
skeggjaður og svartklæddur, hefði
gefist upp, eftir að hafa verið um-
kringdur nærri þorpinu Golat í
norðurhluta Íraks. Á ökuskírteini,
skráðu í Virgíníu í Bandaríkjun-
um, sem maður hafði í fórum sín-
um, kom fram að hann heitir Kweis
Mohammed Jamal.
Niðurlútur en heilsuhraustur
Í myndbandinu má sjá að Kweis
virðist niðurlútur en við góða
heilsu. Hann gerði grein fyrir ferð-
um sínum frá Bandaríkjunum til
Mosul og hvernig hann flúði frá
ISIS og endaði í höndum Pesh-
merga, hersveitum írakskra Kúrda.
Kweis sagðist hafa flogið frá Banda-
ríkjunum til London í desember og
þaðan til Amsterdam. Frá Hollandi
flaug hann til Tyrklands og hitti
þar konu frá Mosul, sem sagð-
ist geta hjálpað honum að komast
til íröksku borgarinnar en Mosul
hefur tilheyrt yfirráðasvæði ISIS
frá árinu 2014. „Við byrjuðum að
kynnast og hún þekkti einhvern
sem gat flutt okkur frá Tyrklandi til
Sýrlands, og frá Sýrlandi til Mosul,“
sagði maðurinn.
Eftir nokkrar mislangar bílferðir
skildi leiðir þeirra og Kweis hélt
áfram, í fylgd nokkurra liðsmanna
ISIS, til Mosul. Þar kom hann í hús
þar sem um 70 manns bjuggu, þar
á meðal erlendir liðsmenn ISIS.
Allir höfðu þurft að láta vegabréfin
sín af hendi. Í hópnum voru Rúss-
ar, Úsbekar, Eygptar, Pakistanar og
Marokkómenn. Kweis kveðst hafa
verið eini Bandaríkjamaðurinn.
Lærðu um Guð og báðu
Kweis lýsti í viðtalinu daglegu
lífi sem nýliði ISIS. „Við báðum,
nærðumst og lærðum um trúna í
um átta stundir á dag,“ sagði hann.
„Það reyndist mér afar þungbært
að búa þarna.“
Eftir að hafa tilbeðið Guð í
mánuð fékk hann nóg og ákvað að
flýja. „Ég gat ekki fellt mig við hug-
myndafræði þeirra,“ sagði hann í
viðtalinu. „Þegar það rann upp fyrir
mér varð mér ljóst að ég þurfti að
flýja.“
Sá eftir þessu
Hann fann mann sem gat ekið hon-
um að tyrknesku landamærunum,
þar sem hann komst í samband við
Kúrda. „Það var slæm ákvörðun
að fara með konunni til Mosul.
Ég hugsaði ekki rökrétt og sá eftir
þessu frá fyrsta degi.“
Meira en 250 Bandaríkjamenn
hafa gengið til liðs við ISIS í Sýr-
landi og Írak frá árinu 2011, sam-
kvæmt úttekt sem unnin var fyrir
bandaríska þingið í september.
Áttatíu menn og konur hafa ver-
ið dregin fyrir dóm fyrir tengsl sín
við ISIS og af þeim hafa 27 verið
sakfelldir. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
ISIS Maðurinn gat ekki fellt sig við hugmyndafræðina.
Flúði Kweis Mohammed Jamal tók slæma ákvörðun.
„Þegar það
rann upp fyrir
mér varð mér ljóst að ég
þurfti að flýja.