Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Side 30
Páskablað 22.–29. mars 2016 Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18, Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur Sími: 660 1942 • marpol.is Alvöru kísilhreinsir sem virkAr! Frábær á sturtugler, baðkör, vaska, keramikhelluborð, bakaraofna og margt fleira. 30 Fréttir Erlent Þau leita að gullinu Leggja líf sitt að veði fyrir 600 krónur á dag í gullnámum í Vestur-Keníu F jölmörg fyrirtæki hafa fengið réttindi til að leita að gulli í Vestur-Keníu, bæði erlend og kenísk fyrirtæki. Gulliðnað- urinn er þrátt fyrir það enn að ganga í gegnum vaxtarskeið með tilheyrandi vaxtarverkjum. Stærstu gullsvæði Keníu eru að mestu enn ókönnuð, það er, þau hafa ekki enn verið fullnýtt. Þangað sækja nú þúsundir dagverkamanna sem og einyrkjar og námuverka- menn sem vilja komast yfir gull eða fá atvinnu. Nýjustu kannanir kenískra stjórnvalda benda til þess að í Migori í Vestur-Keníu séu gríðarstórar og verðmætar gullnámur og úr gæti orðið eitt stærsta gullæði Afríku. Mjög líklegt er að einstaklingum verði bannað að grafa eftir gulli og stærstu svæðin verði seld, eða leyfi til að grafa þar, hæstbjóðanda. Ljósmyndari EPA heimsótti námuverkamennina í Keníu. Þeir leggja líf sitt í hættu á hverjum degi til að starfa fyrir lágt kaup. Þeir eru útsettir fyrir kvikasilfurseitrunum og námurnar geta auðveldlega hrunið við minnsta rask. En dagverkamenn fá greidda um 3–5 dollara á dag fyrir störf sín, um 600 íslenskar krónur. Vegna námanna er atvinnuleysi tiltölulega lítið hjá ungmennum, en þar sem reglugerðum og öryggis- ráðstöfunum er sárlega ábótavant leggur fólkið sig og framtíð sína í talsverða hættu. Oft fá börn vinnu í námunum. Lítill sem enginn ör- yggisbúnaður er til staðar og fólkið hefur ekki efni á að verða sér sjálft út um hann. Talið er að gullnámurnar í Migori í Keníu standi undir 34 tonnum ár hvert, sem þýðir að ríkið sjálft fær um 670 milljónir dollara árlega, sem gæti hæglega leitt til mikils gullæðis. Hvort það skilar sér til starfsmannanna á nokkurn hátt er ekki víst, en eins og sést hér á myndunum leggja þeir mikið á sig til að skila sínu. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is  Á niðurleið Dagverkamað- ur býr sig undir að fara niður í námu til að sækja málmgrýti með gullútfellingum.  Dýpra Hér er námuverkamaður kominn 50 metra undir yfirborð jarðar. Hann er á leið dýpra niður í leit að meira gulli. Mörg handtök Kona sækir vatn sem svo verður hellt yfir málmgrýti sem hefur verið brotið niður til að sækja gullútfellingar. Til hliðar má sjá búnaðinn sem fólkið notast við, sem allur hefur verið gerður á staðnum og útbú- inn af starfsfólkinu til að auðvelda því handtökin. Myndir EPA  Upp úr kafinu Hér kemur námuverkamaður upp úr námunni. Eins og sést hefur hann ekki neinn sérstakan öryggisbúnað, nema ljósið á höfðinu.  Sölumenn Gullsölumaður sýnir hvernig eitt lítið stykki af gulli er vigtað. Þetta í lófa hans, er eitt gramm og verður selt á 31 dollara, sem er jafngildi fimm daga launagreiðslu til starfsmanns í námunni.  Flutt á milli staða Balinn á höfði konunnar er fullur af málmgrýti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.