Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 35
Fólk 35Páskablað 22.–29. mars 2016
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
„Dópið var deyfilyf fyrir kvíðann“
enda var þetta gaurinn sem sá um
að skaffa dópið fyrir alla og ég átti
ekki neitt. Þarna áttaði ég mig á því
að þetta voru ekki vinir mínir, þetta
voru neyslufélagar. Þetta varð til
þess að ég fór að sjá á hvaða braut ég
var kominn. Þetta var ekki lífið sem
ég vildi. Þarna ákvað ég að hætta.“
Hann er þakklátur fyrir að hafa
haft vit fyrir sjálfum sér. Það sama
gildir ekki um marga af gömlu
neyslufélögunum sem enduðu á
götunni eða á Hrauninu. Nokkrir
gáfust upp og bundu enda á líf sitt.
„Mér tókst að hætta sjálfur og ég
tek því ekki sem gefnu. Ef ég hefði
haldið neyslunni áfram vil ég ekki
vita hvar ég hefði endað.“
Kvíðinn og allt sem honum fylgdi
fór þó ekkert eftir að neyslan hætti.
„Ég klúðraði þó nokkuð mörgum
störfum út af kvíðanum. Ég þorði
aldrei að hringja mig inn veikan af
því að mér leið svo illa andlega.“
Lyfin breyttu öllu
Þegar Þórhallur var 18 ára kom
bróðir hans, sem sjálfur þekkir ein-
kenni kvíða, honum til bjargar og
benti honum á að leita sér til hjálp-
ar. Þórhallur hlustaði og fékk í kjöl-
farið lyf við kvíðanum. Í kjölfarið
varð hann breyttur maður. „Þetta
var eins og að losna við risastóran
steypuklump úr höfðinu.“
Hann tekur lyfin enn í dag, það er
jafn eðlilegur partur af deginum og
að bursta tennurnar. „Ég hætti um
tíma því ég vildi ekki verða háður
lyfjum alla ævi. En svo sá ég að það
var bara ekki að ganga.“
Þórhallur vissi alveg að hann
elskaði að búa til grín og skemmta
fólki. En kvíðinn stoppaði hann
auk þess sem Laddasonar-
viðurnefnið átti sinn þátt í því að
hann afneitaði löngun sinni. Hann
var tvítugur þegar hann steig fyrst á
svið með uppistand, á árshátíð hjá
vöruflutningafyrirtæki. Að fá fólk til
að hlæja reyndist betra en nokkur
víma.
„Ég gleymi ekki fyrsta skiptinu,
hvernig það var að segja eitthvað
fyndið og fá alla til að hlæja. Ég
hugsaði með mér: „Hei, vá þetta
er geggjað, af hverju gerði ég þetta
ekki fyrr?“ Síðan þá hef ég ekki getað
stoppað.“
Toppurinn var að vinna keppn-
ina Fyndnasti maður Íslands árið
2007, enda hyggst Þórhallur svo
sannarlega blóðmjólka þann titil
það sem eftir er.
Stóð einn eftir
Þórhallur hefur átt þrjá nána vini
í gegnum ævina sem allir bundu
enda á líf sitt. Enginn af þeim náði
að verða þrítugur. Hann var tvítugur
þegar sá fyrsti dó. „Það var gamall
neyslufélagi úr grunnskóla. Við
höfðum ekki verið í sambandi í
nokkur ár en við vorum nánir vin-
ir á sínum tíma. Þess vegna var það
mikið áfall að fá fréttirnar.“
Það var annað með hina tvo vini
hans sem létust nokkrum árum
seinna. Á aðeins einu og hálfu ári
kvöddu þeir báðir og Þórhallur stóð
skyndilega einn eftir. „Við vorum
alltaf þrír saman, endalaust að
sprella og grínast eitthvað. Sögðum
hver öðrum brandara um menn að
kúka sem enginn skildi nema við.
Við áttum marga drauma um fram-
tíðina og það sem okkur langaði að
gera saman.
Það trúði því enginn að þessum
strákum liði illa. Þetta voru fyndn-
ustu strákar sem ég þekkti. Þeir voru
alltaf tilbúnir til þess að gera allt
fyrir alla, þeir voru alltaf fyrstir til
þess að hjálpa öðrum og hressa þá
við en leið á meðan verst af öllum.
Þeir voru bara alltof þrjóskir til að
leita sér hjálpar og þess vegna end-
aði þetta svona.
Það er undarleg tilfinning að
horfa á eftir besta vini sínum síga
niður í gröf. Ég var lengi að átta mig
á því að þeir væru virkilega farnir.
Og ég var mjög oft reiður því ég
hugsaði með mér af hverju ég hefði
ekki verið meira til staðar. Af hverju
hvatti ég þá ekki til að leita sér hjálp-
ar? Ég hugsa daglega til þeirra og ég
lendi ennþá í því í dag að ég fæ ein-
hverja sniðuga hugmynd og ætla að
hringja í þá en geri mér svo grein
fyrir því að það er ekki hægt.“
Gerir grín að sjálfum sér
Þórhallur er búinn að læra inn á kvíð-
ann og félagsfælnina hjá sjálfum sér.
Og hann hikar ekki við að gera grín
að öllu saman í uppistandinu. Upp-
spretta grínsins er hann sjálfur enda
er það ekki óalgengt í uppistands-
heiminum að veikleikar manna
verði að styrkleikum þeirra. „Ég
finn að fólk er þakklátt fyrir að ég er
hreinskilinn með þetta og get snúið
þessu upp í grín. Fólk kann að meta
það því það getur samsamað sig því
sem ég er að tala um. Enda held ég
að sannleikurinn sé oft miklu ótrú-
legri en nokkur lygi eða skáldskapur.
Það á alls ekki skilja það þannig
að ég sé eitthvað pirraður yfir því að
hafa alist upp með þekktan pabba,
þvert á móti er ég þakklátur enda lít
ég mikið upp til pabba. Mér finnst
hann frábær listamaður. Ég hef
fengið að vinna baksviðs á sýning-
um með honum og þær stundir sem
við höfum átt þar eru þær bestu sem
ég veit um.“
Vill verða helgarpabbi
Dagsdaglega vinnur Þórhallur á
frístundaheimili. Honum finnst
gaman að vinna með börnum enda
liggja þau ekki á skoðunum sínum.
Hann er að verða 33 ára og á unnu-
stu, Grétu Sóleyju. Hann er þó sjálf-
ur ekki að stressa sig á barneignum;
það gerist ef það gerist. Í bili nægja
hundarnir.
„Ég er samt tilbúinn til að vera
helgarpabbi. Samt ekki hverja
helgi. Bara svona þegar ég er laus
og hef ekkert að gera.“
Á fimmtudaginn næstkomandi,
24. mars, ætlar Þórhallur að vera
með afmælissýningu í Bæjar bíói
í Hafnarfirði. Hún ber heitið Þór-
hallur þrjátíuogþriggja. Þar ætlar
hann að flytja allt það besta sem
hann hefur gert undanfarin ár
ásamt haug af nýju efni. Hann
ætlar til dæmis að tala um gælu-
dýraeign, ferðaþjónustu fatlaðra
og furðulegan smekk þeirra stúlkna
sem hafa verið skotnar í honum
að ógleymdum pítsustaðnum
Ugly. Þórhallur er nefnilega and-
lit staðarins. Þá er ekki útilokað að
áhorfendur verði vitni að stórkost-
legum danstöktum.
„Ég fer víða og mun fjalla um allt
og ekkert. Aðallega þó mig sjálfan
og hvað ég er asnalegur. Enda er
nægur efniviður þar,“ segir hann. n
Uppistand
Þórhallur vinnur á
dagheimili sam-
hliða uppistandinu.
Mynd dV SiGtryGGUr Ari
Grínari Þórhallur hikar ekki við að gera grín að öllu saman í uppistandinu.„Ég er samt tilbúinn
til að vera helgar
pabbi. Samt ekki hverja
helgi. Bara svona þegar
ég er laus og hef ekkert
að gera.