Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Side 36
Páskablað 22.–29. mars 201636 Umræða Þ að er ógleymanlegt þetta haust stórra atburða og mikilla tilfinninga, og byrjaði allt í mikilli gleði; í byrjun september vor­ um við fjölskyldan í miðbæn­ um með hálfri þjóðinni að fagna silfurmeisturunum í handbolta frá Ólympíuleikunum í Peking; það var þar og við það tilefni sem fras­ inn „stórasta land í heimi“ heyrðist fyrst. Svo hélt ég sjálfur utan ann­ an október í langþráða skemmti­ ferð og ætlað að vera tæpa viku á ferðinni. Maður hafði reyndar dag­ ana á undan heyrt um að það væri mikill órói í fjármálaheiminum; Glitnir var að fara á hausinn, ís­ lenska efnahagsundrið, sem hafði um sinn gert okkur að ríkustu þjóð heimsins virtist standa á brauð­ fótum. En það var verið að funda, menn reiknuðu með aðgerðum frá ríkisstjórninni; engan óraði fyrir því að allt gæti hrunið, það var bara ómögulegt. Og þegar mað­ ur var kominn út til Spánar þá var heimsins áhyggja fjarri; við vor­ um fjórir gamlir bekkjarbræður út Menntaskólanum við Tjörnina í þessari för; sigldum í heila viku glaðir á seglskútu í Miðjarðar­ hafinu, stemningin í hópnum var frábær, við höfðum ekki verið í svona félagsskap allir saman í ára­ tugi, veðrið var snilld og með góð­ um byr, lífið frábært. Meðan Róm brann Það er dálítið skrýtið til þess að hugsa að þegar mesta efnahags­ kreppa í manna minnum reið yfir Ísland, þegar allt bankakerf­ ið hrundi á einu bretti og hrein neyð virtist skyndilega vofa yfir landinu sem hafði árum saman baðað sig í peningum og hagsæld, þá skuli maður hafa verið á sigl­ ingu, áhyggjulaus og glaður í Mið­ jarðarhafinu. Það hljómar allavega eitthvað einkennilega. Að vísu vorum við bara á seglskútu, en ekki einhverri af lúxussnekkjum útrásarinnar, en það er sama. Við sigldum á daginn, fyrir nes og framhjá klettum, inn í víkur og voga, heimsóttum ólíka hafnarbæi á kvöldum, og þá fóru menn að huga að farsímum sínum eftir að hafa komist í hafna­ sturturnar og við vorum svo sestir með drykk í hlýrri kvöldgolunni, og alltaf urðu fréttirnar að heiman enn ískyggilegri en þær höfðu verið daginn áður, og hafði það þó hljómað sem heimsendir. Við töluðum auðvitað við eigin­ konur okkar og heyrðum kvíðann, ríkisstjórnin hafði fundað allan daginn, menn bjuggust við að heyra um björgunaraðgerðir innan skamms. Svo fréttist að það yrðu engar aðgerðir. Það væri nefnilega ekkert hægt að gera. Það væri allt farið á hausinn. Við áttum vini í bis­ nesslífinu, þeir skulfu og nötruðu; einn okkar átti vin sem var einn af auðugustu milljarðamæringunum, einn af þeim sem áttu einkaþotu; hann var orðinn mjög hrokafullur uppá síðkastið, hafði ekki nennt í eitt tvö ár að hitta menn sem áttu minna en hundrað milljarða eða svara símtölum frá slíkum ræfl­ um; nú hringdi hann, einn af okk­ ur bátsverjum fór upp á bryggju með farsímann við eyrað, kom svo aftur aðeins sleginn og undrandi; þetta var auðkýfingurinn, bljúgur og viðkvæmur, var bara að hringja til að athuga hvort hann ætti ekki einhverja vini ennþá. Daginn eftir var Geir Haarde í sjónvarpinu: Guð blessi Ísland. Við heyrðum að það væri allt að lamast heima, hæp­ ið að hægt yrði að kaupa eldsneyti eða lyf til landsins. Spurning hvort ekki yrði matarskortur. „Ég mun nú alltaf geta gaukað að ykkur saltfiski strákar mínir,“ sagði einn í áhöfn­ inni, en hann fæst við fiskverk­ un. Einhver heyrði að Baugur væri farinn á hausinn, og þar með all­ ar búðirnar. Ég sendi sms á góðan vin minn heima: „Er Baugur farinn á hausinn?“ Og fékk heldur kald­ hamrað svar: „Baugur?? Það er allt farið á hausinn!“ Við fundum að ís­ lensk kreditkort voru ekki lengur tekin gild í spænskum hraðbönk­ um. Ískyggilegast fyrir mig var samt að heyra að líklega væri Icelandair líka um það bil að rúlla, að vélar fé­ lagsins yrðu kyrrsettar á erlendum flugvöllum; ég átti að fljúga með einni slíkri heim daginn eftir. Priority pass Ég flaug frá Palma um hádegisbil og var lentur á Heathrow­flugvelli um tvö leytið að staðartíma um eftir­ miðdaginn; vélin mín til Keflavík­ ur var ekki á áætlun fyrr en um átta eða níu leytið um kvöldið svo ég átti fyrir höndum langa bið á þessum stóra enska alþjóðaflugvelli. Sem var á sinn hátt heldur kvíðvænlegt, ekki síst út af hinu óljósa ástandi heimafyrir; maður vissi að það væri undir hælinn lagt hvort íslensk greiðslukort virkuðu lengur, og þótt svo færi að greiðsluvélar tækju þau gild hafði enginn hugmynd um gengi íslenska gjaldmiðilsins í hamförunum; maður gat vænst þess að bjór og róstbífsamloka myndi kosta þegar upp væri staðið eitthvað í líkingu við tvenn dag­ laun. En ég var svo heppinn að hafa í veskinu aðgang að betri stofu flugvallarins, „The lounge“; eins og flestir aðrir Íslendingar reyndist maður hafa ferðast á fyrsta farrými í lífinu undanfarin velti­ og bólu­ ár, og einhvern tíma þegar bank­ inn minn, sem síðan er farinn á hausinn í gjaldþroti af heimssögu­ legri stærð, fann upp á því að öpp­ greida hjá mér kreditkortið fylgdi með „Priority Pass“ – aðgangur að „lánsum“ á flestum skárri flugvöll­ um, og nú gat ég semsé fundið mér athvarf á slíkum stað allan eftirmið­ daginn og fram á kvöld; þar voru leðursófasett og mikið úrval dag­ blaða og tímarita, maður gat setið í friði eins og breskur hefðarmað­ ur í chesterfield sófa, vantaði bara opinn eld í arni og hund við lapp­ irnar – svo var líka boðið upp á bjór og maísflögur með salsaídýfu. Háð og níð í íhaldspressunni Og þarna kom ég mér fyrir. Þar var mjög rólegt og fámennt lengi eftir­ miðdagsins, en mér þurfti ekki að leiðast, því að frá sjónarhóli Ís­ lendings höfðu bresku dagblöð­ in sjaldan verið eins spennandi og einmitt þennan dag; forsíðurnar og raunar megnið af fréttasíðum gjörvallrar bresku pressunnar voru undirlagðar af fréttum um efnhags­ hamfarirnar á Íslandi, menn höfðu aldrei upplifað annað eins; gjörvallt bankakerfi heils ríkis á hliðina á einni nóttu, „total economical meltdown“ í nágrannalandinu í norðri, og það sem gerði málið enn meira krassandi var að á umliðn­ um fáum árum höfðu menn staðið á öndinni yfir sívaxandi veldi ungra íslenskra auðmanna sem virtist allt verða að gulli; þeir höfðu keypt upp fyrirtæki, fasteignir og verslunar­ Minningar frá hrundögunum 2008 Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja „Einn okkar átti vin sem var einn af auðugustu milljarðamær- ingunum, einn af þeim sem áttu einkaþotu; hann var orðinn mjög hroka- fullur uppá síðkastið, hafði ekki nennt í eitt tvö ár að hitta menn sem áttu minna en hundrað milljarða eða svara sím- tölum frá slíkum ræflum; nú hringdi hann. FYRIR BETRI BORGARA LANDSINS Prófaðu hamborgarasósuna frá E. Finnsson og gerðu gott betra. 31 18 -V O G – V E R T. IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.