Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Side 37
Páskablað 22.–29. mars 2016 Umræða 37
Minningar frá hrundögunum 2008
keðjur um allar Bretlandseyjar, og
opnað bankaútibú sem gátu boð-
ið betri kjör en virðuleg og gamal-
gróin fjármálafyrirtæki í The City;
að auki höfðu þessir íslensku greif-
ar sífellt verið með í sínu föruneyti,
sínu staffi hreinlega, forystumenn
þjóðarinnar, forseta og ráðherra
sem voru óþreytandi að tala við
breska fjölmiðla og útskýra þá stað-
reynd að íslenskir braskarar virtust
geta breytt vatni í vín vegna þess að
þeir væru afkomendur þeirra frjáls-
bornu ofurmenna sem áður buðu
hafi og stormum byrginn og sigldu
þá sjói sem engir aðrir þorðu að
hætta sér út á og birtust fyrir vik-
ið á ströndum framandi landa eins
og geimfarar frá fjarlægum stjörn-
um og legðu undir sig löndin. Og
upprifjanir á þeim ræðuhöldum
og öðrum slíkum fylltu nú spaltana
hjá dálkahöfundum sömu blaða,
og enskir eru meistarar háðs og
tvíræðni í slíkum skrifum, ekki
síst voru pistlahöfundar íhalds-
pressunnar nístandi naprir; ég las
lengi dags Daily Telegraph og Daily
Mail fullur af samblandi aðdáunar
á stílsnilld og hugkvæmni þessara
penna og hryllings yfir því af hve
ríkri innistæðu þórðargleði þeirra
reyndist vera yfir ógæfu lands míns
og þjóðar.
Svo tók Lánsið að fyllast
Ég tók varla eftir því að fleira fólk
var komið inn í Lánsið; undir kvöld
var raunar allt að fyllast – þegar
leið að brottför Icalandair-vélar-
innar til Keflavíkur – þar sem ég
sat mynduðu fjórir stæðilegir leð-
ursófar ferhyrning og ég sat í horni
eins þeirra falinn á bakvið dag-
blaðið, og það rann upp fyrir mér
að það fólk sem í kringum mig var
sest talaði íslensku. Að svo miklu
leyti sem eitthvað var talað; mað-
ur fann að í hvert sinn sem einhver
hugðist taka til máls var sem hann
þyrfti fyrst að lyfta þungum steini
frá hjarta sér. Þegar ég fletti blað-
inu sá ég að flestir horfðu í gaupnir
sér eða ofan í borðið; fólk í fínum
jakkafötum og með skrautleg bindi
og hálsklúta, og það var auðheyri-
legt á öllu að þau komu beint úr ís-
lenska efnahagsundrinu, hverra
rústum fólk var nú að hæðast að
um allan heim, og ég fann að þess-
ir samlandar mínir voru að sjálf-
sögðu á þann hátt verr settir en
ég sjálfur, sem hafði ekki áhyggjur
af öðru en því að samfélag mitt og
heimaland var á augabragði sokkið
í botnlausa skuldahít, að það var
greinilega búið á umliðnum dögum
að tapa atvinnu sinni, lífinu sem
það hafði lifað, og kannski aleig-
unni með; þetta var fólk úr banka-
og fjármála geiranum á leið heim;
í London höfðu þau engin erindi
lengur; voru tæpast velkomin ef að
var gáð.
„Önnur gildi í lífinu“
Ég heyrði það skiptast á orðum,
sem það dró upp úr sér með
erfiðis munum, eins og fólk sem
vill létta af hjarta sér talar við sína
nánustu. Ég ætlaði að leggja frá
mér blaðið og heilsa fólkinu, eins
og siður er Íslendinga og kurteisis-
venja, en fannst ég þá þegar vera
búinn að liggja á hleri, það væri
orðið of seint að láta fólkið vita að
bakvið blaðið í horninu leyndist
maður sem skildi þeirra tungu-
mál, svo ég sat um stund hreyf-
ingarlaus, beið færis að smokra
mér burt svo lítið bæri á, úr þessu
trúnaðarsamtali í sófunum fjórum
inni í betri stofunni. Og heyri þá
einn þeirra segja:
-Þetta kennir manni kannski að
fara að lifa fyrir önnur gildi í lífinu.
Gegnum síður Daily mail fann
ég streyma undrunarbylgjur frá
þeim hinum. Hvað gat maðurinn
átt við? Uns eitt þeirra spurði:
-Eins og hvaða gildi?
-Tja, eins og kannski fjölskyldu
og vini …? sagði samlandi minn af-
sakandi. n
Minnisstætt ávarp
Daginn eftir var Geir
Haarde í sjónvarpinu:
Guð blessi Ísland.
„Ég sendi sms
á góðan vin minn
heima: „Er Baugur farinn
á hausinn?“ Og fékk
heldur kaldhamrað svar:
„Baugur?? Það er allt
farið á hausinn!
Sími: 562 5900
www.fotomax.is
Yfirfærum
yfir 30 gerðir
myndbanda,
slides og
fleira
Björgum
minningum
Persónulegar
gjafir við öll
tækifæri
Allt til að
merkja
vinnustaðinn Gamaldags rofar og tenglaefni frá
þýska hönnuðinum Thomas Hoof.
Hægt er að fá efnið svörtu og hvítu
bakelit plasti og postulíni. Efnið passar
inní venjulegar rofa og tengladósir.
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11
200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Þú færð gamaldags
rofa og tengla hjá
okkur í Rafport