Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Síða 38
Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 38 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Þ að virkar nánast farsakennt hvernig fjöldi manns streym­ ir nú í forsetaframboð. Í hvaða tölu endar frambjóð­ endafjöldinn? Erum við kannski að fara að kjósa okkur forseta sem fær innan við 20 prósent atkvæði? Enginn af frambjóð­ endunum sem hafa birst virðist líkleg­ ur til að fá fjöldafylgi. Við gætum setið uppi með forseta sem meirihluti þjóðarinnar er veru­ lega ósáttur við. Þetta dregur athyglina ekki síst að hinu ótrúlega og langvinna fúski sem hefur verið í kringum íslensku stjórnar skrána. Fyrir margt löngu hefði þurft að setja ný stjórnarskrár­ ákvæði, bæði um forsetakjör og um hlutverk forseta Íslands. (Fjöldi fram­ bjóðenda stafar að hluta til af því hversu hugmyndirnar um embættið eru óljósar). Í frumvarpi stjórnlagaráðs er tekið á þessu. Þar er gert ráð fyrir talsvert fleiri meðmælendum en nú er og þar eru ákvæði um að frambjóðendum sé raðað upp í forgangsröð og einnig tak­ markanir á tímanum sem forseti getur setið í embætti. Það er erfitt að verjast þeirri tilhugsun að ein ástæðan fyrir því að staðan er þessi þremur mánuð­ um fyrir forsetakosningarnar sé hversu lengi Ólafur Ragnar Grímsson hefur setið og hvernig hann hefur nán­ ast kastað eign sinni á embættið. Eitt af því sem var fundið frum­ varpi stjórnlagaráðs til foráttu var að það væri svo óljóst að lögfræðingar myndu deila um þær fram og aftur og yrði ekkert lát á. Nú eru komnar fram tillögur frá stjórnarskrárnefnd um örfá atriði í stjórnarskrá og þá ber svo við að þær eru óskýrari en það sem kom frá stjórnlagaráði! Deilurnar um raunverulega merk­ ingu ákvæðanna eru strax byrjaðar. Orðalag er óskýrt, kannski vísvitandi, allt bendir til að það muni koma til kasta dómstóla að skýra hin nýju stjórnar­ skrárákvæði, segja hvað þau þýði í raun. Níels Einarsson, forstöðumaður stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, ger­ ir athugasemdir við tillögur stjórnar­ skrárnefndarinnar í umsögn sem má meðal annars lesa í landsmálavefnum Skutli á Vestfjörðum. Níels talar um „tvírætt orðalag“ og „merkingarfræði­ lega þoku“ í greininni þar sem er fjall­ að þjóðareign á náttúruauðlindum: „Drögin bera þess merki að vera málamiðlun ólíkra sjónarmiða, „ negotiated text“ eins og það nefnist á ensku. Það er varla farsælt að við skiln­ ing slíks grundvallartexta skuli lesandi sífellt þurfa að rýna í smáa letrið, sem í raun skilgreinir endanlega merkingu ákvæðanna, til að átta sig á hvað eigin­ lega er átt við. Það kemur í ljós að það sem lítur vel út í ákvæðunum sjálfum er í raun ekki endilega það sem til stendur í framkvæmd. Merkingar­ fræðileg þoka er ekki fallin til þess að skapa trúverðugleika og traust þótt hún kunni að henta þeim sem leita lendinga á erfiðum viðfangsefnum í raunsæispólitík líðandi stundar.“ Þetta er það sem er í tillögum stjórnarskrárnefndar og svo er hitt sem vantar, eins og áðurnefnd ákvæði um forsetann og forsetakjör – að ógleymdu ýmsu öðru, eins og til dæmis jöfnun kosningaréttar. Páll Þórhallsson er formaður stjórnar­ skrárnefndar. Hann er ágætur og grandvar embættismaður, en kann að vera að tillögur nefndarinnar séu „merkingarfræðileg þoka“? n Páskablað 22.–29. mars 2016 Stundum verð ég rosakvíðin Ég er gráti nær Getum öll lært af hvort öðru Nú þyngjast þau sporin Þórunn Arna Kristjánsdóttir tekst á við kvíða. – DV Ómar Ragnarsson um fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir í Krókdal. – dv.isSema Erla Serdar stingur upp á garðveislu fyrir Kjalnesinga og hælisleitendur. – dv.is Þ rátt fyrir að núverandi ríkis stjórn sé að vinna gott starf og þá sérstaklega með tilliti til haftalosunar og efnahagsmála, má sjá ýmis þreytu­ og veikleikamerki. Upp eru komnar aðstæður sem flestar ríkis­ stjórnir undanfarinna áratuga hafa glímt við. Traustið dvínar. Pirring­ ur vex. Varnarviðbrögð verða alls­ ráðandi og fíflunum í kringum ríkis stjórnina fjölgar hratt. Útspil forsætisráðherra um nýja staðsetningu nýja spítalans fór illa í samstarfsflokkinn – eðlilega. Fátt er betur til þess fallið að valda vandræðum í samstarfi, en þegar einhver spilar sóló. Vilhjálmur Bjarnason þing­ maður hefur minnt á að hann hafi ekki þolað Framsóknarflokkinn frá því að hann var sjö ára. Þó svo að þessi bráðgeri þingmaður tali með þessum hætti þá var forvitnilegt að ráða í viðbrögð aðstoðarmanns forsætisráðherra. „Enginn fram­ sóknarmaður treystir Vilhjálmi,“ var svarið. Þetta hnútukast opin­ berar andrúmsloftið meðal að­ standenda ríkisstjórnarinnar á fyrstu vordögum. Yfirlýsing eiginkonu forsætis­ ráðherra, um eignir erlendis, er í besta falli klaufalegt mál. Það sem almenningur og sérstaklega and­ stæðingar ríkisstjórnarinnar sjá eru þrjú orð: Milljarður. Aflands­ félag. Tortola. Það skiptir litlu máli í umræðunni hvort þetta var gert með löglegum hætti. Ekki fyrir þá sem nærast á tortryggni. Sigmundur þarf að girða sig í brók og bera á sig smá gæsafeiti. Gæsir hafa þann eiginleika að vatn stekkur af þeim. Flótti undan fjöl­ miðlum er ekki í boði í þessu máli. Aflandsfélagið og sú staðreynd að ekki var greint frá tilvist þess fyrr en sjálfstætt starfandi fréttamaður fór að grennslast fyrir um það, veldur eðlilega tortryggni. Samt er málið þannig vaxið að allir vissu að eiginkona Sigmundar hafði erft hluta af öflugu fyrirtæki. Þau hjónin segjast hafa greitt skatta og skyldur. Þá ætti þessu máli að vera lokið. En svo er ekki. Tortola er óaf­ máanlegur stimpill og þessu máli verður haldið á lífi eins og þegar Ís­ land ákvað að fara í stríð við Írak. Eins og einkavæðingu bankanna rétt eftir síðustu aldamót. Þarna er kominn nýr takki til að ýta á reglu­ lega og forsætisráðherra engist. Rétt væri nú að opinbera þau gögn sem skattrannsóknarstjóri keypti frá eyjunni Tortola. Leyfa fréttamönnum og almenningi að sjá þau gögn. Í framhaldi af því á forsætisráðherra að ræða þetta mál við fjölmiðla. Hér má ekkert skilja undan ef Sigmundur á að endur­ heimta traust almennings. Pukrið og leyndin er að fara með okkur. Páskarnir eru tími upprisunnar. Vissulega er búið að krossfesta Sigmund. En ef hann leitar að gleðinni, sem Kári Stefánsson sam­ félagsrýnir talar um í blaðinu í dag, er aldrei að vita nema hann rísi upp á þriðja degi. Fyrir því eru for­ dæmi í sögunni. Gleðilega páska, Sigmundur og þið öll hin. n Forsetafarsi Margir hafa tilkynnt um framboð til forseta Íslands og enn fleiri liggja undir feldi og íhuga málið. Ýmsum þykir framboðsgleðin orðin fullmikil, enda ljóst að meðal frambjóð­ enda eru einstak­ lingar sem von­ laust er að nái kjöri. Í þessu sambandi er jafn­ vel talað um forsetafarsa. Þetta kann að standa til bóta því ýmsir þungavigtarmenn eru taldir lík­ legir til að blanda sér í kosninga­ baráttuna. Þeir munu líklega ekki gefa sig upp fyrr en nokkuð seint. Á meðan geta frambjóðendur sem litla sem enga möguleika eiga á kjöri notið sviðsljóssins. Meðal þeirra sem talið er líklegt að muni bjóða sig fram til forseta er Össur Skarphéðinsson. Stuðn­ ingsmenn Davíðs Oddssonar vilja svo ólmir sjá sinn mann á Bessa­ stöðum. Ekkert kærleiksheimili Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, er í vondum málum vegna fjármuna sem eiginkona hans hefur geymt í skattaparadís. Fjármálaráðherra, Bjarni Benedikts- son, hefur ekki komið Sigmundi til varnar í mál­ inu og skeytasendingar ganga á milli þingmanna þessara tveggja flokka. Ekki er ýkja langt til kosn­ inga og innan stjórnarflokkanna er greinilegt að menn eru ekki lengur að leggja sérstaka áherslu á samheldni flokkanna tveggja. Því er gagnrýni á samstarfs­ flokkinn ekki talin nein stórsynd heldur liður í komandi kosninga­ baráttu. Leiðari Eggert Skúlason eggert@dv.is „Rétt væri nú að opinbera þau gögn sem skattrannsóknar- stjóri keypti frá eyjunni Tortola. MynD pRESSphOtOS Langvinnt fúsk í stjórnarskrármálum kemur í hausinn á okkur„Orðalag er óskýrt, kannski vísvitandi. Egill helgason skrifar Af Eyjunni páll Þórhallsson er formaður stjórnar- skrárnefndar. Hann er ágætur og grandvar embættismaður, en kann að vera að tillögur nefndarinnar séu „merkingarfræðileg þoka“?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.