Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Page 43
Helgarblað 22.–29. mars 2016 Kynningarblað - Bílablaðið 3 Bílson – bílaverkstæði í fremstu röð B ílson verkstæðið var stofnað 1984 í 80 fermetra húsnæði við Langholtsveg. Rekstur- inn var svo fluttur að Ármúla 15 árið 1990. Þar voru stækk- unarmöguleikar fyrir hendi og voru þeir nýttir. Árið 2012 var fyrirtækið búið að sprengja utan af sér húsnæðið enn eina ferðina og var því fjárfest í nýrri glæsilegri byggingu að Kletthálsi 9. Verkstæðið er enn í höndum sama eiganda, Bjarka Harðarsonar. Farsælt samstarf við Heklu Árið 1991 var gerður þjónustusamn- ingur við Heklu um þjónustu við þeirra vörumerki í bílageiranum. Það samstarf hefur verið mjög farsælt í gegnum tíðina. Bílson stenst staðla framleiðenda, sem eru mjög stífir og byggja alfarið á ISO stöðlunum. Þessir staðlar byggja á kröfum um aðbúnað, aðkomu, húsnæði, fyrirkomulag, endurmenntun starfsfólks, uppruna varahluta, rekjanleika, ábyrgðarvið- gerðir, tækjabúnað, tækniupplýsingar og margt fleira. Vottun Bílgreinasam- bandsins er hluti af þessum stöðlum. Hagsmunir viðskiptavina eru tryggðir í samstarfi BGS og FÍB. Beintengdir við gagnabanka Volkswagen og Skoda Bílson verkstæðið býr við mikla að- greiningu gagnvart samkeppnisað- ilum á bílamarkaðnum. „Við erum beintengdir við gagnabanka bæði Volkswagen og Skoda. Það þýðir að við höfum aðgang að og erum sam- herjar allra þjónustuaðila í heim- inum sem eru beintengdir þessum vörumerkjum. Það er sameiginlegur gagnabanki, þar sem menn setja inn upplýsingar um flókin viðfangsefni. Það er því ekki alltaf verið að finna upp hjólið,“ segir Bjarki. „Bilunin get- ur verið þekkt hinum megin á hnettin- um og þá sjáum við hliðstæðuna við okkar viðfangsefni hverju sinni. Þetta sparar oft mikinn tíma, þannig að flóknar greiningar fá oft skjóta niður- stöðu. Við upplifum oft að aðilar eru að kóðalesa allar tegundir bíla. Þeir geta fengið upplýsingar úr þessum lestri á hvaða skynjurum er bilun,“ bætir hann við. „Þá rjúka menn til og skipta út íhlutum sem jafnvel eru í lagi. Orsökin getur verið að vélarstjórnboxið kallar eftir uppfærslu, líkt og þegar slökkt er á heimilistölvunni á kvöldin. Svona uppfærslu þarf að framkvæma „on- line“ beint inn á framleiðandann,“ segir Bjarki. Bílson verkstæðið er eina verk- stæðið í Reykjavík, fyrir utan Heklu, sem er beintengt Volkswagen og Skoda. „Við erum alltaf með nýju- stu tækniupplýsingar uppfærðar. Greinin skiptist í raun orðið í tvennt. Annars vegar er hinn hefðbundni bif- vélavirki og hins vegar tæknimaður. Þekking og reynsla er það mikilvæg- asta í okkar grein,“ segir Bjarki. Viðskiptavinurinn er í öndvegi „Við sinnum einnig ábyrgðarviðgerð- um á þessum vörumerkjum. Helstu viðfangsefni okkar eru allt sem við- kemur öðru en body-viðgerðum. Smurning, bremsuviðgerðir, undir- vagn, vélar, gírkassar og svo auðvit- að rafmagnsviðgerðir,“ segir Bjarki. „Það síðastnefnda er mjög stór þáttur í okkar vinnu. Við erum með sérstaka forgreiningu, þar sem bíllinn er skoð- aður áður en gengið er til verks. Þá er hægt að áætla umfang verksins bet- ur fyrirfram,“ bætir hann við. Starfs- menn á Bílson verkstæðinu eru 18 í dag. „Margir þeirra luku námi hjá Bílson og starfa hjá okkur enn. Sá sem hefur vinninginn í þeim efnum hefur verið hjá okkur í 24 ár. Hópurinn er samsettur af bæði eldri og yngri reynsluboltum. Það er oft mikið fjör í vinnunni. Mjög lítil starfsmannavelta hefur fylgt okkur í gegnum langa tíð,“ segir Bjarki. Bílson fékk forvarnar- verðlaun VÍS árið 2010. Bílson er staðsett að Kletthálsi 9, á bak við bílasölurnar. Bjarkir segir: „Við leitumst við að hafa viðskipta- vininn í öndvegi. Það er oft gaman að sjá, þegar viðskiptavinir eignast aftur Heklubíl; þá koma þeir aftur.“ Opið er frá 07.45 til 17.00 á mánu- dögum til fimmtudags og til kl.16.00 á föstudögum. n Pólýhúðun Perónuleg þjónusta DekkjahótelDekkjaverkstæði Láttu okkur geyma dekkin fyrir þig Nýdekk Umboðssala fyrir notuð dekk og felgur Nýjar felgur Pólýhúðun Perónuleg þjónusta DekkjahótelDekkjaverkstæði Láttu okkur geyma dekkin fyrir þig Nýdekk Umboðssala fyrir notuð dekk og felgur Nýjar felgur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.