Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Síða 43
Helgarblað 22.–29. mars 2016 Kynningarblað - Bílablaðið 3
Bílson – bílaverkstæði í fremstu röð
B
ílson verkstæðið var stofnað
1984 í 80 fermetra húsnæði
við Langholtsveg. Rekstur-
inn var svo fluttur að Ármúla
15 árið 1990. Þar voru stækk-
unarmöguleikar fyrir hendi og voru
þeir nýttir. Árið 2012 var fyrirtækið
búið að sprengja utan af sér húsnæðið
enn eina ferðina og var því fjárfest í
nýrri glæsilegri byggingu að Kletthálsi
9. Verkstæðið er enn í höndum sama
eiganda, Bjarka Harðarsonar.
Farsælt samstarf við Heklu
Árið 1991 var gerður þjónustusamn-
ingur við Heklu um þjónustu við
þeirra vörumerki í bílageiranum. Það
samstarf hefur verið mjög farsælt í
gegnum tíðina. Bílson stenst staðla
framleiðenda, sem eru mjög stífir og
byggja alfarið á ISO stöðlunum. Þessir
staðlar byggja á kröfum um aðbúnað,
aðkomu, húsnæði, fyrirkomulag,
endurmenntun starfsfólks, uppruna
varahluta, rekjanleika, ábyrgðarvið-
gerðir, tækjabúnað, tækniupplýsingar
og margt fleira. Vottun Bílgreinasam-
bandsins er hluti af þessum stöðlum.
Hagsmunir viðskiptavina eru tryggðir
í samstarfi BGS og FÍB.
Beintengdir við gagnabanka
Volkswagen og Skoda
Bílson verkstæðið býr við mikla að-
greiningu gagnvart samkeppnisað-
ilum á bílamarkaðnum. „Við erum
beintengdir við gagnabanka bæði
Volkswagen og Skoda. Það þýðir að
við höfum aðgang að og erum sam-
herjar allra þjónustuaðila í heim-
inum sem eru beintengdir þessum
vörumerkjum. Það er sameiginlegur
gagnabanki, þar sem menn setja inn
upplýsingar um flókin viðfangsefni.
Það er því ekki alltaf verið að finna
upp hjólið,“ segir Bjarki. „Bilunin get-
ur verið þekkt hinum megin á hnettin-
um og þá sjáum við hliðstæðuna við
okkar viðfangsefni hverju sinni. Þetta
sparar oft mikinn tíma, þannig að
flóknar greiningar fá oft skjóta niður-
stöðu. Við upplifum oft að aðilar eru
að kóðalesa allar tegundir bíla. Þeir
geta fengið upplýsingar úr þessum
lestri á hvaða skynjurum er bilun,“
bætir hann við.
„Þá rjúka menn til og skipta út
íhlutum sem jafnvel eru í lagi. Orsökin
getur verið að vélarstjórnboxið kallar
eftir uppfærslu, líkt og þegar slökkt er
á heimilistölvunni á kvöldin. Svona
uppfærslu þarf að framkvæma „on-
line“ beint inn á framleiðandann,“
segir Bjarki.
Bílson verkstæðið er eina verk-
stæðið í Reykjavík, fyrir utan Heklu,
sem er beintengt Volkswagen og
Skoda. „Við erum alltaf með nýju-
stu tækniupplýsingar uppfærðar.
Greinin skiptist í raun orðið í tvennt.
Annars vegar er hinn hefðbundni bif-
vélavirki og hins vegar tæknimaður.
Þekking og reynsla er það mikilvæg-
asta í okkar grein,“ segir Bjarki.
Viðskiptavinurinn er í öndvegi
„Við sinnum einnig ábyrgðarviðgerð-
um á þessum vörumerkjum. Helstu
viðfangsefni okkar eru allt sem við-
kemur öðru en body-viðgerðum.
Smurning, bremsuviðgerðir, undir-
vagn, vélar, gírkassar og svo auðvit-
að rafmagnsviðgerðir,“ segir Bjarki.
„Það síðastnefnda er mjög stór þáttur
í okkar vinnu. Við erum með sérstaka
forgreiningu, þar sem bíllinn er skoð-
aður áður en gengið er til verks. Þá er
hægt að áætla umfang verksins bet-
ur fyrirfram,“ bætir hann við. Starfs-
menn á Bílson verkstæðinu eru 18 í
dag.
„Margir þeirra luku námi hjá
Bílson og starfa hjá okkur enn. Sá sem
hefur vinninginn í þeim efnum hefur
verið hjá okkur í 24 ár. Hópurinn
er samsettur af bæði eldri og yngri
reynsluboltum. Það er oft mikið fjör í
vinnunni. Mjög lítil starfsmannavelta
hefur fylgt okkur í gegnum langa tíð,“
segir Bjarki. Bílson fékk forvarnar-
verðlaun VÍS árið 2010.
Bílson er staðsett að Kletthálsi 9,
á bak við bílasölurnar. Bjarkir segir:
„Við leitumst við að hafa viðskipta-
vininn í öndvegi. Það er oft gaman að
sjá, þegar viðskiptavinir eignast aftur
Heklubíl; þá koma þeir aftur.“
Opið er frá 07.45 til 17.00 á mánu-
dögum til fimmtudags og til kl.16.00 á
föstudögum. n
Pólýhúðun
Perónuleg þjónusta
DekkjahótelDekkjaverkstæði
Láttu okkur geyma
dekkin fyrir þig
Nýdekk Umboðssala fyrir notuð dekk og felgur
Nýjar felgur
Pólýhúðun
Perónuleg þjónusta
DekkjahótelDekkjaverkstæði
Láttu okkur geyma
dekkin fyrir þig
Nýdekk Umboðssala fyrir notuð dekk og felgur
Nýjar felgur