Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 54
Páskablað 22.–29. mars 201646 Fólk
AP
ÓT
EK
UM
SN
YR
TIS
TO
FU
M
&
SN
YR
TIV
ÖR
UV
ER
SL
UN
UM
Marg
verðlaunaðar
snyrtivörur frá
Þýskalandi
Fermingagjafir
www.artdeco.de
artdecois
f
Ég fékk uppeldi mitt frá tveimur kon-
um og þekki ekki föður minn. Ég veit
ekki hver hann er. En það undarleg-
asta er kannski að ég hef aldrei haft
einhverja löngun til að komast að
því. Það hefur aldrei skipt mig neinu
máli, sem fæstir kannski skilja. Ég
fékk fínt uppeldi og það dugði mér,“
segir Ragna auðmjúk, en afi hennar
lést þegar hún var tveggja ára og hún
kynntist honum því lítið sem ekkert.
Aldrei rætt að hún væri ættleidd
Hún man þó alveg eftir að hafa velt
uppruna sínum fyrir sér þegar hún
var barn og unglingur, en það var
aldrei rætt heima hjá henni. Aldrei
var henni sagt að konan sem hún
ólst upp við að væri móðir hennar
væri í raun veru amma hennar. „Ég
man alltaf eftir því þegar ég þurfti að
fá fæðingarvottorð fyrir ferminguna,
þá hreinlega las ég það þar að ég væri
ættleidd af ömmu minni. Auðvitað
vissi ég þetta en það var aldrei rætt.
Þetta var fyrsta staðfestingin sem ég
fékk svart á hvítu á blaði. Mömmu
hef ég alltaf kallað systur mína þó að
hún hafi verið 28 ára þegar hún átti
mig.“ Þá átti Ragna einn uppeldis-
bróður. Um var að ræða nokkurra
mánaða dreng sem skilinn var eftir
heima hjá móður hennar fyrir stríð.
Sá átti breskan föður og þýska móð-
ur. „Hann er í rauninni bróðir minn
þó að hann sé ekki blóðskyldur mér,“
segir hún og brosir.
Sjálf á Ragna einn son af fyrra
hjónabandi, Ívar Örn Helgason,
og tvö barnabörn. En núverandi
maður hennar, Björn Emilsson, á
tvær dætur og tvö barnabörn. Ragna
og Björn hafa verið saman frá árinu
1984 en hann starfar sem upptöku-
stjóri hjá Sjónvarpinu, þar sem leiðir
þeirra lágu saman.
„Þetta var eins og á fornöld“
Þrátt fyrir að vera fædd og uppalin í
Reykjavík fékk Ragna líka nasaþefinn
af því að búa sveit. „Afi minn keypti
jörð sem heitir Gljúfurá og er í
Borgar firði. Aðallega út af laxveiði.
En á jörðinni var bóndabær og við
bjuggum þar á efri hæðinni öll sum-
ur. Á neðri hæðinni bjó bóndi sem
nýtti jörðina. Þannig að alveg fram á
unglingsár þá bjó ég í Reykjavík á vet-
urna og á Gljúfurá á sumrin. Ég fékk
því að kynnast búskap á þeim tíma.
Það var meðal annars slegið með orfi
og ljá, kamarinn var úti á túni, það
var engin sturta og við þurftum að
ná í vatn í brunn. Þetta var eins og á
fornöld,“ segir Ragna og skellir upp
úr. „En mér finnst voðalega gott að
hafa fengið að kynnast þessu.“
Keypti Fossberg-nafnið
Og fyrst við erum að ræða um fjöl-
skylduna er ekki úr vegi að spyrja
hvaðan nafnið Fossberg kemur.
Ragna er með svarið á reiðum hön-
um: „Afi minn, sem hét upphaf-
lega Gunnlaugur Jónsson, lærði vél-
stjórn úti í Kaupmannahöfn þar sem
þótti ekki mjög fínt að vera Jónsson,
þannig að hann keypti nafnið Foss-
berg. Kjörmóðir mín varð þá Jó-
hanna Fossberg og blóðmóðir mín
Helga Fossberg. Ég var skírð í höfuðið
á blóðmóðursystir minni sem dó árið
1952 í fellibyl úti á Jamaíku, ásamt
breskum eiginmanni og dóttur.
Þau voru eina hvíta fólkið sem dó
í þessum mikla fellibyl. Ég fæddist
að vísu áður en hún dó en ég er al-
nafna hennar.“ Afi Rögnu stofnaði
svo vélaverslun sem fékk nafnið G.J.
Fossberg, en heitir Fossberg í dag,
en fjölskyldan seldi fyrirtækið fyrir
nokkrum árum. „Fossberg-nafnið
mun því deyja út með mér, því miður.
Sem er hálfgerð synd.“
Hárgreiðslan tilviljun
Þrátt fyrir að Ragna hafi ung byrjað
í hárgreiðslunni hafði hana aldrei
dreymt um að verða hárgreiðslukona.
Það var ekki ástæðan fyrir því að hún
fór í námið. Það var eiginlega tilvilj-
un sem réð því að hún fór í þetta nám
frekar en eitthvert annað nám. „Ég var
send í Húsmæðraskólann í Reykjavík
þegar ég var búin með gagnfræða-
prófið, en ég segi alltaf að ástæð-
an fyrir því hafi verið sú að ég kunni
ekki að sjóða kartöflur. Ég þyki samt
ágætur kokkur í dag,“ skýtur hún inn
í sposk á svip. „Eftir að hafa verið lok-
uð inni á heimavist þar í níu mánuði
byrjaði ég í hárgreiðslunni, á stofu hjá
vinkonu minni, Rut Ragnarsdóttur.
En ástæðan fyrir því að ég valdi hár-
greiðsluna var kannski sú að mig
langaði ekki í háskólanám. Það var
líka svo lítið í boði. Ég kaus frekar iðn-
menntun og það var algjör tilviljun að
það var hárgreiðslan. Kannski af því
vinkona mín var með stofu, það var
auðvelt að komast á samning og þetta
gekk allt fljótt fyrir sig,“ útskýrir hún.
„Eftir nám fór ég til Kaupmanna-
hafnar að vinna á hárgreiðslustofu. Á
meðan ég var úti var svo hringt í mig
frá Sjónvarpinu og mér boðin vinna.
Þeir þekktu mig því ég hafði verið
að vinna í ýmsum verkefnum. En ég
sé ekki eftir því að hafa farið þessa
leið,“ segir hún. Það hvarflaði hins
vegar aldrei að henni á þessum tíma
að þetta yrði ævistarfið hennar. „Það
hvarflaði heldur aldrei að mér að
ég ætti eftir að starfa við bíómyndir,
enda var varla verið að framleiða bíó-
myndir hér á landi.“
Helen Mirren stærsta nafnið
Ragna segir að þegar hún hugsi til
baka þá sé hálf öld ekki svo langur
tími. En hún hefur engu að síður upp-
lifað mjög miklar breytingar á lands-
laginu í starfi sínu, bæði í sjónvarpi
og í kvikmyndagerð. Sjónvarpið var til
að mynda enn í svarthvítu þegar hún
hóf störf. Nú er farið að senda út efni
í háskerpu. Það hefur ansi mikið vatn
runnið til sjávar.
Á ferlinum hefur Ragna farðað
fjölda erlendra leikara og nokkur
stór nöfn eru í þeim hópi. Aðspurð
segir hún stærstu verkefnin hingað
til líklega hafa verið í kvikmyndunum
Noah og No such thing en báðar voru
þær að hluta til teknar upp hér á landi.
„Helen Mirren og Julie Christie voru
í þeirri síðarnefndu. Það var mjög
gaman fyrir mig að fá að umgang-
ast Helen Mirren, en hún er líklega
stærsta stjarnan sem ég hef farðað.
Við byrjuðum tökur á myndinni með
Helen hérna heima en vorum svo
tvær sem fórum frá Íslandi í þetta ver-
kefni, ég og Helga Stefánsdóttir bún-
ingahönnuður. Það þurfti að fá sér-
stakt leyfi fyrir okkur því vorum ekki í
amerísku stéttarfélagi en út á það fékk
ég tveggja ára vegabréfsáritun.“
Íslenskar myndir skemmtilegri
Ragna segir það bæði vera mjög
spennandi og stressandi að starfa við
stórar Hollywood-myndir, en henni
þykir alltaf skemmtilegast að starfa
við íslenskar myndir. „Fólk þekkist
betur og allir eru afslappaðri. Það er
stundum svolítið „show“ í kringum
hitt. Amerísku leikararnir þurfa alltaf
sitt pláss, en þessir íslensku eru bara
með okkur. Þegar við vorum í Noah
þá voru leikararnir með sín hjólhýsi
og stærð þeirra fór eftir umfangi
„Einu
áhyggjur-
nar sem ég hef
er hvernig ég
muni fara að
því að vera með
þennan rauða
varalit þegar ég
verð áttræð
Ættleidd Ragna var ættleidd af ömmu sinni þegar hún var barn en líffræðileg móðir hennar var henni sem systir. Mynd Sigtryggur Ari