Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 60
Páskablað 22.–29. mars 201652 Sport
LJÓSASPEGLAR
Á TILBOÐI FRAM
AÐ PÁSKUM
30%
afsláttur!
Frábær byrjun ekki alltaf fararheill
n Ungir leikmenn sem byrjuðu vel n Ekki allir sem sigra heiminn n Allra augu beinast að ungstirninu Marcus Rashford
M
arcus Rashford var ekki
einu sinni á allra vörum á
Carrington-æfingasvæði
Manchester United þegar
Louis Van Gaal neyddist
til að tefla honum fram í byrjunar-
liði sínu á dögunum. Fæstir höfðu
heyrt um þennan 18
ára gamla framherja
sem í lok síðasta
mánaðar var orðinn
einn umtalaðasti
knattspyrnumaður
Englands.
Hann skoraði tvö mörk í sínum
fyrsta leik fyrir United í stórsigri á
danska liðinu Midtjylland í Evrópu-
deildinni. Varð hann yngsti leikmað-
ur liðsins til að skora í Evrópukeppni
og skákaði þar ekki ómerkari manni
en George Best. Þremur dögum síð-
ar, eða þann 28. febrúar, var hann í
byrjunarliðinu gegn Arsenal þar sem
hann skoraði tvö og lagði upp þriðja
mark United í 3-2 sigri. Um helgina
skoraði hann síðan sigurmarkið í 1-0
sigri á Man City. Sannkölluð drauma-
byrjun. En það eru fleiri ungir leik-
menn sem hafa upplifað draumabyrj-
un á ferli sínum og stimplað sig inn
með pomp og prakt. Misjafnt er þó
hvernig rættist úr ferli þeirra. ESPN
tók saman lista yfir nokkra eftirminni-
lega byrjunarleiki. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Alvaro Recoba Þann
31. ágúst 1997 voru tveir Suður-Ameríku-
menn að spila sinn fyrsta leik fyrir Inter
Milan. Annar þeirra var Brasilíumaðurinn
Ronaldo, sem Inter hafði keypt fyrir
metfé frá Barcelona. En hinn var 21 árs
gamall Úrúgvæi, Alvaro Recoba. Og það
var hann sem stal senunni, meðan
heimsbyggðin var að fylgjast með
Ronaldo. Recoba byrjaði leikinn á
bekknum en kom inn á í stöðunni 1-0
fyrir Brescia. Recoba var fljótur að jafna
leikinn með þrumufleyg. Sigurmarkið var
síðan mergjað. Beint úr aukaspyrnu af
tæplega 30 metra færi, gjörsamlega
smurt uppi við samskeytin. Recoba lék í
11 ár með Inter, skoraði mörg gullfalleg
mörk með sínum fræga vinstri fæti og
naut vinsælda meðal stuðningsmanna.
Jimmy Greaves Enski landsliðsmaðurinn gerði það að vana sínum að skora í sínum fyrsta leik. Hvort sem það var með
uppeldisfélaginu Chelsea, AC Milan, Tottenham, West Ham eða fyrir enska landsliðið. Hann var 17 ára þegar hann skoraði í sínum fyrsta leik
fyrir Chelsea í ágúst 1957 og bjargaði stigi í 1-1 jafntefli gegn Tottenham. Greaves skoraði 22 mörk á sínu fyrsta tímabili. Eftir stutta dvöl á Ítalíu
með Milan, þar sem hann skoraði 9 mörk í 12 leikjum lék hann í 9 ár með Tottenham. Hann skoraði 220 mörk í 321 leik og varð sannkölluð
goðsögn hjá félaginu. Hann missti reyndar af úrslitaleik HM 1966 þegar England tryggði sér heimsmeistaratitilinn eftir að hafa meiðst í
riðlakeppni mótsins. Vegna reglna FIFA fékk Greaves ekki gullmedalíu fyrir sigurinn fyrr en árið 2009 þegar reglum sambandsins var breytt.
Bobby
Charlton Í
október 1957 var enska
goðsögnin Bobby
Charlton 18 ára gamall og
aðeins knattspyrnumaður
í hlutastarfi þar sem hann
var að ljúka herþjónustu
sinni samhliða
knattspyrnunni. Svo
skemmtilega vill til að þá
var hans fyrsti leikur gegn
Charlton Athletic þar sem
hann skoraði tvö mörk.
Bobby Charlton skoraði 12
mörk í öllum keppnum í 14
leikjum á sínu fyrsta
tímabili og söguna síðan
þekkja flestir. Einn
sigursælasti og besti
leikmaður í sögu enskrar
knattspyrnu byrjaði vel.
Alan Shearer Alan Shearer var 17 ára þegar hann neyddist sökum meiðsla til
að hlaupa í skarðið fyrir Rod Wallace hjá Southampton í leik gegn Arsenal í apríl 1988. Hann
hafði aðeins leikið nokkrar mínútur þegar hann var skyndilega mættur í byrjunarliðið. Eftir
aðeins nokkrar mínútur hafði hann skorað sitt fyrsta mark og þegar skammt var liðið á síðari
hálfleik hafði hann innsiglað þrennuna. Varð hann með því yngsti leikmaðurinn í sögu efstu
deildar á Englandi til að skora þrennu. Gamla metið var 30 ára gamalt, það átti Jimmy
Greaves. Shearer skoraði ekki í 16 mánuði eftir þessa frábæru byrjun og festi sig ekki í sessi
sem byrjunarliðsmaður fyrr en tímabilið 1989/90. Árið 1992 var hann seldur fyrir metfé til
Blackburn þar sem hann vann meistaratitil og síðan seldur aftur fyrir metfé til Newcastle
þar sem hann lék í 10 ár. Hann er enn þann dag í dag markahæsti leikmaður í sögu ensku
úrvalsdeildarinnar.
Robbie Fowler
Graem Souness, stjóri Liverpool, sagði
eftir fyrsta leik Robbies Fowler að þar
færi ungur maður sem væri með
knattspyrnupálmann í höndunum.
Liverpool hafði unnið 4-2 sigur á
Southampton í október 1993 þar sem
hinn 18 ára gamli Fowler gerði sér lítið
fyrir og skoraði þrennu í sínum fimmta
leik með aðalliðinu. Nokkrum vikum
áður hafði hann skorað í sínum fyrsta
leik fyrir félagið gegn Fulham í fyrri
leik liðanna í deildarbikarnum. Í síðari
leik liðanna skoraði hann öll fimm
mörk Liverpool. Raunar skoraði Fowler
12 mörk í fyrstu 13 leikjum sínum og
endaði tímabilið sem markahæsti
maður liðsins og skákaði þar
goðsögninni Ian Rush. Fowler átti
frábæran feril hjá Liverpool á tíunda
áratugnum en síðan hallaði heldur
undan fæti.
Eina fagnið Alan
Shearer skoraði þrennu
í sínum fyrsta leik með
Southampton 17 ára
gamall. Mynd EPA
Marcus Rashford Hefur byrjað feril sinn
vel hjá Manchester United. En það er ekki
ávísun á farsælan feril.
Alvaro Recoba Stal
senunni frá Ronaldo í
fyrsta leik með Inter.
Mynd EPA
Jimmi Greaves
og Bobby
Charlton
Byrjuðu báðir
glæsilega ferla
sína með mörk-
um. Mynd JAC. dE niJS
Robbie Fowler
Byrjaði feril sinn hjá
Liverpool á að raða
inn mörkum. Hélt því
síðan bara áfram í
nokkur ár. Mynd EPA