Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Qupperneq 61
Páskablað 22.–29. mars 2016 Sport 53
FARÐU Í BOLTANN MEÐ FREYJU
TAKTU ÞÁTT Í EM-DRAUMALEIK FREYJU
TIL AÐ EIGA MÖGULEIKA Á AÐ VINNA
FERÐ FYRIR TV0 Á EM Í FRAKKLANDI
OG FLEIRI GLÆSILEGA VINNINGA!
freyja.is/EM2016
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Hringdu í síma 581 3730
Nánari upplýsingar á jsb.is
E
F
LI
R
a
lm
an
na
te
ng
s l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
sk
h
ön
nu
n
Vetrarkortið
Leggðu rækt við þig
og lifðu góðu lífi!
Velkomin í okkar hóp!
Frábær byrjun ekki alltaf fararheill
n Ungir leikmenn sem byrjuðu vel n Ekki allir sem sigra heiminn n Allra augu beinast að ungstirninu Marcus Rashford
Patrick Kluivert Hollendingurinn sterki var aðeins átján ára þegar hann
skoraði sigurmark Ajax gegn AC Milan í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 1995. Raunar
þótti það skrýtin ákvörðun hjá Louis Van Gaal að láta ungstirnið byrja á bekknum í leiknum
enda hafði hann skorað ríflega 20 mörk á tímabilinu. Hann skoraði í sínum fyrsta leik gegn
erkifjendunum í Feyenoord í hollenska ofurbikarnum í upphafi leiktíðarinnar 1994/95 og
framtíðin virtist björt. Eftir þessa frábæru byrjun á ferlinum átti Kluivert sín bestu ár hjá
Barcelona þar sem hann lék í sex ár.
Federico
Macheda Stuðningsmenn
Manchester United fara sér að engu
óðslega varðandi Rashford vegna þess
að þeir muna eftir Kiko Macheda. Hann
var óþekktur þegar Alex Ferguson
henti honum í framlínuna í leik þar sem
United var 2-1 undir gegn Aston Villa
árið 2009. Cristiano Ronaldo jafnaði
leikinn og hinn 17 ára gamli Macheda
varð hetja á einni nóttu þegar hann
skoraði glæsilegt sigurmark á 93.
mínútu leiksins eftir að hafa snúið af
sér Luke Young og afgreitt boltann
snyrtilega í fjærhornið. „Hans helsta
verkefni er nú að gæta þess að þetta
mark skyggi ekki á restina af ferlinum,“
skrifaði blaðamaður The Guardian eftir
leikinn. En það var nákvæmlega það
sem gerðist. Macheda hefur flakkað
milli sex félaga á sjö árum og aðeins
skorað 26 mörk í 141 leik. Sannkallaður
sólmyrkvi þar.
Gianluigi Buffon Það
er augljóslega auðveldara að slá í gegn
með því að skora í sínum fyrsta leik en
það er sjaldnast hlutskipti markvarða.
Gianluigi Buffon þurfti ekki að skora til að
slá í gegn þegar hann hóf feril sinn 17 ára
gamall með Parma þann 19. nóvember
1995 og verða síðar einn besti markvörður
sögunnar. Hins 17 ára gamla Buffons beið
ekki auðvelt verkefni. Leikurinn var gegn
ógnarsterku liði Ítalíumeistara AC Milan
með heimsklassaleikmenn á borð við
Roberto Baggio og George Weah í
framlínunni, auk Zvonimir Boban og
Marco Simone í ofanálag. Og unglingurinn
milli stanganna varði allt sem að marki
kom frá þessum goðsögnum stórliðsins
frá Milan. Buffon er í dag 38 ára og hefur
leikið með Juventus síðastliðin 15 ár og
unnið flest sem hægt er að vinna.
Wayne
Rooney
„Remember the name!“
hrópaði enski lýsandinn
Clive Tyldesley þegar
Wayne Rooney
stimplaði sig, 16 ára
gamall, inn í ensku
úrvalsdeildina með
undramarki gegn
Englandsmeisturum
Arsenal í október 2002.
Arsenal-menn voru
taplausir í 30 leikjum og
í stöðunni 1-1 á
lokamínútum leiksins
benti fátt til að það
myndi breytast. Þar til
Rooney tók listilega vel
á móti boltanum, sneri
sér, stillti miðið og
skoraði með hnit-
miðuðu og föstu skoti
af tæplega 27 metra
færi, sláin inn. Stjarna
var fædd. Rooney varð
yngsti markaskorari í
sögu ensku úrvals-
deildarinnar og söguna
síðan þekkja allir
knattspyrnuáhuga-
menn.
Patrick Kluivert
Sló ungur að árum í
gegn hjá Ajax. Mynd EPA
Federico
Macheda Hetja
á einu augabragði,
en glæsileg byrjun
hefur skyggt á
ferilinn síðan.
Mynd EPA
Gianluigi Buffon
Lokaði á Weah og
Baggio aðeins 17 ára
gamall. Mynd EPA
Wayne
Rooney
Var sextán
ára þegar
hann sökkti
Arsenal og
varð stjarna
á Englandi.
Mynd EPA
Kane í sögubækur Tottenham
Framherjinn magnaði skorar að vild
H
arry Kane, framherji Totten
ham Hotspur, skoraði tvö
mörk í sigri liðsins á Bourne
mouth á sunnudag og hef
ur nú skorað 21 mark í 31 leik í
ensku úrvalsdeildinni. Nú þegar
sjö leikir eru eftir hefur Kane skor
að jafnmörg mörk og hann gerði í 34
deildarleikjum á síðasta tímabili, þar
sem hann sló eftirminnilega í gegn
og stimplaði sig rækilega inn sem
einn besti framherji Englands. Með
mörkunum tveimur á sunnudag varð
Kane sömuleiðis fyrsti leikmaður
Tottenham til að skora 20 mörk eða
fleiri, tvö tímabil í röð, síðan Martin
Chivers afrekaði það árið 1972.
Kane skoraði 31 mark í öllum
keppnum í fyrra en hefur skorað 24
á þessu tímabili. Munar þar mestu
um að hann hefur haft hægar um sig
í Evrópu og bikarkeppnum á þessu
tímabili. En ljóst er að framherjinn
frábæri stefnir hraðbyri að því að
bæta markamet sitt í úrvalsdeildinni
að þessu sinni og fer hann þar fyrir
mögnuðu Tottenhamliði sem situr
nú í öðru sæti deildarinnar og gerir
atlögu að sínum fyrsta meistaratitli í
efstu deild síðan 1961. n
Magnaður Harry Kane er á góðri leið
með að bæta persónulegt markamet
sitt í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur
sjö leiki til að bæta við mörkum.