Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Síða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Síða 66
58 Menning Páskablað 22.–29. mars 2016 Ljóðskáld að skrifa skáldsögu S íðasta ástarjátningin er skáldsaga eftir Dag Hjartar­ son. Ungur maður flytur til Reykjavíkur og verður þátt­ takandi í óvenjulegu verk­ efni æskuvinar síns. Á sama tíma fellur hann fyrir Kristínu. Verkið er ekki einungis ástarsaga því hin ýmsu þjóðfélagsefni eru einnig til umfjöllunar og persóna Davíðs Oddssonar er fyrirferðarmikil í verkinu. Dagur er spurður hvort skilgreina megi söguna sem ástar­ sögu með þjóðfélagslegu ívafi. „Ég held að ástarsaga með þjóðfélags­ legu ívafi sé mjög fín skilgreining,“ segir hann. Nokkurs konar ölvunarástand Dagur hefur verið verðlaun­ aður fyrir ljóð sín, hlaut Bók­ menntaverðlaun Tómasar Guð­ mundssonar árið 2013 fyrir ljóða­ bókina Þar sem vindarnir hvíl­ ast – og fleiri ein­ læg ljóð og fyrr á þessu ári hlaut hann Ljóðstaf Jóns úr Vör. Skáldsaga hans einkennist af ljóðrænum stíl. „Ég er ljóðskáld að skrifa skáldsögu. Þessi bók er mjög ljóðræn á köflum og þar er ég oft að bregða á leik,“ segir hann. „Ég held að á þessum tíma í lífi mínu hefði ég ekki nennt að eyða nokkrum árum í að skrifa skáldsögu sem einkenndist af köldum stíl. Ég þurfti að skrifa stíl sem kitlaði mig og kom mér í stuð.“ Lástu yfir stílnum eða kom hann auðveldlega til þín? „Hann kom mjög auðveldlega en ég lá yfir honum eftir á og reyndi að gæta meðalhófs og ritstýra sjálf­ um mér án þess að slökkva á sköp­ unargleðinni. Þar sem ég er ekki í fullri vinnu við ritstörf var þessi saga skrifuð á fjórum árum. Ég vann í henni með hléum og ég hlakkaði alltaf til að fást við rödd sögumanns, það var nokkurs konar ölvunarástand fyrir mig.“ Það er gaman að lesa þessa bók. Hugsaðirðu meðvitað um það að skrifa bók sem lesandinn gæti skemmt sér yfir? „Það væri mjög einfalt fyrir mig sem höfund að skrifa bara ljóð­ rænan texta en ég vil segja sögu og vil að lesandinn skemmti sér. Ég vil að lesandinn njóti stílsins en sömuleiðis húmorsins sem er þarna vissulega, hafi gaman af að lesa og vilji sjá hvernig þetta fer allt saman.“ Davíð þarna einhvers staðar Það hlýtur að vekja athygli allra þeirra sem lesa bóka hversu áberandi Davíð Oddsson er í verk- inu en stöðugt er vísað til hans og af margvíslegum tilefnum. Af hverju Davíð Oddsson? „Fyrsta setning bókarinnar varð kveikjan að hugmyndinni: Ég hef ekki farið í klippingu síðan Davíð Oddsson var seðlabankastjóri“. Mér fannst þetta sniðug setn­ ing, það er líka einhver ljóðræna í henni og ég elti hana. Ég er fæddur árið 1986 og ég og mín kynslóð munum ekki eftir okkur öðruvísi en að Davíð Oddsson væri þarna einhvers staðar. Mér fannst fyndið og spennandi að draga hann inn í söguna. Ég er hvorki að taka af­ stöðu með honum né móti. Hann er þarna og vofir yfir.“ Hefurðu einhvern tímann hitt Davíð Oddsson? „Ég hef aldrei talað við hann en hef nokkrum sinnum séð hann. Tilfinningin að sjá Davíð Oddsson er dálítið óraunveruleg, eins og að sjá einhvern svífa út úr sjónvarp­ inu. Ég þekki fólk á mínum aldri sem hefur verið að lesa bókina og síðan séð Davíð einhvers staðar, til dæmis í Melabúðinni þar sem hann er að setja mjólk í körfu. Því finnst það mjög sérstök tilfinning.“ Hefur hvarflað að þér að senda honum bókina? „Nei, en hann er bókelskur maður með góðan smekk og von­ andi ratar bókin til hans með sín­ um leiðum.“ Vitleysa að skrifa skáldsögu með fullri vinnu Þú hefur hlotið verðlaun og viður- kenningar, Verðlaun Tómasar Guð- mundssonar og Ljóðstaf Jóns úr Vör. Hefur það virkað sem hvatn- ing? „Já, sannarlega. Það hefur líka komið sér vel fjárhagslega því ég hef aldrei fengið ritlaun þótt ég hafi sótt nokkrum sinnum um. Verðlaunin hafa verið mjög gott klapp á bakið og hvatning til að halda áfram þessu stússi.“ Spurður um næstu verk seg­ ist Dagur vera kominn langt með ljóðahandrit og hann er einnig að vinna í skáldsögu en er stutt kom­ inn. Hann er íslenskukennari í Menntaskólanum við Sund og skrifar í frístundum. „Það getur ver­ ið lýjandi. Kemur ekki að sök hvað ljóðagerðina varðar en það er eig­ inlega vitleysa að skrifa skáldsög­ ur með fullri vinnu. En ég legg ekki árar í bát. Við sjáum hvað setur.“ n Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Síðasta ástarjátningin er skáldsaga eftir Dag Hjartarson „Ég er fæddur árið 1986 og ég og mín kynslóð munum ekki eftir okkur öðruvísi en að Davíð Oddsson væri þarna einhvers staðar. Mér fannst fyndið og spennandi að draga hann inn í söguna. Davíð Oddsson „Hann er bókelskur maður með góðan smekk og vonandi ratar bókin til hans með sínum leiðum.“ MyND Sigurður guNNarSSON Dagur Hjartarson „Ég vil að lesandinn njóti stílsins en sömuleiðis húmorsins sem er þarna vissulega, hafi gaman af að lesa og vilji sjá hvernig þetta fer allt saman.“ MyND Sigtryggur ari Allt fyrir raftækni Yfir 500.000 vörunúmer Miðbæjarradíó ehf. - Ármúla 17, Reykjavík - www.mbr.is - S: 552-8636
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.