Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 66
58 Menning Páskablað 22.–29. mars 2016
Ljóðskáld að skrifa skáldsögu
S
íðasta ástarjátningin er
skáldsaga eftir Dag Hjartar
son. Ungur maður flytur til
Reykjavíkur og verður þátt
takandi í óvenjulegu verk
efni æskuvinar síns. Á sama tíma
fellur hann fyrir Kristínu. Verkið
er ekki einungis ástarsaga því hin
ýmsu þjóðfélagsefni eru einnig til
umfjöllunar og persóna Davíðs
Oddssonar er fyrirferðarmikil í
verkinu. Dagur er spurður hvort
skilgreina megi söguna sem ástar
sögu með þjóðfélagslegu ívafi. „Ég
held að ástarsaga með þjóðfélags
legu ívafi sé mjög fín skilgreining,“
segir hann.
Nokkurs konar
ölvunarástand
Dagur hefur
verið verðlaun
aður fyrir ljóð
sín, hlaut Bók
menntaverðlaun
Tómasar Guð
mundssonar árið
2013 fyrir ljóða
bókina Þar sem
vindarnir hvíl
ast – og fleiri ein
læg ljóð og fyrr
á þessu ári hlaut
hann Ljóðstaf Jóns
úr Vör. Skáldsaga
hans einkennist
af ljóðrænum stíl.
„Ég er ljóðskáld að
skrifa skáldsögu.
Þessi bók er mjög
ljóðræn á köflum
og þar er ég oft að bregða á leik,“
segir hann. „Ég held að á þessum
tíma í lífi mínu hefði ég ekki nennt
að eyða nokkrum árum í að skrifa
skáldsögu sem einkenndist af
köldum stíl. Ég þurfti að skrifa stíl
sem kitlaði mig og kom mér í stuð.“
Lástu yfir stílnum eða kom hann
auðveldlega til þín?
„Hann kom mjög auðveldlega
en ég lá yfir honum eftir á og reyndi
að gæta meðalhófs og ritstýra sjálf
um mér án þess að slökkva á sköp
unargleðinni. Þar sem ég er ekki
í fullri vinnu við ritstörf var þessi
saga skrifuð á fjórum árum. Ég
vann í henni með hléum og ég
hlakkaði alltaf til að fást við rödd
sögumanns, það var nokkurs konar
ölvunarástand fyrir mig.“
Það er gaman að lesa þessa bók.
Hugsaðirðu meðvitað um það
að skrifa bók sem lesandinn gæti
skemmt sér yfir?
„Það væri mjög einfalt fyrir mig
sem höfund að skrifa bara ljóð
rænan texta en ég vil segja sögu
og vil að lesandinn skemmti sér.
Ég vil að lesandinn njóti stílsins
en sömuleiðis húmorsins sem er
þarna vissulega, hafi gaman af að
lesa og vilji sjá hvernig þetta fer allt
saman.“
Davíð þarna einhvers staðar
Það hlýtur að vekja athygli allra
þeirra sem lesa bóka hversu
áberandi Davíð Oddsson er í verk-
inu en stöðugt er vísað til hans og af
margvíslegum tilefnum. Af hverju
Davíð Oddsson?
„Fyrsta setning bókarinnar varð
kveikjan að hugmyndinni: Ég hef
ekki farið í klippingu síðan Davíð
Oddsson var seðlabankastjóri“.
Mér fannst þetta sniðug setn
ing, það er líka einhver ljóðræna í
henni og ég elti hana. Ég er fæddur
árið 1986 og ég og mín kynslóð
munum ekki eftir okkur öðruvísi
en að Davíð Oddsson væri þarna
einhvers staðar. Mér fannst fyndið
og spennandi að draga hann inn
í söguna. Ég er hvorki að taka af
stöðu með honum né móti. Hann
er þarna og vofir yfir.“
Hefurðu einhvern tímann hitt
Davíð Oddsson?
„Ég hef aldrei talað við hann en
hef nokkrum sinnum séð hann.
Tilfinningin að sjá Davíð Oddsson
er dálítið óraunveruleg, eins og að
sjá einhvern svífa út úr sjónvarp
inu. Ég þekki fólk á mínum aldri
sem hefur verið að lesa bókina og
síðan séð Davíð einhvers staðar,
til dæmis í Melabúðinni þar sem
hann er að setja mjólk í körfu. Því
finnst það mjög sérstök tilfinning.“
Hefur hvarflað að þér að senda
honum bókina?
„Nei, en hann er bókelskur
maður með góðan smekk og von
andi ratar bókin til hans með sín
um leiðum.“
Vitleysa að skrifa skáldsögu
með fullri vinnu
Þú hefur hlotið verðlaun og viður-
kenningar, Verðlaun Tómasar Guð-
mundssonar og Ljóðstaf Jóns úr
Vör. Hefur það virkað sem hvatn-
ing?
„Já, sannarlega. Það hefur líka
komið sér vel fjárhagslega því ég
hef aldrei fengið ritlaun þótt ég
hafi sótt nokkrum sinnum um.
Verðlaunin hafa verið mjög gott
klapp á bakið og hvatning til að
halda áfram þessu stússi.“
Spurður um næstu verk seg
ist Dagur vera kominn langt með
ljóðahandrit og hann er einnig að
vinna í skáldsögu en er stutt kom
inn. Hann er íslenskukennari í
Menntaskólanum við Sund og
skrifar í frístundum. „Það getur ver
ið lýjandi. Kemur ekki að sök hvað
ljóðagerðina varðar en það er eig
inlega vitleysa að skrifa skáldsög
ur með fullri vinnu. En ég legg ekki
árar í bát. Við sjáum hvað setur.“ n
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Síðasta ástarjátningin er skáldsaga eftir Dag Hjartarson
„Ég er fæddur árið
1986 og ég og mín
kynslóð munum ekki
eftir okkur öðruvísi en
að Davíð Oddsson væri
þarna einhvers staðar.
Mér fannst fyndið og
spennandi að draga hann
inn í söguna.
Davíð Oddsson „Hann er bókelskur maður með góðan smekk og vonandi ratar bókin til
hans með sínum leiðum.“ MyND Sigurður guNNarSSON
Dagur Hjartarson
„Ég vil að lesandinn
njóti stílsins en
sömuleiðis húmorsins
sem er þarna vissulega,
hafi gaman af að lesa
og vilji sjá hvernig þetta
fer allt saman.“
MyND Sigtryggur ari
Allt fyrir raftækni
Yfir 500.000 vörunúmer
Miðbæjarradíó ehf. - Ármúla 17, Reykjavík - www.mbr.is - S: 552-8636