Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Page 86
Páskablað 22.–29. mars 201678 Fólk
Allt til ræktunar
og fullt af fíneríi
fyrir heimilið og bústaðinn
HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook
N
ýir gamanþættir sem nefnast
Ligeglad hefja göngu sína á
RÚV annan í páskum. Í þátt-
unum mun leikkonan og
uppistandarinn Anna Svava Knúts-
dóttir halda til Danmerkur þar sem
hún hittir fyrir þá Helga Björnsson
og Vigni Rafn Valþórsson. Meira hef-
ur ekki verið gefið upp um þættina.
Útvaldir boðsgestir fengu hins vegar
að sjá fyrsta þáttinn í Hafnarhúsinu
síðastliðinn föstudag og virtist hann
leggjast vel í fólk sem kepptist við að
lofsama Ligeglad á Twitter. Áhorf-
endur RÚV mega því væntanlega bú-
ast við grínveislu næstu vikur. n
Ligeglad leggst vel í fólk
Útvaldir fengu að sjá fyrsta þáttinn í nýrri gamanþáttaseríu
Töff týpur Hildur Brynjólfsdóttir og Kjartan
Guðjónsson stilltu sér upp fyrir ljósmyndara.
Tveir sprækir Þeir Arnar Knútsson og
Karl Pétur Jónsson voru að sjálfsögðu
sprækir á frumsýningunni.
Flottir saman Arnór Pálmi Arnarson og
Þorvaldur Davíð Kristjánsson voru spenntir
að sjá fyrsta þáttinn á tjaldinu.
Blúsinn ómaði á Skólavörðustíg
Blúshátíð hófst um síðustu helgi og bærinn iðaði af lífi
B
lúshátíð var sett í Reykjavík
þann 19. mars og var mikið
líf og fjör í miðbænum af
því tilefni. Blúsinn ómaði á
Skólavörðustíg á meðan veg-
farendur gæddu sér á pylsum, sýndu
sig og sáu aðra. Þekktir blúsarar létu
sig að sjálfsögðu ekki vanta. Hátíðin
stendur yfir til 25. mars og ættu blús-
unnendur og aðrir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi á öllum þeim
viðburðum sem boðið er upp á í
tengslum við hátíðina. n
Þrír góðir Halldór Bragason,
listrænn stjórnandi Blúshátíðar,
Chicago Beau og Eggert feldskeri
tóku sig vel út á Skólavörðustígnum.
Pylsupartí Birna Þórðardóttir stóð vaktina við pönnuna og steikti pylsur eins og hún hefði
aldrei gert annað.
Falleg fjölskylda Stjörnuparið Karl
Sigurðsson og Tobba Marinós röltu um
bæinn vopnuð sólgleraugum ásamt dóttur
sinni Regínu.
Texasblús Magnús Ingi Magnússon, betur
þekktur sem Texas-Maggi á veitingastaðnum
Texasborgurum, lét sig ekki vanta í blúsinn.
Meiri blús Eggert Feldskeri greip í gítarinn
og tók lagið að vanda.
Glæsilegar Blúsdrottningin Andrea Gylfa-
dóttir og Guðrún Ögmundsdóttir nutu ljúfra
tóna í miðborginni.