Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Blaðsíða 11
Fréttir 11Helgarblað 21.–25. apríl 2016 Ólafur (ekki) Ósigrandi 3 Hver er líklegastur í augnablikinu til að veita Ólafi verðuga samkeppni? (Af þeim sem komnir eru fram eða ekki) „Andri Snær getur unnið ef hann nær að höfða til fleiri en hing- að til. Og ef hann er vel búinn undir þann skít sem Ólafur Ragnar mun nú leynt eða ljóst ausa yfir hann, líkt og kom Þóru Arnórs úr jafnvægi fyrir fjórum árum.“ „Andri Snær Magnason. Ekki spurning. Ég hafði vonað að Guðni Th. myndi bjóða sig fram en ég reikna ekki með því úr þessu.“ „Guðni Th. Jóhannesson er sá eini sem nefndur hefur verið sem mögulega gæti att kappi við Ólaf.“ „Enginn þeirra, sem nú er kominn fram. Eini maðurinn, sem hefði átt svipaða möguleika og Ólafur Ragnar, er Davíð Odds- son. Hann hefði haft víst um 30–35% fylgi og hefði fullnægt öllum sömu skilyrðunum og Ólafur til að geta verið forseti. Hann hefði auk þess áreiðanlega unnið fylgi í kosningabarátt- unni.“ „Guðni Th. Jóhannesson væri mjög sterkur kandídat og ég skora hér með á hann að láta slag standa þó að mér heyrist hann hafa gefið það frá sér. Andri Snær mun annars fá næstflest atkvæði. “ „Andri Snær. Ekki spurning. En hann verður líka að vera tilbúinn að „get down and dirty“, þetta vinnst því miður ekki á málefn- unum. Ekkert vinnst á málefnunum.“ „Afar hæfur, sjarmerandi og vel þekktur einstaklingur sem gæfi kost á sér gæti e.t.v. náð að hrífa kjósendur með sér undir slagorði um nýja og betri tíma. Slíkir einstaklingar hafa þó ekki verið á lausu sem skýrir e.t.v. hvers vegna Ólafur Ragnar býður sig enn á ný fram.“ „Líklega Guðni Th. Af þeim sem eru komnir fram Andri Snær – aðrir eiga ekki möguleika.“ 2 Hvað þurfa aðrir frambjóðendur fyrst og fremst að gera til að eiga möguleika? „Þeir þurfa að sýna heiðarleika og auðmýkt, og að þeir séu ekki í framboði til að fara út í klækjastjórnmál. Þá er líka einfalt að benda á að Ólafur Ragnar er guðfaðir sitjandi ríkisstjórnar, ríkisstjórnar sem stór hluti þjóðarinnar vill frá.“ „Vera þjóðþekktir, sýna þjóðinni að þeim sé treystandi til að taka við og að þeir séu ekki ofurseldir pólitískum öflum.“ „Frambjóðendur til forseta þurfa að vera þjóðkunnir og njóta trausts og hafa unnið sér inn fyrir embættinu. Þeir þurfa að hafa reynslu af mannaforráð- um og kunna að koma virðulega fram á erlendum vettvangi. Enginn hinna frambjóðendanna fullnægði þessum skilyrðum, og framboð flestra þeirra var fullkominn skrípaleikur.“ „Til að sigra þarf frambjóðandi fyrst og fremst að bjóða upp á skýra fram- tíðarhugsun. Hugsun Ólafs Ragnars er föst í fortíðinni og hann mun ekki komast þaðan héðan af.“ „Þeir þurfa skýran málflutning og hugmynd. Þeir þurfa líka að vera tilbúnir að slást. Ólafur Ragnar er bardagamaður, hreinræktaður. Hann er með pólitískt IQ sem er óviðjafnanlegt. Hann leikur sér að því að láta fólk líta illa út en held- ur rosalegu kúli á meðan. Hann hefur yfir sér þennan gamla og vitra sjarma, en hann er slóttugur og snjall. Frambjóðendur þurfa að vera snjallari. Ekki einlægari eða krúttlegri – þeir þurfa að vera snjallari og slóttugri. Þeir þurfa að taka hann í bólinu.“ „Skammt er til kosninga og nýir frambjóðendur hafa ekki mikinn tíma til að kynna sig og afla sér stuðnings. Þeir geta ekki treyst á fjölmiðla og verða sjálf- ir að eyða fé og vinnu í að tengjast kjósendum. Þetta þarf Ólafur ekki að gera. Veikleiki Ólafs felst í því að honum er legið á hálsi fyrir að vera þaulsætinn í embætti og hann er að eldast.“ „Þeir þurfa að taka stjórnina á umræðunni frá sitjandi forseta. Sitjandi forseti hefur nú skilgreint kosningabaráttuna út frá óvissu og ólgu í samfélaginu. Ef einhver ætti að eiga séns í hann þyrfti viðkomandi að endurskilgreina baráttuna, jafnvel benda á mistök sem sitjandi forseti hefur gert á síðustu misserum og benda þjóðinni á hvernig áframhaldandi seta hans muni ekki leysa vanda þjóðarinnar.“ „Það þarf að vera skýrt hvað þeir standa fyrir og þeir þurfa að benda með mjög skýrum hætti á veikleika Ólafs Ragnars. Hafa kjark til að vera með beitta gagnrýni í garð Ólafs og taka slaginn við hann sem yrði blóðugur.“ 4 Heldur þú að einhver nýr frambjóðandi sé líklegur til að koma fram úr þessu? „Davíð [Oddsson] ætlaði fram, en hann þorir vart héðan af. Það er þrýst á Kötu Jak að endurskoða ákvörðun sína um að fara ekki fram, en ég efast um að hún skipti um skoðun. Hvað Guðni Th. gerir veit enginn. Hann myndi vinna Ólaf Ragnar örugglega ef Andri Snær væri ekki á sviðinu.“ „Ekki séns. Frambjóðendur eru nú þegar farnir að hætta við framboð þannig að þróunin verður frekar í þá átt.“ „Nei, því miður.“ „Nei, ég tel það frekar ólíklegt.“ „Nei, enginn með vigt allavega.“ „Nei, en fleiri munu heltast úr lestinni – með réttu.“ „Ekki sterkur frambjóðandi. Það er óðs manns æði að fara gegn Ólafi Ragnari í þeirri sterku stöðu sem hann er.“ Álitsgjafar DV Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og dósent Friðjón R. Friðjónsson almannatengill Illugi Jökulsson blaðamaður Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor Björk Eiðsdóttir ritstjóri Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor Halldór Halldórsson (DNA), leikari og grínisti Erla Hlynsdóttir ritstjóri 1 Er hægt að sigra sitjandi forseta til 20 ára eins og Ólaf Ragnar Grímsson í kosningum? „Það er vel hægt að sigra hann. Þótt hann hafi lipran talanda og traustlegt yfirbragð, þá kemur í ljós þegar orðræða hans er skoðuð að þar er á ferð samsafn af innihaldslitlum og jafnvel barnalegum klisjum. Frambjóðandi sem ósmeykur gengur á hólm við það getur vel unnið.“ „Já, það er hægt en það þarf eitthvað mikið að koma til til þess að það gerist. Hann er í mjög sterkri stöðu. Hann er pólitískur refur og um leið og færi að halla undan fæti myndi hann finna leið til að ráðast á hættulegasta frambjóðandann og ganga frá honum eins og hann gerði við Þóru. Ólafur Ragnar er snjallasti stjórnmálamaður samtímans, bæði ljón og refur í hinum pólitíska slag. Enginn er betri í tímasetningum en hann. Enginn er óforskammaðri en hann. Enginn slær eins fast frá sér ef honum finnst þess þurfa. Enginn skiptir á svo skömmum tíma um bandamenn í pólitík. Enginn fórnar bandamönnum sínum fyrir framan alþjóð á sama hátt og hann til að tryggja stöðu sína. Hann skiptir um lið án þess að hika. Það er því mjög erfitt að fella hann.“ „Nei. Það er auðvitað hægt að sigra sitjandi forseta, og það hefur gerst í öðrum löndum, en staða Ólafs Ragnars er sterk um þessar mundir. Fólki finnst öryggi að honum.“ „Ef það er hægt að sigra sitjandi forseta á Íslandi þá er það nú. Öll þjóðin var búin að gíra sig upp í að fá loksins nýjan forseta og svo dembir hann því á okkur að hann sé barasta aftur hættur við að hætta. Þetta er löngu orðið þreytandi.“ „Já, réttur frambjóðandi sem er þjóðþekktur, tiltölulega óumdeildur og nýtur trausts getur það.“ „Já, eða við verðum að minnsta kosti að vona það. Í hnefaleikum er gjarnan sagt að þú þurfir að stöðva heimsmeistara til að verða heimsmeistari. Það þýðir ekki að vinna á stigum, eða verða heimsmeistari því hinn er hættur. Ætli þetta sé ekki eins með Ólaf. Hans einu örlög eru að tapa í kosningum. Annars losnarðu ekki við hann.“ „Auðvitað er það fræðilega hægt. Ólafur Ragnar nýtur þess þó að hann nýtur mikils trausts meðal almennings þótt stjórn- málastéttin sé honum frekar andsnúin. Það er þó líka styrkur hans. Styrkur Ólafs felst einnig í því að hvert mannsbarn á Íslandi þekkir hann. Enginn sem orðaður hefur verið við forsetaembættið er viðlíka vel þekktur og hefur jafnsterkt tengslanet.“ „Hefðin segir að það sé ekki hægt og það verður ekki heldur í þetta sinn, því miður – hér búa sömu kjósendur og áður.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.