Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Blaðsíða 32
Helgarblað 21.–25. apríl 201624 Sport Sumargjöfin í ár! fæst í scootlife ísland, Rofabæ 9, 110 Rvk Þráðlausu Touch heyrnartólin eru seld í Scootlife Ísland. Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki. Einnig er hægt að svara í símann með þeim. Úrvalslið Aston Villa n Fallið úr úrvalsdeild í fyrsta sinn n Svona liti liðið út ef það hefði ekki selt sína bestu leikmenn Baldur Guðmundsson baldur@dv.is U m helgina varð endanlega ljóst að Aston Villa, það fornfræga félag, er fallið um deild. Liðið, sem hefur leik- ið í efstu deild frá haustinu 1987 og þar til nú, er eitt sjö liða sem hafa leikið í Úrvalsdeildinni frá stofnun hennar, árið 1992. Hin liðin eru Arsenal, Liverpool, Manchester United, Everton, Tottenham og Chelsea. Það lið sem lengst hefur leik- ið í efstu deild í Englandi er Arsenal, en það féll síðast vorið 1913. Aston Villa hefur mátt muna sinn fífil fegurri. Liðið vann deildina síð- ast árið 1981 en í tvígang, árin 1990 og 1993, varð liðið í öðru sæti efstu deildar. Liðið vann síðast titil árið 2008 þegar það vann Evrópukeppni bikarhafa, Intertoto Cup. Liðið komst reyndar í úrslit FA Cup á síðustu leik- tíð en hefur annars ekki verið til stór- ræða síðustu árin. Félagið hefur naumlega sloppið við fall síðustu þrjú keppnistímabil en stutt er síðan liðið var í hópi þeirra liða sem börðust um Evrópusæti. Þannig hafnaði liðið þrjár leiktíðir í röð, undir stjórn Martins O‘Neil, í sjötta sæti. Það var árin 2008, 2009 og 2010. Frá brotthvarfi O‘Neil hefur leiðin legið niður á við. Á þessu keppnistímabili hefur lengi verið ljóst í hvað stefndi. Það voru því kaldar kveðjur sem eig- andinn Randy Lerner sendi stuðn- ingsmönnum þegar hann ákvað að veita stjóranum, Remi Garde, ekki fé til að styrkja liðið í janúarglugganum. Liðið átti aldrei von. Aston Villa hefur ekki um langa hríð haft fjárhagslegt bolmagn til að hafna tilboðum í góða leikmenn fé- lagsins. Bestu bitarnir hafa þannig verið seldir jafnharðan og þeir slá í gegn. Liðið á þessu tímabili er eitt það versta sem leikið hefur í úrvals- deildinni. Squawka tók saman lista yfir þá leikmenn sem gætu skipað lið Villa í dag, ef þeir hefðu ekki verið seldir. n Brad Guzan Staða: Mark Leikir fyrir Villa: 140 Seldur fyrir: Á ekki við Félag í dag: Aston Villa n Slæmt gengi Villa verður seint skrifað á Guzan. Hann hefur leikið með Villa síðan 2008 og var besta bjartasta von félagsins um að liðið félli ekki um deild. Guzan hefur verið aðalmarkvörður liðsins undanfarnar fjórar leiktíðir. Micah Richards Staða: Hægri bakvörður Leikir fyrir Villa: 23 Seldur fyrir: Á ekki við Félag í dag: Aston Villa n Richards er yngsti varnarmaðurinn til að vera valinn í enska landsliðið, aðeins 17 ára gamall. Hann ólst upp hjá Manchester City, þar sem hann var í tíu ár áður en hann gekk í raðir Villa 2015. Hann glímdi við meiðsli á tímabilinu en var um tíma fyrirliði undir stjórn Tim Sherwood. Gary Cahill Staða: Miðvörður Leikir fyrir Villa: 31 Seldur fyrir: 5 milljónir punda Félag í dag: Chelsea n Cahill fór frá Villa til Bolton 2008 áður en hann gekk í raðir Chelsea 2012. Afar áreiðanlegur varnarmaður sem hefur notið velgengni með landsliðinu allt frá árinu 2009. Drjúgur í markaskorun af varnar- manni að vera enda hefur hann skorað 38 mörk fyrir félög sín og landslið. Ron Vlaar Staða: Miðvörður Leikir fyrir Villa: 86 Seldur fyrir: Ekki krónu Félag í dag: AZ Alkmaar n Vlaar var lykilmaður í liðið Villa á árunum 2012–2015. Það sem varpaði skugga á þann tíma voru meiðsli af ýmsum toga. Sem fyrirliða tókst Vlaar að afstýra liðinu frá Falli 2012/2013 en svo fór að hann hafnaði nýjum samningi árið 2015. Hann fór heim til Hollands. Ryan Bertrand Staða: Vinstri bakvörður Leikir fyrir Villa: 16 Seldur fyrir: Á ekki við Félag í dag: Southampton n Bertrand var á mála hjá Chelsea frá árinu 2006 til 2015. Á þeim tíma lék hann sem lánsmaður úti um allar trissur. Hann lék 16 leiki fyrir Villa árið 2014 en færði sig svo til Southampton þar sem honum gekk sérstaklega vel. Svo fór að hann skrifaði undir varanlegan samning við félagið og var einn af bestu leikmönnum deildarinnar á síðustu leiktíð. James Milner Staða: Hægri kantmaður Leikir fyrir Villa: 93 Seldur fyrir: 26 milljónir punda Félag í dag: Liverpool n Milner sló í gegn með Villa og var af áhorf- endum valinn besti leikmaður liðsins auk þess að vera valinn efnilegastur í deildinni af samtökum leikmanna. Dugnaður og elja einkennir leik landsliðsmannsins en hann var seldur til Manchester City fyrir háa fjárhæð 2010. Steven Davis Staða: Miðjumaður Leikir fyrir Villa: 102 Seldur fyrir: 4 milljónir punda Félag í dag: Southampton n Villa var fyrsta úrvalsdeildarfélag Davis. Á fyrsta tímabili sínu með liðinu, 2004/2005, var hann bæði valinn efnilegastur og bestur. Hann hefur verið fasta maður í landsliði Norður-Íra síðastliðinn áratug og er nú á mála hjá Southampton, eftir að hafa spilað bæði með Rangers og Fulham. Fabian Delph Staða: Miðjumaður Leikir fyrir Villa: 134 Seldur fyrir: 8 milljónir punda Félag í dag: Manchester City n Delph sló í gegn á miðjunni hjá Villa 2012/2013 og virtist eiga bjarta framtíð fyrir sér hjá félaginu. Blekið hafði varla þornað á yfir- lýsingu leikmannsins, undir lok leiktíðarinnar 2014/2015, um að hann ætlaði að vera áfram hjá félaginu, þegar hann skrifaði undir hjá City. Þetta gramdist stuðningsmönnum mjög. Marc Albrighton Staða: Vinstri kantmaður Leikir fyrir Villa: 101 Seldur fyrir: Leystur undan samningi Félag í dag: Leicester n Albrighton ólst upp hjá félaginu og lék í um fjögur ár með aðalliðinu. Hann fór svo sem lánsmaður til Wigan en fékk ekki fram- lengdan samning sinn hjá Aston Villa. Hann gekk í raðir Leicester 2014 og er nú sá enski leikmaður í deildinni sem búið hefur til flest marktækifæri fyrir félaga sína, en Leicester er hársbreidd frá því að verða enskur meistari. Christian Benteke Staða: Framherji Leikir fyrir Villa: 101 Seldur fyrir: 32,5 milljónir punda Félag í dag: Liverpool n Benteke er besti framherji sem leikið hefur í með Aston Villa í áraraðir. Hann lék með liðinu í þrjú keppnistímabil og skoraði 42 mörk í 89 deildarleikjum. Hann fór til Liverpool 2015. Þar hefur ekki gengið eins vel og hann gæti farið frá félaginu í sumar. Ashley Young Staða: Sóknarmaður Leikir fyrir Villa: 190 Seldur fyrir: 15–20 milljónir punda Félag í dag: Manchester United n Young fékk ekki samning hjá Watford árið 2007 en Villa sýndi honum áhuga. Þar átti hann frábæran tíma í fjögur ár. En eins og svo margir aðrir sem slá í gegn, vakti hann athygli fjársterkari liða. Liverpool og Manchester United buðu í hann og hann skrifaði undir hjá United 2011. Þar hefur gengið upp og ofan. Bekkurinn: n Scott Carson n James Collins n Stewart Downing n Michael Bradley n Gareth Barry n Darren Bent n Wayne Routledge

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.