Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Blaðsíða 25
Helgarblað 21.–25. apríl 2016 Kynningarblað - Í góðum málum 5 Leiðandi í háþrýstiþvotti ÁÁ Verktakar ehf. H áþrýstiþvottur er óhjá- kvæmilegur undanfari stórra málningarverkefna utanhúss og ákaflega skil- virk aðferð til að gera hús og byggingar klárar undir máln- ingu. Fyrirtækið ÁÁ Verktakar ehf. er leiðandi á sviði háþrýsti- þvottar hér á landi og hefur yfir að ráða afar öflugum búnaði til slíkra verka, sem er allur í eigu fyrirtæk- isins. Til að hreinsa málningu af hús- um er notast við 500 bara hitadæl- ur sem geta hitað vatn upp í 100 gráður. Slíkar dælur eru einnig notaðar í alls konar fitu- og olíu- hreinsanir og víðar þar sem við á. „Íbúðarhús eru oft hreinsuð með um 300 til 500 bara þrýstingi og köldu vatni sem dugar til að hreinsa óhreinindi og gróður af húsum. En svo geta verið öndunar- vandamál og vatnspokar og þá þarf að hreinsa gömlu málninguna alla af, þ.e. alhreinsun. Þá þarf að nota heitt vatn,“ segir Áslaugur Einars- son, framkvæmdastjóri ÁÁ Verk- taka. Fyrirtækið var stofnað árið 1991 og hefur það vaxið og dafnað allar götur síðan. Auk háþrýstingsþvott- ar sérhæfir ÁÁ Verktakar ehf. sig í viðhaldi fasteigna, til dæmis múr- viðgerðum, málningarvinnu, tré- smíðavinnu og annarri viðhalds- vinnu fasteigna. Sem fyrr segir er búnaður ÁÁ Verktaka til háþrýstiþvotta afar öfl- ugur: „Við erum með 3.000 bara dæl- ur sem eru notaðar til að hreinsa málningu af stáli. Enn fremur við hreinsanir á túrbínuhjólum og ýmsu öðru. Þrýstingurinn á þeim er afar hár og þær mjög öflugar. Enn fremur erum við með 1.500 bara dælur, mjög vatnsmiklar, þær eru meðal annars notaðar í virkj- anir, til að hreinsa úr borholum og rörum og vörmum,“ segir Áslaug- ur. Háþrýstidælurnar koma annars vegar frá Þýskalandi, frá framleið- andanum Falch, og hins vegar frá Bandaríkjunum, frá fyrirtækinu Garden Denver, en báðir aðilar eru afar öflugir framleiðendur há- þrýstidæla. ÁÁ Verktakar ehf. er staðsett í Reykjanesbæ en að sögn Áslaugs eru langflest verkefni þeirra á höf- uðborgarsvæðinu. Viðskiptavin- ir fyrirtækisins eru af ýmsu tagi, til dæmis almennir húseigendur sem ætla að mála hús sitt og þurfa á háþrýstiþvotti að halda til að gera klárt undir málun. Einnig er al- gengt að málarameistarar leiti til fyrirtækisins eftir tilboðum í há- þrýstiþvott. Háþrýstiþvotturinn er einnig oft hluti af stærri verkefnum fyrirtæk- isins enda sinni það margs konar húsaviðgerðum og eru með fjölda múrara í vinnu. Einnig hefur fyr- irtækið unnið mikið fyrir orkufyr- irtæki við að beita hinum öflugu háþrýstidælum við hreinsanir úr borholum og fleira. Þá hefur ÁÁ Verktakar ehf. unnið mikið fyrir út- gerðarfyrirtækið og sinnir öllum þvotti fyrir Stálsmiðjuna Framtak, sem rekur Slippinn í Reykjavík. Sem fyrr segir hefur verið mikil vöxtur í starfseminni: „Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt frá því við byrjuðum og tækja- kosturinn hefur fylgt með. Það varð vissulega dálítið stopp eftir hrunið eins og hjá mörgum en síð- an hefur þetta legið upp á við. Sem dæmi um það keyptum við 3.000 bara háþrýstidæluna árið 2013 og var það fyrsta dælan af slíku tagi sem seld var frá Þýskalandi inn- an Evrópu. Einnig höfum við bætt við okkur skæralyftum og spjótum til að nota þegar unnið er við hærri byggingar,“ segir Áslaugur að lok- um. n ÁÁ Verktakar ehf. Fitjabraut 4 260 Reykjanesbær Símar: 421-6530 og 898-2210 aaverktakar@aaverktakar.is Heimasíða: www.aaverktakar.is Unnið við háþrýsti- þvott á einbýlishúsi. Háþrýstiþvottur á fjölbýlishúsi. Háþrýsti- þvottur á bárujárns- húsi. Myndin hægra megin sýnir einbýlishús eftir háþrýstiþvott – vinstra megin er sama hús eftir pússningu og fíltun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.