Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Page 25
Helgarblað 21.–25. apríl 2016 Kynningarblað - Í góðum málum 5
Leiðandi í
háþrýstiþvotti
ÁÁ Verktakar ehf.
H
áþrýstiþvottur er óhjá-
kvæmilegur undanfari
stórra málningarverkefna
utanhúss og ákaflega skil-
virk aðferð til að gera hús
og byggingar klárar undir máln-
ingu. Fyrirtækið ÁÁ Verktakar
ehf. er leiðandi á sviði háþrýsti-
þvottar hér á landi og hefur yfir að
ráða afar öflugum búnaði til slíkra
verka, sem er allur í eigu fyrirtæk-
isins.
Til að hreinsa málningu af hús-
um er notast við 500 bara hitadæl-
ur sem geta hitað vatn upp í 100
gráður. Slíkar dælur eru einnig
notaðar í alls konar fitu- og olíu-
hreinsanir og víðar þar sem við á.
„Íbúðarhús eru oft hreinsuð
með um 300 til 500 bara þrýstingi
og köldu vatni sem dugar til að
hreinsa óhreinindi og gróður af
húsum. En svo geta verið öndunar-
vandamál og vatnspokar og þá þarf
að hreinsa gömlu málninguna alla
af, þ.e. alhreinsun. Þá þarf að nota
heitt vatn,“ segir Áslaugur Einars-
son, framkvæmdastjóri ÁÁ Verk-
taka.
Fyrirtækið var stofnað árið 1991
og hefur það vaxið og dafnað allar
götur síðan. Auk háþrýstingsþvott-
ar sérhæfir ÁÁ Verktakar ehf. sig í
viðhaldi fasteigna, til dæmis múr-
viðgerðum, málningarvinnu, tré-
smíðavinnu og annarri viðhalds-
vinnu fasteigna.
Sem fyrr segir er búnaður ÁÁ
Verktaka til háþrýstiþvotta afar öfl-
ugur:
„Við erum með 3.000 bara dæl-
ur sem eru notaðar til að hreinsa
málningu af stáli. Enn fremur við
hreinsanir á túrbínuhjólum og
ýmsu öðru. Þrýstingurinn á þeim
er afar hár og þær mjög öflugar.
Enn fremur erum við með 1.500
bara dælur, mjög vatnsmiklar, þær
eru meðal annars notaðar í virkj-
anir, til að hreinsa úr borholum og
rörum og vörmum,“ segir Áslaug-
ur. Háþrýstidælurnar koma annars
vegar frá Þýskalandi, frá framleið-
andanum Falch, og hins vegar frá
Bandaríkjunum, frá fyrirtækinu
Garden Denver, en báðir aðilar
eru afar öflugir framleiðendur há-
þrýstidæla.
ÁÁ Verktakar ehf. er staðsett í
Reykjanesbæ en að sögn Áslaugs
eru langflest verkefni þeirra á höf-
uðborgarsvæðinu. Viðskiptavin-
ir fyrirtækisins eru af ýmsu tagi,
til dæmis almennir húseigendur
sem ætla að mála hús sitt og þurfa
á háþrýstiþvotti að halda til að gera
klárt undir málun. Einnig er al-
gengt að málarameistarar leiti til
fyrirtækisins eftir tilboðum í há-
þrýstiþvott.
Háþrýstiþvotturinn er einnig oft
hluti af stærri verkefnum fyrirtæk-
isins enda sinni það margs konar
húsaviðgerðum og eru með fjölda
múrara í vinnu. Einnig hefur fyr-
irtækið unnið mikið fyrir orkufyr-
irtæki við að beita hinum öflugu
háþrýstidælum við hreinsanir úr
borholum og fleira. Þá hefur ÁÁ
Verktakar ehf. unnið mikið fyrir út-
gerðarfyrirtækið og sinnir öllum
þvotti fyrir Stálsmiðjuna Framtak,
sem rekur Slippinn í Reykjavík.
Sem fyrr segir hefur verið mikil
vöxtur í starfseminni:
„Starfsemin hefur vaxið jafnt og
þétt frá því við byrjuðum og tækja-
kosturinn hefur fylgt með. Það
varð vissulega dálítið stopp eftir
hrunið eins og hjá mörgum en síð-
an hefur þetta legið upp á við. Sem
dæmi um það keyptum við 3.000
bara háþrýstidæluna árið 2013 og
var það fyrsta dælan af slíku tagi
sem seld var frá Þýskalandi inn-
an Evrópu. Einnig höfum við bætt
við okkur skæralyftum og spjótum
til að nota þegar unnið er við hærri
byggingar,“ segir Áslaugur að lok-
um. n
ÁÁ Verktakar ehf.
Fitjabraut 4
260 Reykjanesbær
Símar: 421-6530 og 898-2210
aaverktakar@aaverktakar.is
Heimasíða: www.aaverktakar.is
Unnið við háþrýsti-
þvott á einbýlishúsi.
Háþrýstiþvottur á
fjölbýlishúsi.
Háþrýsti-
þvottur á
bárujárns-
húsi.
Myndin hægra megin
sýnir einbýlishús eftir
háþrýstiþvott – vinstra
megin er sama hús eftir
pússningu og fíltun.