Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Blaðsíða 21
Kynningarblað Í góðum málum Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 21. apríl 2016 Fagmennskan er grundvallaratriði M álarameistarafélagið var stofnað fyrir 88 árum. Stofnfundur félagsins var haldinn í baðstofu iðnað­ armanna við Vonarstræti í Reykjavík, þann 26. febrúar árið 1928. Tilgangur félagsins var meðal annars sá að efla samvinnu meðal málarameistara og stuðla að menn­ ingu og menntun stéttarinnar, gæta í hvívetna hagsmuna félagsmanna og vera málsvari félagsmanna gagn­ vart almenningi og hinu opinbera. Óhætt er að segja að þessi atr­ iði séu í fullu gildi enn þann dag í dag og afar mikilvægt er að gæta að fagmennsku innan málaragreinar­ innar og stuðla að því að einung­ is aðilar með tilskilin réttindi sinni þessum mikilvægu verkefnum sem svo mjög snerta hag almennra borgara, fyrirtækja og stofnana. Ötullega hefur verið unnið að hagsmunamálum félagsins frá upp­ hafi og hafa margir lagt þar hönd á plóginn í gegnum tíðina í hinum ýmsu trúnaðarstörfum. Manna­ skipti í stjórn hafa ekki mjög tíð í gegnum árin og má segja að í þeim efnum hafi ríkt stöðugleiki með hæfilegri endurnýjun. Málarameistarafélagið hefur unnið ötullega að verkmenntun málarastéttarinnar í gegnum tíðina og árið 1953 kom félagið því til leið­ ar að málaradeild var stofnuð innan Iðnskólans í Reykjavík. Ábyrgðarsjóður MSI Málarameistarafélagið er félagi í Meistaradeild Samtaka iðnaðarins (SMI) og þar með aðili að Ábyrgðar­ sjóði MSI. Tilgangur ábyrgðarsjóðs­ ins er meðal annars sá að skapa traust á milli verkkaupa og verk­ taka og tryggja viðskiptavinum fé­ lagsmanna MSI eins og kostur er að vinna sem framkvæmd er af fé­ lagsmönnum MSI sé í samræmi við skriflegt samkomulag um verkið og góð fagleg vinnubrögð. Standist vinna af einhverjum ástæðum ekki þær kröfur sem viðskiptavinur ger­ ir til verksins getur hann lagt málið fyrir Úrskurðarnefnd MSI. Nánari upplýsingar um þetta er að finna á heimasíðu Málarameistarafélags­ ins, malarar.is, undir liðnum Hag­ nýtar upplýsingar. Óæskilegir farfuglar Flest fögnum við komu farfuglanna á vorin enda eru þeir öruggur fyrirboði þess að sumar sé í vændum. Hins vegar eru til óæskilegir farfuglar svo­ nefndir en það eru óvandaðir aðilar sem taka að sér ýmis viðhaldsverk, þar á meðal málningarvinnu, án þess að hafa til þess tilskilin réttindi. Í langflestum tilfellum er íbúðar­ húsnæði fjölskyldunnar stærsta eign hennar og oft á tíðum það sem allt fjármálakerfi fjölskyldunnar snýst um. Það er því mjög mikilvægt fyrir þá sem ætla að sinna viðhaldi í sum­ ar og fá til þess utanaðkomandi að­ ila, að þeir athugi vel hvort þeir aðil­ ar sem þeir eiga viðskipti við séu þeir fagmenn sem þeir segjast vera og uppfylli þær skyldur og ábyrgð sem fagréttindunum fylgja. Því miður eru allt of mikil brögð að sviksamlegum verkum með afar slæmum afleiðing­ um fyrir verkkaupa. Til að fyrirbyggja slíkt er mikilvægt að eiga eingöngu viðskipti við raunverulega fagmenn. Mikilvægt er að fá skrifleg tilboð og ef um stærri framkvæmdir er að ræða, að gerður sér skriflegur samning­ ur þar sem fram kemur um hvað er samið, verð og svo framvegis. Á heimasíðu Málarameistarafé­ lagsins, malarar.is, er að finna upp­ lýsingar um málarameistara sem eru með sín réttindamál á hreinu og standa undir nafni með vönd­ uðum vinnubrögðum. Einnig er þar að finna ítarlegar upplýsingar um hvernig best er að standa að því að fara í verklegar framkvæmdir, hvað þarf að hafa í huga og hvað ber að athuga. Mögulegt er að setja inn beiðni um tilboð í verkefni á heimasíðunni og fá þá allir félagsmenn tilkynn­ ingu þar um. Þetta getur því sparað fólki tíma frá símhringingum ásamt því að sjálfsögðu að það tryggir sér áreiðanlegan verktaka með reynslu og ábyrgð á sínum verkum. Málarameistarafélagið er til húsa að Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Skrifstofa félagsins er opin á mið­ vikudögum frá kl. 10 til 16. Síminn er 568­1165 og netfang mmf@malarar. is n Málarameistarafélagið:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.