Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2016, Blaðsíða 10
Helgarblað 21.–25. apríl 201610 Fréttir
Þ
að er fræðilega hægt en þó
á sama tíma nær ómögu-
legt að sigra sitjandi forseta
til 20 ára með eins sterka
stöðu og Ólafur Ragnar
Grímsson hefur, að mati álitsgjafa
DV. Andri Snær Magnason þykir
líklegastur til að veita Ólafi verðuga
samkeppni af þeim frambjóðend-
um sem komnir eru fram en Guðni
Th. Jóhannesson er talinn geta
komið sterkur inn ef hann ákveð-
ur að taka slaginn. Kjark þarf til að
taka slaginn við forseta Íslands
sem þykir snjallasti stjórn-
málamaður samtímans,
bæði ljón og refur en
líka óforskammaður og óvæginn.
Sá slagur yrði því alltaf blóðugur.
Fæstir búast við því að nýir fram-
bjóðendur taki slaginn úr þessu,
og telja það jafnvel óðs manns æði,
eftir að Ólafur Ragnar lýsti því yfir
að hann myndi bjóða sig fram til
forseta í sjötta sinn í vikunni.
DV leitaði til álitsgjafa úr ýms-
um áttum til að svara því hvort
Ólafur Ragnar sé ósigrandi eins og
margir vilja meina, hvað þurfi til að
eiga möguleika gegn honum, hver
væri líklegastur til að veita honum
verðuga samkeppni og hvort þeir
teldu líklegt að nýir frambjóðendur
kæmu fram úr þessu í bar-
áttunni um Bessastaði.
Þetta höfðu þeir að
segja. n
Ólafur (ekki) Ósigrandi
n Þetta þarf til að leggja sitjandi forseta n Stefnir í þungavigtar-
einvígi við Andra Snæ n Álitsgjafar segja sína skoðun
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
2012
2008
2004
1996
2000