Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Qupperneq 25
Helgarblað 25.–28. nóvember 2016 Kynningarblað - Brot af því besta 3 Glæsilegt bifreiða- og dekkjaverkstæði Bílastofan: Funahöfða 6 B ílastofan hefur opnað nýtt og glæsilegt bifreiða- og dekkjaverkstæði að Funa- höfða 6, Reykjavík, en áður hefur Bílastofan starfað með glæsibrag í Reykjanesbæ. Þar er hægt að fá dekk á hagstæðara verði en gengur og gerist án þess að slakað sé á gæðakröfum. „Nagladekk undir bílinn kosta núna frá 44.000 krónum. Þetta er sama verð og þú borgaðir fyrir tíu árum. Við erum í þeirri aðstöðu að geta boðið dekk sem eru mun ódýr- ari en flest önnur dekk á markaðn- um en um leið mjög vönduð. Hjá þeim aðilum sem hafa verið að skipta við mig hefur dekkjakostn- aður fallið um meira en helming,“ segir Sigurður Friðriksson, eigandi Bílastofunnar, sem hefur verið starfandi í Reykjanesbæ í eitt ár, en fyrir nokkrum dögum opnaði Bílastofan nýtt og glæsilegt verk- stæði að Funahöfða 6 í Reykjavík, beint á móti AB varahlutum. Dekkin sem Bílastofan býður eru frá Infinity og eru framleidd í einni af elstu dekkjaverksmiðj- unum í Kína. Verðið er frábært og gæðin rómuð en nákvæmar upp- lýsingar um verð er að finna á heimasíðunni bilastofan.is. Í tilefni af opnun verkstæðisins að Funa- höfða 6 býður Bílastofan nú fría umfelgun fyrir þá sem kaupa fjögur dekk undir bílinn. Það er líka hægt að koma með eigin dekk og láta umfelga fyrir um 5.000 krónur. Enn fremur býður Bílastofan upp á að bíllinn sé sóttur heim til eigandans og honum skilað aftur á nýjum dekkjum – gegn vægu gjaldi. Bílastofan er í senn dekkja- verkstæði og almennt bílaverk- stæði. Fyrirtækið hefur notið mik- illar velgengni á Suðurnesjum og meirihluti af bílaleigum á svæðinu skiptir við Bílastofuna enda er mjög hagstætt að hafa dekkin frá Infini- ty undir bílnum. Sigurður Friðriks- son rekur sjálfur bílaleigur og þarf að hafa verkstæði til að halda þeim bílum við. Starfsmenn á Bílastof- unni að Funahöfða eru fjórir. Bílastofan er með negld dekk, ónegld dekk og heilsársdekk og býður jafnframt upp á burðardekk á hagstæðu verði en það færist í vöxt að notendur þungra atvinnubíla leiti til Bílastofunnar varðandi dekk undir bílinn, til að lækka kostnað um leið og gæði eru tryggð. n Bílastofan í Reykjanesbæ er stað- sett að Njarðarbraut 11 í Reykjanes- bæ en í Reykjavík að Funahöfða 6 eins og áður segir. Opið er virka daga frá kl. 8 til 17 og á laugardög- um frá 10 til 14. Símanúmer eru 562-1351 og 861-2319. Nánari upp- lýsingar á Facebook-síðu Bílastof- unnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.