Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Blaðsíða 25
Helgarblað 25.–28. nóvember 2016 Kynningarblað - Brot af því besta 3
Glæsilegt bifreiða-
og dekkjaverkstæði
Bílastofan: Funahöfða 6
B
ílastofan hefur opnað nýtt
og glæsilegt bifreiða- og
dekkjaverkstæði að Funa-
höfða 6, Reykjavík, en áður
hefur Bílastofan starfað
með glæsibrag í Reykjanesbæ. Þar
er hægt að fá dekk á hagstæðara
verði en gengur og gerist án þess að
slakað sé á gæðakröfum.
„Nagladekk undir bílinn kosta
núna frá 44.000 krónum. Þetta er
sama verð og þú borgaðir fyrir tíu
árum. Við erum í þeirri aðstöðu að
geta boðið dekk sem eru mun ódýr-
ari en flest önnur dekk á markaðn-
um en um leið mjög vönduð. Hjá
þeim aðilum sem hafa verið að
skipta við mig hefur dekkjakostn-
aður fallið um meira en helming,“
segir Sigurður Friðriksson, eigandi
Bílastofunnar, sem hefur verið
starfandi í Reykjanesbæ í eitt ár,
en fyrir nokkrum dögum opnaði
Bílastofan nýtt og glæsilegt verk-
stæði að Funahöfða 6 í Reykjavík,
beint á móti AB varahlutum.
Dekkin sem Bílastofan býður
eru frá Infinity og eru framleidd
í einni af elstu dekkjaverksmiðj-
unum í Kína. Verðið er frábært og
gæðin rómuð en nákvæmar upp-
lýsingar um verð er að finna á
heimasíðunni bilastofan.is. Í tilefni
af opnun verkstæðisins að Funa-
höfða 6 býður Bílastofan nú fría
umfelgun fyrir þá sem kaupa fjögur
dekk undir bílinn. Það er líka hægt
að koma með eigin dekk og láta
umfelga fyrir um 5.000 krónur.
Enn fremur býður Bílastofan
upp á að bíllinn sé sóttur heim til
eigandans og honum skilað aftur á
nýjum dekkjum – gegn vægu gjaldi.
Bílastofan er í senn dekkja-
verkstæði og almennt bílaverk-
stæði. Fyrirtækið hefur notið mik-
illar velgengni á Suðurnesjum og
meirihluti af bílaleigum á svæðinu
skiptir við Bílastofuna enda er mjög
hagstætt að hafa dekkin frá Infini-
ty undir bílnum. Sigurður Friðriks-
son rekur sjálfur bílaleigur og þarf
að hafa verkstæði til að halda þeim
bílum við. Starfsmenn á Bílastof-
unni að Funahöfða eru fjórir.
Bílastofan er með negld dekk,
ónegld dekk og heilsársdekk og
býður jafnframt upp á burðardekk á
hagstæðu verði en það færist í vöxt
að notendur þungra atvinnubíla
leiti til Bílastofunnar varðandi dekk
undir bílinn, til að lækka kostnað
um leið og gæði eru tryggð. n
Bílastofan í Reykjanesbæ er stað-
sett að Njarðarbraut 11 í Reykjanes-
bæ en í Reykjavík að Funahöfða
6 eins og áður segir. Opið er virka
daga frá kl. 8 til 17 og á laugardög-
um frá 10 til 14. Símanúmer eru
562-1351 og 861-2319. Nánari upp-
lýsingar á Facebook-síðu Bílastof-
unnar.