Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Side 30
Helgarblað 25.–28. nóvember 20168 Brot af því besta - Kynningarblað Trésmiðjan Stígandi T résmiðjan Stígandi á Blönduósi smíðar vand­ aðar líkkistur, bæði hvítar og spónlagðar með viðar­ tegund að vali kaupanda. Kisturnar eru afgreiddar fullbúnar, fóðraðar og með kodda, sæng og blæju. Líkklæði er einnig hægt að kaupa sé þess óskað. Kisturnar eru sendar daginn eftir pöntun hvert á land sem er. Að sögn Guðmundar Arnar Sig­ urjónssonar, eins eigenda Stíganda, afgreiðir fyrirtækið um 30 líkkistur á ári. Flestar eru keyptar í héraðinu, einhverjar fara á Blönduós og Hvammstanga, og svo eru nokkrar afgreiddar vítt og breitt um landið, meðal annars til Reykjavíkur. Segir Guðmundur að ástæðurnar fyrir því að líkkisturnar frá þeim nái svo langt út fyrir héraðið bæði vera gott orðspor fyrirtækisins í líkkistu­ smíði og að verðið á þeim þyki afar hagstætt miðað við mikil gæði. Starfsemi Trésmiðjunnar Stíg­ anda hvílir á gömlum og traustum grunni. Fyrirtækið var stofnað árið 1947 og hefur ávallt verið staðsett á Norðurlandi, en stofnendur þess komu þó úr Reykjavík. Í dag eru þrír starfsmenn fyrirtækisins í eigenda­ hópnum en starfsmenn eru alls 13, meirihlutinn trésmiðir. Að sögn Guðmundar er starf­ semin afar fjölbreytt en þó er sér­ smíði á innréttingum mjög stór þáttur af starfseminni: „Við erum stærsti aðilinn á svæðinu í viðhaldi og nýsmíði og því mikið leitað til okkar varðandi alls konar verkefni. Við erum í raun þjónustufyrirtæki á vakt hér og það er feikilega mik­ ið að gera.“ Trésmiðjan Stígandi tekur að sér allt sem við kemur byggingum og mannvirkjagerð. Á tæknivæddu verkstæði smíða starfsmenn fyrir­ tækisins nánast hvað sem er, allt eftir óskum viðskiptavina. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og persónulega þjónustu. Innréttingar, tréstigar og sumarhús Á heimasíðu Stíganda, stigandihf. is, má finna fróðlegar upplýsingar um ýmsar vörur fyrirtækisins. Áður eru líkkisturnar nefndar en auk þeirra framleiðir Stígandi til dæm­ is mikið af fallegum og vönduðum innréttingum af ýmsu tagi. Þraut­ reyndir starfsmenn eru viðskipta­ vinum til ráðgjafar varðandi efnis­ val og útfærslu, en möguleikarnir eru endalausir. Þá smíðar Stígandi tréstiga af öllum stærðum og gerðum þar sem nýtt er í senn nýjasta tækni og dýr­ mæt reynsla iðnmeistara fyrirtækis­ ins af gömlu handbragði. Enn fremur framleiðir Stígandi sumarhús og smáhýsi til flutnings hvert á land sem er. Meðal annars eru í boði svokölluð hraðhús, sem eru 55 fermetra, byggð úr tveim­ ur einingum sem eru smíðað­ ar á starfssvæði Stíganda og flutt­ ar á byggingarstaðinn ásamt forsteyptum undirstöðum. Auðvelt er að bæta þriðju einingunni við hvenær sem er og stækka húsið þar með upp í 82 fermetra. n Trésmiðjan Stígandi Húnabraut 29, Blönduósi Sími: 452-4123. Netfang: gummi@stigandihf.is Heimasíða: www.stigandihf.is Líkkistur, innréttingar, tréstigar og sumarhús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.