Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Page 30
Helgarblað 25.–28. nóvember 20168 Brot af því besta - Kynningarblað
Trésmiðjan Stígandi
T
résmiðjan Stígandi á
Blönduósi smíðar vand
aðar líkkistur, bæði hvítar
og spónlagðar með viðar
tegund að vali kaupanda.
Kisturnar eru afgreiddar fullbúnar,
fóðraðar og með kodda, sæng og
blæju. Líkklæði er einnig hægt að
kaupa sé þess óskað. Kisturnar eru
sendar daginn eftir pöntun hvert á
land sem er.
Að sögn Guðmundar Arnar Sig
urjónssonar, eins eigenda Stíganda,
afgreiðir fyrirtækið um 30 líkkistur
á ári. Flestar eru keyptar í héraðinu,
einhverjar fara á Blönduós og
Hvammstanga, og svo eru nokkrar
afgreiddar vítt og breitt um landið,
meðal annars til Reykjavíkur. Segir
Guðmundur að ástæðurnar fyrir
því að líkkisturnar frá þeim nái svo
langt út fyrir héraðið bæði vera
gott orðspor fyrirtækisins í líkkistu
smíði og að verðið á þeim þyki afar
hagstætt miðað við mikil gæði.
Starfsemi Trésmiðjunnar Stíg
anda hvílir á gömlum og traustum
grunni. Fyrirtækið var stofnað árið
1947 og hefur ávallt verið staðsett
á Norðurlandi, en stofnendur þess
komu þó úr Reykjavík. Í dag eru þrír
starfsmenn fyrirtækisins í eigenda
hópnum en starfsmenn eru alls 13,
meirihlutinn trésmiðir.
Að sögn Guðmundar er starf
semin afar fjölbreytt en þó er sér
smíði á innréttingum mjög stór
þáttur af starfseminni: „Við erum
stærsti aðilinn á svæðinu í viðhaldi
og nýsmíði og því mikið leitað til
okkar varðandi alls konar verkefni.
Við erum í raun þjónustufyrirtæki
á vakt hér og það er feikilega mik
ið að gera.“
Trésmiðjan Stígandi tekur að
sér allt sem við kemur byggingum
og mannvirkjagerð. Á tæknivæddu
verkstæði smíða starfsmenn fyrir
tækisins nánast hvað sem er, allt
eftir óskum viðskiptavina. Lögð er
áhersla á vönduð vinnubrögð og
persónulega þjónustu.
Innréttingar, tréstigar og
sumarhús
Á heimasíðu Stíganda, stigandihf.
is, má finna fróðlegar upplýsingar
um ýmsar vörur fyrirtækisins. Áður
eru líkkisturnar nefndar en auk
þeirra framleiðir Stígandi til dæm
is mikið af fallegum og vönduðum
innréttingum af ýmsu tagi. Þraut
reyndir starfsmenn eru viðskipta
vinum til ráðgjafar varðandi efnis
val og útfærslu, en möguleikarnir
eru endalausir.
Þá smíðar Stígandi tréstiga af
öllum stærðum og gerðum þar sem
nýtt er í senn nýjasta tækni og dýr
mæt reynsla iðnmeistara fyrirtækis
ins af gömlu handbragði.
Enn fremur framleiðir Stígandi
sumarhús og smáhýsi til flutnings
hvert á land sem er. Meðal annars
eru í boði svokölluð hraðhús, sem
eru 55 fermetra, byggð úr tveim
ur einingum sem eru smíðað
ar á starfssvæði Stíganda og flutt
ar á byggingarstaðinn ásamt
forsteyptum undirstöðum. Auðvelt
er að bæta þriðju einingunni við
hvenær sem er og stækka húsið þar
með upp í 82 fermetra. n
Trésmiðjan Stígandi
Húnabraut 29, Blönduósi
Sími: 452-4123.
Netfang: gummi@stigandihf.is
Heimasíða: www.stigandihf.is
Líkkistur, innréttingar,
tréstigar og sumarhús