Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Side 32
Helgarblað 25.–28. nóvember 201610 Brot af því besta - Kynningarblað „Trúin flytur fjöll en við flytjum allt annað“ S endibílastöðin hf. var stofn- uð 29. júní árið 1949. Hún var upphaflega staðsett að Ingólfsstræti 11 en flutti svo í Borgartún 21 árið 1956. Í dag er stöðin að Klettagörðum 1 og hefur verið síðan 1999. Sólveig Þóra Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sendibílastöðvarinnar hf., segir að á staðnum sé einkarekið mötuneyti fyrir bílstjórana og einnig er í boði kaffi og meðlæti allan daginn. „And- rúmsloftið er gott og menn hittast hér og rabba, spila bridds og tefla þegar tími gefst til. Það er reyndar ekki oft því yfirleitt er mikið að gera.“ Allt annar rekstrargrundvöllur í dag „Rekstur sendibílastöðva er með allt annan grundvöll í dag en áður var. Árið 2002 komu ný lög/reglugerð- ir varðandi það að ekki var lengur skylda fyrir sendibílstjóra að vera á viðurkenndri sendibílastöð – eins og alltaf hafði verið. Auk þess var sendi- bílastöðvum bannað að gefa út há- marksgjaldskrá. Við fengum undan- þágu frá Samkeppniseftirlitinu. Því hámarksgjaldskrá er til verndar við- skiptavininum,“ segir hún. Bílar hafa stækkað í gegnum tíðina og hafa þeir meiri burðargetu enda kallar markaðurinn á það. Ný tæki hafa komið til sögunnar sem létta bílstjóranum vinnuna, t.d. raf- magnsbrettatjakkar og rafmagns- tröpputrillur. Að sögn Sólveigar flytur Sendi- bílastöðin allt frá umslögum upp í stórflutninga. „Við erum með bíla allt frá fimm rúmmetrum upp í tæplega 50 rúmmetra burðargetu; allt að 10 tonnum. Sumir eru með vagna auka- lega sem eru um 50 rúmmetrar þar sem burður er allt að 13 tonnum. Einnig höfum við aðgang að krana og búslóðalyftum sem ná allt að 50 metrum og bera 350 kíló í hverri ferð.“ Þjóna bæði fyrirtækjum og einstaklingum „Trúin flytur fjöll við flytjum allt annað,“ segir Sólveig brosandi. „Þjónusta okkar er víðtæk. Við þjón- um bæði einstaklingum og fyrir- tækjum. Á Sendibílastöðinni starfa tveir starfsmenn en á stöðinni eru alls 62 bílstjórar. Sendibílstjórarnir eru allir sjálf- stæðir verktakar með sameiginlega símaþjónustu varðandi úthlutun túra og innheimtu reikninga þeirra fyrirtækja sem eru í reikningi á Sendibílastöðinni.“ Ísbjarnarflutningur Aðspurð segir Sólveig að það skrýtnasta sem fyrirtækið hefur flutt til þessa sé líklega ísbjörn. „Hann var uppstoppaður, sem betur fer,“ segir hún hlæjandi. „Annars er ekkert sem við neitum að flytja svo framarlega sem farmurinn kemst í bílana og allt sé löglegt. Við höfum hingað til ekki lent í því að þurfa að neita við- skiptavini um flutning.“ n Sendibílastöðin hf. Klettagörðum 1, 104 Reykjavík. Símar: 553-5050 og 533-1000. www.sendibilastodin.is Sendibílastöðin hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.