Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Qupperneq 32
Helgarblað 25.–28. nóvember 201610 Brot af því besta - Kynningarblað
„Trúin flytur fjöll en
við flytjum allt annað“
S
endibílastöðin hf. var stofn-
uð 29. júní árið 1949. Hún
var upphaflega staðsett að
Ingólfsstræti 11 en flutti svo
í Borgartún 21 árið 1956.
Í dag er stöðin að Klettagörðum 1
og hefur verið síðan 1999. Sólveig
Þóra Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Sendibílastöðvarinnar hf., segir að
á staðnum sé einkarekið mötuneyti
fyrir bílstjórana og einnig er í boði
kaffi og meðlæti allan daginn. „And-
rúmsloftið er gott og menn hittast
hér og rabba, spila bridds og tefla
þegar tími gefst til. Það er reyndar
ekki oft því yfirleitt er mikið að gera.“
Allt annar rekstrargrundvöllur
í dag
„Rekstur sendibílastöðva er með allt
annan grundvöll í dag en áður var.
Árið 2002 komu ný lög/reglugerð-
ir varðandi það að ekki var lengur
skylda fyrir sendibílstjóra að vera á
viðurkenndri sendibílastöð – eins og
alltaf hafði verið. Auk þess var sendi-
bílastöðvum bannað að gefa út há-
marksgjaldskrá. Við fengum undan-
þágu frá Samkeppniseftirlitinu. Því
hámarksgjaldskrá er til verndar við-
skiptavininum,“ segir hún.
Bílar hafa stækkað í gegnum
tíðina og hafa þeir meiri burðargetu
enda kallar markaðurinn á það. Ný
tæki hafa komið til sögunnar sem
létta bílstjóranum vinnuna, t.d. raf-
magnsbrettatjakkar og rafmagns-
tröpputrillur.
Að sögn Sólveigar flytur Sendi-
bílastöðin allt frá umslögum upp í
stórflutninga.
„Við erum með bíla allt frá fimm
rúmmetrum upp í tæplega 50
rúmmetra burðargetu; allt að 10
tonnum. Sumir eru með vagna auka-
lega sem eru um 50 rúmmetrar þar
sem burður er allt að 13 tonnum.
Einnig höfum við aðgang að krana
og búslóðalyftum sem ná allt að 50
metrum og bera 350 kíló í hverri ferð.“
Þjóna bæði fyrirtækjum
og einstaklingum
„Trúin flytur fjöll við flytjum allt
annað,“ segir Sólveig brosandi.
„Þjónusta okkar er víðtæk. Við þjón-
um bæði einstaklingum og fyrir-
tækjum. Á Sendibílastöðinni starfa
tveir starfsmenn en á stöðinni eru
alls 62 bílstjórar.
Sendibílstjórarnir eru allir sjálf-
stæðir verktakar með sameiginlega
símaþjónustu varðandi úthlutun
túra og innheimtu reikninga þeirra
fyrirtækja sem eru í reikningi á
Sendibílastöðinni.“
Ísbjarnarflutningur
Aðspurð segir Sólveig að það
skrýtnasta sem fyrirtækið hefur flutt
til þessa sé líklega ísbjörn. „Hann
var uppstoppaður, sem betur fer,“
segir hún hlæjandi.
„Annars er ekkert sem við
neitum að flytja svo framarlega
sem farmurinn kemst í bílana og
allt sé löglegt. Við höfum hingað til
ekki lent í því að þurfa að neita við-
skiptavini um flutning.“ n
Sendibílastöðin hf. Klettagörðum
1, 104 Reykjavík. Símar: 553-5050 og
533-1000. www.sendibilastodin.is
Sendibílastöðin hf.