Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Side 47
Helgarblað 25.–28. nóvember 2016 Menning 35 Þýska rokkhljómsveitin Ramm-stein mun spila á stórtónleik-um í Kórnum í maí á næsta ári. Sveitin spilaði síðast á Ís- landi á tvennum tón- leikum árið 2001. Síðasta opnun Nýlistasafns-ins í núverandi húsnæði safnsins í Breiðholti fer fram um helgina, en þá verð- ur opnuð alþjóðlega samsýningin The Primal Shelter is the site for Primal Fears. Safnið hefur haft sýningaaðstöðu í Völvufelli í tvö ár en mun færa sig um set í Marshall- húsið úti á Granda á næstunni. Handskrifað ljóð eftir Önnu Frank, gyðinga- stelpuna sem hélt áhrifamikla dagbók í tvö ár meðan hún var í felum í seinni heimsstyrjöldinni, seldist í vikunni á tæpar 17 milljónir króna. Ljóðið sem er skrifað árið 1942 og er á hollensku er eitt af fáum blað- snifsum sem sýna rithönd Frank. Byggingarvinnu við tónlistar-höllina Elb- philharmonie í Hamburg er loks lokið tæpum áratug eftir að hún hófst og verður hús- ið opnað opinberlega í janúar 2017. Verkstjórnin þykir hins vegar hneyksli enda átti þessi 120 þús- und fermetra höll, sem er hönnuð af svissnesku stjörnuarkitektunum Herzog & de Meuron, upphaflega að vera tilbúin árið 2010 og kosta tæpa 29 milljarða króna. Kostn- aðurinn endaði hins vegar á því að verða ríflega þrefalt meiri. Ný skýrsla segir ábyrgðina liggja hjá borgarstjórn Hamborgar jafnt sem fyrsta byggingarverktakanum sem kom að verkinu. Flestir virðast þó sammála um að höllin sé mikið byggingarafrek, himinhár glerhjúp- ur sem minnir ýmist á skipsstafn, ísjaka eða tjald var byggður ofan á verksmiðjubyggingu úr múrsteini við bakka árinnar Saxelfar. Í höll- inni eru auk þriggja tónleikasala (sá stærsti hýsir 2.100 gesti), 244 herbergja hótel og 45 íbúðir. gerist hins vegar ekkert af sjálfu sér. Þetta burðarvirki er verkefni sem kynslóðir af pólitíkusum, menningarfrömuðum og listafólki hafa byggt upp. Það er þessari vinnu að þakka að við eigum fólk eins og Björk, Sjón eða Víking Heiðar, sem skrifaði á dögunum undir útgáfu- samning við eitt virtasta útgáfufyrir- tæki heims, Deutsche Grammo- phone. Grundvöllurinn að því að Víkingur skrifar undir þennan samn- ing er kannski lagður árið 1930 þegar Tónlistarfélag Reykjavíkur kom á fót fyrsta alvöru tónlistarskólanum, eða kannski var hann lagður í kringum 1960 þegar Gylfi Þór Gíslason og Tón- listarfélagsmenn tóku þátt í að móta lög um tónlistarskóla,“ segir Jón Karl. „Þetta er eitthvað sem okkur, og þeim sem standa í forystu í menn- ingarlífinu, er trúað fyrir. En það er ofboðslega auðvelt að eyðileggja þetta allt. Til að viðhalda því verðum við stöðugt að vera að endurbæta burðarvirkið og láta það koma til móts við nýjar áskoranir – og þær eru nægar um þessar mundir. Það má til dæmis nefna að tónlistar- kennarar hafa verið samningslausir svo mánuðum skiptir, Ríkisútvarpið hefur verið skorið niður um hundruð milljóna á örfáum árum, og fleira.“ Hetjusaga „patrónanna“ „Í og með er þetta hetjusaga – kannski sú hetjusaga sem sumum fannst að ég hefði átt að skrifa þegar ég skrif- aði bókina mína um Ragnar í Smára [Mynd af Ragnari í Smára]. Hér er ég að skrifa um hvernig hann og menn af hans tagi hafa lyft ákveðnu grettistaki. Eitt af því sem mér finnst merkilegt er hvað flestir koma að þessu verki á óeigingjarnan hátt, ekki til að slá sjálfa sig til riddara eða draga athyglina frá því hversu mik- ið þeir eru græða með öðrum hætti, heldur af heilbrigðum metnaði fyrir hönd lands og þjóðar. Þó að ég hugsi þennan kafla sem bréf til verðandi menntamálaráðherra þá held ég líka að það væri fínt ef skólafélagar okkar Ragnars úr Verslunarskólanum, bæði þeir yngri og eldri, myndu kynna sér þessa sögu. Þeir fjármunir sem eru geymdir í aflandsreikningum geta nefnilega öðlast mikilvægt hlutverk hér á landi,“ segir Jón Karl. Myndin sem er dregin upp í kafl- anum sýnir einnig mikilvægt hlut- verk ríkisins í uppbyggingunni og hvernig umsvif þess aukast á öldinni – í fyrstu þannig að stjórnmála- menn gátu beitt sér beint á menn- ingarsviðinu en eftir því sem leið á öldina jókst armslengdin. „Með vexti ríkisvaldsins, ekki síst á árabilinu 1925 til 1950, fara að eiga sér stað átök um hvernig verkaskipt- ingin eigi að vera milli patrónanna og ríkisins. Það er til dæmis forvitnilegt að Ragnari í Smára hugnaðist ekki að sinfónían yrði gerð að opinberri stofnun. Hann vildi ekki að sextíu opinberir starfsmenn væru ábyrgir fyrir tónlistarlífinu í landinu, heldur vildi hann einhvers konar sambland af frjálsu framtaki og ríkis stuðningi. Þessi núningur, eða leit að réttu lausninni, birtist svo skýrast í um- ræðum um listamannalaun. Ég hef hins vegar á tilfinningunni að í kring- um 1950 séu menn komnir að ein- hvers konar niðurstöðu: að ríkið eigi að vera stærsti bakjarlinn. Eftir því sem líður á seinni hluta aldarinnar fara bæjarfélögin svo að axla síaukna ábyrgð. Fleiri bæjarfélög en Reykja- vík fara að leggja sitt af mörkum, setja á fót söfn, velja bæjarlistamenn og annað. Þessi hugsun kemst svo- lítið á flot með ríkisstjórnum Davíðs Oddssonar og svo vexti fjársterkra fyrirtækja, og kannski helst fyrir- tækja sem höfðu áður verið í opin- berri eigu.“ Það eru þó ekki aðeins ríkis- valdið og vel megandi einstaklingar sem draga vagninn í uppbyggingu burðarvirkisins heldur einnig er- lendir innflytjendur – sem höfðu af- gerandi áhrif á þróun íslensks tón- listarlífs – og hópar ungs atorkusams hugsjóna- og listafólks sem spretta upp með reglulegu millibili. „Í þessari sögu sér maður svipuð skref vera tekin aftur og aftur. Það verða til ákveðnir lykilhópar lista- manna, til dæmis menntamennirnir í kringum Sigurð Nordal um 1918, hópurinn í kringum Kristinn E. Andrés son og Rauða penna í kringum 1935, svo eru það Birtingsmenn og Medúsuhópurinn sem verður síðar Smekkleysa, og auðvitað miklu fleiri. Upp úr þessum hópum spretta yfir- leitt listamenn sem tíu eða tuttugu árum seinna brjóta einhver blöð, en líka oft einstaklingarnir sem axla svo síðar ábyrgð innan stofnana. Þessir hópar fara yfirleitt af stað í uppreisn gegn hinu viðtekna og gegn stofnun- inni, aðeins örfáum árum seinna eru einstaklingar úr þeirra röðum komnir í stól leikhússtjóra, orðnir skólastjór- ar í myndlistarskóla og svo framvegis. Þessir hópar eiga það yfirleitt sam- eiginlegt að ná þvert yfir listgreinar. SÚM-hópurinn vann til dæmis náið með leikhópnum Grímu, í Birtings- hópnum voru tónskáld, arkitektar og rithöfundar, og svo framvegis. Annað sem skiptir máli er að þessir hópar hafa yfirleitt einhver erlend tengsl og eru í virku sambandi við erlenda hópa með sambærilega fagurfræði. Viðmiðin eru því alþjóðleg og menn- ingin trénar ekki í upphafningu þjóð- ernisins.“ Boxpúði fyrir aðra fræðimenn Jón Karl segist vera undir það búinn að fá gagnrýni fyrir kaflann, enda sé það óumflýjanlegt þegar troða þurfi jafn miklu efni á jafn fáar síður. „Ég veit að ég verð gagnrýndur fyrir allt það sem ég tala ekki um í kaflanum, en textar af þessu tagi eiga að vera eins konar boxpúðar fyrir frekari rannsóknir: „Jón Karl segir þetta, en það er ekki rétt!“ En ég vona fyrst og fremst að þessi texti geti ýtt undir fleiri þverfaglegar rannsóknir á lista- sögunni,“ segir hann. „Í þessari vinnu fannst mér koma vel í ljós í hversu nánum tengslum listgreinarnar eru hver við aðra. Mér hefur oft fundist að listasagan sé skrifuð í of miklum hólfum, meira að segja innan einstakra greina, til að mynda bókmenntasögunnar, ein- blínir fólk á einangruð svið: ljóða- gerð, barnabókmenntir, leikrit og svo framvegis. En þegar maður skoð- ar strauma, stefnur og áhrif þá þarf maður að taka allt menningarkerfið til greina. Ég held að það sé mjög frjótt að skoða listasöguna heildstætt, skoða hvernig allar nýjar listgreinar virðast í upphafi sækja í bókmennta- arfinn, eða velta fyrir sér tengslum milli abstrakt myndlistar og atóm- skáldskapar, en þar á fólk bæði sam- leið fagurfræðilega og persónulega,“ segir Jón Karl. n Listamenn þurfa hjólastíga „Það er kannski af ákveðnum menn- ingarpólitískum ástæðum sem ég ákvað að fara þessa leið – að einhverju leyti er ég að skrifa verð- andi menntamálaráð- herra 90 síðna bréf. Sögu Íslands n Fjallar um bakhjarlana og burðarvirkið frekar en snillingana Byggingar og burðarvirki Tvær af mikilvægustu byggingum íslensks menningarlífs á 20. öldinni eru viðfangsefni listmálarans Þránds Þórarinssonar í verkinu Hverfisgata. Rannsakar burðarvirkið Jón Karl Helgason beinir sjónum sínum að bakhjörlum íslenskrar menningar Mynd SigtRygguR ARi Úr listheiminum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.