Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Page 54
Helgarblað 25.–28. nóvember 201642 Fólk Í þróttafræðingurinn Oddný Anna Kjartansdóttir hefur alla tíð haft mikinn áhuga á heilsu og heil- brigðum lífsstíl en þegar að hennar heilsa brást ákvað hún að venda kvæði sínu í kross, minnka við sig íþróttakennslu og byrja í námi í lýðheilsufræðum. Oddnýju Önnu hefur alltaf þótt mikilvægt að láta gott af sér leiða þegar kem- ur að heilsu en í náminu gafst henni tækifæri til þess að hrinda af stað verkefni sem styður við það sem hefur einna helst brunnið á henni í þessum efnum þ.e. að stuðla að minni kyrrsetu og meiri hreyfingu samlanda sinna. Láta gott af sér leiða „Ég er íþróttafræðingur og starfa sem íþróttakennari við Langholts- skóla. Ég var búin að vera að glíma við raddvandamál og íþróttakennsla reynir svakalega mikið á röddina. Talmeinafræðingarnir mínir höfðu af þessum sökum lýst yfir áhyggjum af starfsvettvangi mínum og hvað hann hentaði rödd minni sérlega illa. Á síðasta ári þurfti ég svo að fara í aðgerð á raddböndum sem leiddi til þess að ég var frá vinnu í hálft ár. Ég ákvað því að byrja í námi sem mér fannst mjög spennandi og býður upp á ýmsa möguleika sem viðbót við íþróttafræðina.“ Í náminu sótti Oddný Anna nám- skeið þar sem nemendur áttu hrinda af stað lýðheilsuverkefni þar sem þeir áttu að nýta sér samfélagsmiðla til þess að hafa áhrif á lýðheilsu fólks. „Fyrst og fremst vildi ég koma af stað vitundarvakningu þar sem markmiðið er að hvetja fólk til þess að hreyfa sig meira úti í náttúr- unni. Þess vegna notaði ég myllumerkið #útmeð- þig til að hvetja fólk til þess að nota náttúr- una meira við hreyf- ingu, nota hreyfingu sem ferðamáta og fara út í ferskt loft til þess að leika við börn- in sín. Ekki bara fara út á róló þar sem börnin leika sér og foreldrarnir glápa á skjáinn heldur taka þátt og kenna börnunum að leika sér. Ég held að það sé mjög mikilvægt á okkar tím- um, því kyrrseta fyrir framan tölvur, sjónvarp og síma hefur aukist til muna.“ Mamma hefur tröllatrú á súrefni Oddný Anna opnaði Facebook- síðu sem heitir Út með þig þar sem hún deilir alls kyns fróðleik um hreyfingu og leggur til leiðir til þess að stunda hreyfinguna úti í náttúr- unni með fjölskyldunni. Þá hafa nú þegar safnast upp um 60 myndir á Instagram undir myllumerkinu og fólk er byrjað að taka við sér með því að fara frekar út að hreyfa sig, taka af því myndir og deila með verkefninu. „Svo skrifaði ég grein sem birtist á visir.is þar sem ég fjallaði um mikil vægi hreyfingar og sagði frá verkefninu, hvatti fólk til þess að fara meira út og hreyfa sig. Stundum þarf þetta ekki að vera meira en að fara út á sleða með börnunum sínum, það er hægt að fá alveg heilmikið út úr því að draga börnin á sleða upp brekkur, renna sér niður og ganga svo aftur upp. Svona hreyfing er ekki síður holl en að mæta í líkamsræktarstöðina, án þess að ég vilji gera lítið úr þeim, ég var að koma þaðan sjálf,“ segir Oddný og hlær en hún tekur fram að mamma hennar hafi alla tíð haft mikla trú á því að stunda hreyf- ingu í fersku lofti og súr- efni svo hún segist hafa verið alin upp við að hreyfa sig mikið úti og tekur fram að það skipti ótrú- lega miklu máli að sýna börnum for- dæmi í þessum efnum eins og öðru. En hvert stefnir Oddný Anna með verkefnið? „Það er aldrei að vita, mögulega held ég áfram og þróa verkefnið og kannski endar þetta sem lokaverk- efni hjá mér en ég finn það strax að þetta er ekki verkefni sem ég hætti með á föstudaginn þegar þessum áfanga í skólanum er lokið. Ég vona að ég geti fléttað þetta inn í einhvers konar fjölskyldunámskeið þar sem ég kenni foreldrum og börnum að fara út að leika sér saman og stuðla þannig að meiri hreyfingu, samveru og nýtingu á náttúrunni. Svo væri gaman að standa fyrir einhverjum stórum viðburði undir formerkjum #útmeðþig þar sem fólk gengur saman um Laugardalinn eða eitt- hvað slíkt.“ Það er augljóst að hér fer kona sem talar af mikilli hugsjón og mun verkefnið vafalaust vinda duglega upp á sig. Áhugasamir geta fylgst með henni og fróðleiksmolum henn- ar á Facebook-síðunni Út með þig. n „Fyrst og fremst vildi ég koma af stað vitundarvakningu þar sem markmiðið er að hvetja fólk til þess að hreyfa sig meira úti í náttúrunni. Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir skrifar Oddný Anna „Stundum þarf þetta ekki að vera meira en að fara út á sleða með börnunum sínum.“ Mynd sigTryggur Ari Út með þig Oddný Anna Kjartansdóttir vill vitundarvakningu um hreyfingu úti í náttúrunni Hentar vel í matargerð, ofan á brauð, til að poppa popp, í baksturinn, í þeytinginn, á húðina eða til inntöku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.